Morgunn


Morgunn - 01.12.1929, Síða 8

Morgunn - 01.12.1929, Síða 8
134 MORG-UNN leysa þetta vandasama erindi af hendi eins og bezt væri hægt. Með þó nokkrum örðugleikum gat síra Drayton Thomas síðan haft upp á heimilisfangi ekkjunnar, og fór þá ásamt konu sinni að heimsækja hana og kynnast henni, en hann hafði aldrei heyrt hana nefnda áður. í viðtali sínu við hana nefndi hann aldrei á nafn þær sérstöku ástæður, sem valdið höfðu áhyggjum mannsins hennar í öðru lífi. Það var fyrst mörgum vikum síðar, er hann hafði kynst þessari konu bet- ur, að hún fór að segja honum sorgarsögu sína, og þá nefnir hún eins og af hendingu, að einu sinni hafi hún jafnvel verið að hugsa um það, hvort bezta úrlausnin væri ekki »að hleypa út gasinu á sig og drenginn sinn«. Það eru fleiri sögur ekki ólíkar þessari i bókinni, að því Ieyti, að vitneskja hefir komið frá þeim, sem lifa í öðr- um heimi, um hluti, sem síra Drayton Thomas hafði ekki eða gat ekki haft hugmynd um. En þessar verða að nægja nú tímans vegna, sem lítilsháttar sýnishorn af þeirri miklu sannanamergð, sem í bókinni er. Presturinn segist oft hafa mætt þeirri mótbáru, að þetta samband, sem hann fái, sé ekki við aðra en vonda anda, jafnvel við djöfulinn sjálfan, sem taki á sig gerfi þessara ættingja hans (impersonation). Hann svarar þessu með því að segja, að þá sé alveg eins hægt að segja, að frásagnir þær, sem Nýja testamentið hafi að geyma, um að andar hafi birst og þeir komið með skilaboð, séu samskonar blekkingar. Hinsvegar telur hann ekki neinn vafa á því, að skilaboð þau, sem nú komi handan að, hafi yfirleitt leitt til góðs. Hann segir að til sé fjöldi vitnisburða um það, að menn, sem sannfærst hafi um framhaldslífið, hafi snúist frá efa til trúar, og að öllu leyti hafi orðið breyting á hugarfari þeirra. Hann segir einnig, að það sé einkennilegt, ef þau illu öfl, sem eiga að vera að verki, láti sér mest um það hugað, að beina hugum manna fremur að andlegri skilningi á lífinu, Og fá þá til þess að ástunda réttlæti og góða breytni öðru fremur. Enda segir hann, að í þessi ellefu ár, sem hann
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.