Morgunn - 01.12.1929, Side 17
MORGUNN
143
En andlegi líkaminn losnar jafnan úr tengslum sínum
við þann jarðneska, er menn sofa, og flytzt vitundin þá
yfir í hann og starfar þar, svo að andlegi líkaminn sefur
aldrei og veit altaf af sér. Er hann þá ýmist einhver stað-
ar annar staðar á jörðinni eða hann fer að hitta þá, sem
hann þekkir, og lifa í öðrum heimi. Um þessar sálfarir er
sérstakur kafli í bókinni, þar sem skýrt er frá, nokkuð ítar-
lega, hvernig þessu er sagt að vera varið, og hvað styðji
það, að frásagnir þær kunni að vera réttar og á rökum
bygðar, en því miður verður ekki tími til þess, að fara út
í þann kafla nú. Enda er það svo, að það, sem þar er sagt
um þetta efni, kemur varla að gagni, nema frá því sé skýrt
nokkuð nákvæmlega.
Sambandinu milli þessara tveggja líkama, andlega eða
eterlíkamans og jarðneska líkamans, er svo háttað, að alt,
sem menn gera í jarðneska líkamanum hefir áhrif á þann
andlega, hvort sem það nú er til góðs eða ills. Ýmislegt
af því, sem menn hafa vanist á í jarðlífi sínu, fylgir and-
lega líkamanum, er hann skilur við jarðneska líkamann að
fullu og öllu, og sé um slæmar venjur að ræða, verða
þær til þess, að halda honum niðri fyrst framan af og tefja
fyrir framförunum hinum megin. Segir faðir síra Drayton
Thomas að það sé því mjög inikilsvert, að menn venjist á
að hugsa rétt, þvi að venjur hugans ákveða öðru fremur
staðinn og ástandið hinum megin.
í þessu sambandi er rétt að geta þess, að í bókinni
er ennfremur fróðlegur kafli um sálina og andann, þar sem
faðir höfundarins útskýrir ýmislegt viðvíkjandi sambandi
líkama, sálar og anda. En til þess að það njóti sín, þarf
að segja nokkuð nákvæmlega frá því, sem tæplega verður
timi til, ef taka á nokkuð ítarlega suma aðra kafla, sem
segja meira beinlínis frá lífinu og starfinu hinum megin.
Er þetta líka nokkuð þungskilið efni, sem vandi er að gera
svo úr garði, að verulegt gagn sé að.
Eins og andlegi likaminn er áþreifanlegur, er alt það,
sem kringum hann er, jafn áþreifanlegt og fast fyrir. Og
þó að þeim, sem byggja hin lægri sviðin, finnist að það,