Morgunn - 01.12.1929, Blaðsíða 23
MORGUNN
149
hvað illa, eða hefðu áhyggjur af einhverju. Hún segist að
vísu finna til með þeim í mótlæti þeirra, en ekki þó þannig,
að það fái verulega á hana. Hún segist sem sé sjá tilgang-
inn og takmarkið, sem alt stefnir að, betur en fólk, sem
lifir á jörðinni, og hún segist vera svo sannfærð um að
alt sé til góðs að lokum, að margt af þvi mótlæti, sem
vinir hennar á jörðinni eiga að búa við, rýrir ekki svo
mikið hamingju hennar í öðrum heimi. Hún segir einnig,
að sá hæfileiki, að sjá réttlætið í öllum hlutum, hafi vaxið
hjá sér. Á jörðinni sé kvartað yfir þeim rangindum, sem
ríki svo víða, og sé auðvitað sjálfsagt að bæta úr þeim
eftir megni, en á því sviði, sem hún er, segir hún að það
sé tímaeyðsla, að vera að harma orðna hluti. En á lægri
sviðunum, segir hún aftur á móti, að slíkt sé bæði rétt-
mætt og gagnlegt, því að einungis með því að gera sér
ljóst, hvað menn gerðu rangt í lífinu og á hvern hátt þeir
hafi misnotað lífið og þau tækifæri, sem það færði þeim,
er þeim kleift að komast upp á við tii æðri sviða.
Segir hún, að tvö svið séu fyrir neðan það svið, þar
sem þau eru, og að þeir, sem i raun og veru hafi verið
slæmir menn, flytjist á hið neðra þeirra. Á efra sviðið fari
þeir, sem ekki hafa eiginlega verið slæmir, heldur veikir
fyrir og sjálfselskufullir, og hafa gert öðrum mein, vegna
skorts á viðleitni til þess að gera rétt, frekar en að þeir
hafi verið ákveðnir í að gera ilt. En eins og menn geta
verið mismunandi í þessu sem öðru, þá segir hún, að á
þessum tveim sviðum séu lika mismunandi stig, eftir því
hvað hæfi hverjum og einum.
Hlutverk þeirra, sem hærra eru komnir og fengið hafa
nokkra reynslu, er einkum í því fólgið að fara til þeirra,
sem hafast við á lægri sviðunum og benda þeim á, að til
sé æðra svið ofar þeirra. En alveg eins og oft er erfitt að
koma sumum jarðarbúum í skilning um, að til sé annar
heimur en þeirra, þá er það örðugt að sannfæra þá, sem
eru á lægri sviðunum, um tilveru æðri heima. En allir muni
þeir samt láta sannfærast og leita upp á við að lokum