Morgunn - 01.12.1929, Page 21
MORGUNN
147
legt, sem þeir reyna svo að koma inn í huga þeirra manna
á jörðinni, sem hafa sams konar hæfileika.
Af öðrum störfum nefnir faðir höfundarins einkum, að
garðyrkja sé mjög alment iðkuð, og af listrænum störfum
er hljómlistin efst á blaði, en því næst málaralistin og
höggmyndalistin. Ennfremur segir hann, að til séu bækur
og bókasöfn, og hafi sumt fólk mikla ánægju af því að
semja bækur, alveg eins og rithöfundar hafi á jörðinni.
Reyndar lesi menn ekki eins mikið og á jörðinni, því að
nú sé hægt að tala sjálfur við rithöfundana eða hlusta á
þá tala. En í bókasöfnum þeirra segir hann að séu margar
bækur, sem aldrei hafi komið út á jörðinni.
Einmitt þetta, sem faðir höfundarins nefnir, að geta átt
samtal við og umgengist þá, sem hafa liiað á undan manni
á jörðinni, oft jafnvel mörgum öldum fyr, segir hann að
gefi lifinu í öðrum heimi svo mikla yfirburði yfir jarðlífið.
Hann segist hafa talað við menn, sem hafi lifað fyrir Krists
burð og á ýmsum öldum eftir það. Hann kveðst t. d. hafa
hitt bæði Lúter og Wesley (stofnanda meþódistakirkjudeild-
arinnar, sem við hann er kend, en höfundurinn er prestur
í þeirri kirkjudeild) og talað við þá persónulega. Hann hefir
haft mikla ánægju af því, að tala við brautryðjendur ýmsra
trúarflokka og kirkjuhreyfinga, og segir, að það sé mjög
merkilegt, að fá heildarútkomuna af mismunandi reynslu
þeirra, og finna, hvernig þeir eru nú allir sammála um,
að margar leiðir liggi að sama markinu, þótt þeir hefði áð-
ur fyr deilt og barist hver fyrir sínum trúarskoðunum og
mismunandi kreddum.
Samt er það ekki svo, að þeir, sem lifað hafa á mis-
munandi tímum, séu ávalt hvorir innan um aðra; en ef
þeir óska að hitta einhvern, sem lengi hefir verið hinum
megin og kominn er lengra á þroskabrautinni, þá geta
menn sent einskonar hugskeyti til hans um það, og ef
hann er viðlátinn, kemur hann frá því æðra sviði, sem
hann hefir þá flutzt á. Þeir, sem umgangast hvorir aðra,
eru flestir að minsta kosti frá sömu öld, en séu þeir leng-
úr en það á lægri sviðunum, er það af þvi, að þeir hafa
10*