Morgunn


Morgunn - 01.12.1929, Page 86

Morgunn - 01.12.1929, Page 86
212 M O R G U N N „Nei,“ svaraði hann. „Eg hefi gert það, sem eg vildi gera. Það getur verið, að eg komi til þín aftur, en eg veit ekki, hvenær það verður. Eg hefi fært þér sönnun fyrir framhaldslífinu, betri sönnun en eg fékk nokkurn tíma. Vertu þakklátur fyrir það. Menn missa oft alt með því að biðja um of mikið. Vertu sæll, elsku drengurinn minn, vertu sæll“. Næsta morgun var eg kominn í Strandgötuna, þeg- ar verið var að byrja að opna búðir og skrifstofur. Mér gekk vel að finna strætið, sem mér hafði verið vísað á. Það var Holywell Stræti, mjög nálægt Clement Danes kirkjunni. Eg gekk ofan eftir henni vinstra megin, eins og eg hélt, að mér hefði verið sagt, og eg leit á hverja látúnsplötu, sem eg gat komið auga á. Eg sneri við aftur, en það var árangurslaust — eg gat hvergi fundið „Davis og Sonur, málafærslumenn.“ Eg var kominn að því að örvænta. Eg var jafnvel farinn að efast — eg fór að halda, að þessi blindi miðill hefði dáleitt mig og látið mig sjá það, sem hvergi var nema í heila mínum, þegar öllu var á botninn hvolft. Auðvitað hefði eg getað framkallað mynd af föður mínum — ekki voru nema þrjú ár síðan er hann hafði dáið. Og þegar rödd hans, áherzlur, málhreimur — eg hlaut að hafa verið dáleidd- ur, og eg bölvaði sjálfum mér, fyrir að vera trúgjarnt flón. Eg sá þetta nú alt svo greinilega i kaldri morgun- birtunni, í vaxandi dunum umferðarinnar fram og aftur Strandgötuna. Eg var rétt að því kominn að fá mér vagn og aka heim. Þá fór sú hugsun eins og elding gegnum mig, hvort hann kynni að hafa átt við, að þetta væri vinstra megin, þegar gengið væri vestur, en ekki vinstra megin, þegar gengið væri í áttina til borgarinnar. Eg fór yfir götuna nærri því með ólund. Eg leit á hverja hurð. Þegar eg var kominn hálfa leið eftir stræt- inu, nam eg staðar — gat eg trúað eigin augum mínum! Eg sá litla látúnsplötu, og letrið á henni var nærri því
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.