Morgunn


Morgunn - 01.12.1929, Síða 26

Morgunn - 01.12.1929, Síða 26
152 MORGUNN þótt, eða þykir, rétt og sjálfsagt, er talið rangt hjá annari, eða á öðrum tíma. Síra Drayton Thomas spurði föður sinn um núverandi skoðanir hans í þessum efnum, og segir faðir hans, að menn geri ekki nægilegan mun á því, hvort það, sem gert er, sé í samræmi við réttar meginreglur (principles), hvort »principið«, sem það byggist á, sé rétt, eða hvort hvatirn- ar eða »mótívið«, sem það er sprottið af, sé rétt. Margir hallast að þeirri skoðun meðan þeir eru á jörðinni, að fram- ferði þeirra sé rétt, ef aðeins hvatirnar til slíkrar breytni eru góðar, hver svo sem árangurinn kann að verða. En þegar hingað er komið, segir hann, komast menn að því, að það, sem skiftir máli, er, að meginreglurnar eða »prin- cipið«, sem framferði manna er bygt á, séu réttar. Margur hefir komið yfir um og orðið þess var, að hann hefir orðið að standa reikningsskil á einhverju, sem hann gerði á jörð- inni og taldi sér frekar til ágætis og var hreykinn af, en finnur nú að ekki var rétt, af því að það var ekki bygt á réttum meginreglum. Að gera ilt til þess að af því leiði gott, er að vinna að góðu málefni með röngum meðulum, segir faðir síra Drayton Thomas. Ein af ástæðunum sem er til þess að reka heiðingja- trúboð, enda þótt sagt sé, að hver sé sæll í sinni trú, svo að ekki sé ástæða til að vera að fá heiðingjana ofan af því, sem þeir trúa, segir faðir höfundarins að sé að reyna að fá þá til að hætta ýmsum trúarvenjum, sem geta verið skaðlegar, af því að þær eru bygðar á röngum meginregl- um, svo sem eins og mannafórnir, sem tíðkast sumstaðar. En það, sem gerir kristnu trúna öllum öðrum trúarbrögð- um fremri, segir hann að sé það, að hún er bygð á rétt- um meginreglum. »Hún byggist á réttlæti og kærleika og veitir meiri andlega þekking en önnur trúarbrögð. í flestum öðrum trú- arbrögðum er eitthvað, sem við fellum okkur ekki við, en það er ekkert í lífi Krists, sem hægt er að kalla rangt, jafn- vel af þeim, sem ekki eru þeirrar trúar«. Auðvitað segist
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.