Morgunn


Morgunn - 01.12.1929, Page 90

Morgunn - 01.12.1929, Page 90
216 M O R GU N N Höf. minnist líka nokkuð á reynslu annara manna. Meðal annars segir hann svo frá: „Eg er kunnugur ungri frú, sem um tvö ár varði nokkurum kvöldum á hverri viku til þess að reyna að fá samband; en ekkert gerðist. Hún misti kjarkinn og var að því komin að hætta við þetta. En aðrir hvöttu hana til að halda áfram, og meðal þeirra var eg. Nú er hún öflugt verkfæri fyrir menn í öðrum heimi. í návist henn- ar tala tvær og stundum þrjár verur í einu glögt og greinilega, og meðan þær eru að tala við aðra, sem við- staddir eru, heldur miðillinn uppi samræðu við enn einn fundarmann. Eiginmaður þessarar konu er ágætis mað- ur, og um tíma var hann gramur út af tilraunum hennar og alveg vantrúaður á þær. Nú kann hann því ekkert vel, að hann sé mintur á fyrri afstöðu sína til málsins. Mjög nýlega sagði hann mér, að mestu ánægjustundir sínar væru þær, er hann talaði við móður sína fyrir mið- ilshæfileika konu sinnar. Eitt kvöld á viku opna þessi vingjarnlegu hjón heimili sitt fyrir vinum sínum og vin- um vina sinna, og á þessum smásamkomum lýsa margir, sem áður hafa lifað á jörðunni, blessun sinni yfir þeim, sem viðstaddir eru og ást sinni á þeim. Meiri gleði er þarna þjappað saman á einni klukkustund en nokkur kirkja hefir fært mönnunum frá því hún varð til. Og þeir kalla þetta ófögnuð, þessir kreddumenn, er mundu banna alt, sem ekki er lagað eftir þeirra þröngu kredd- um — ef þeir hefðu mátt til þess“. Auk ýmissa annara merkilegra atriða bókarinnar, er þar skýrt frá einkar dásamlegum líkamningafyrir- brigðum, sem höfundurinn hefir fengið á heimili sínu, en með utanheimilismiðli. Meðal annara, sem þektust, kom þar sonur hans líkamaður, og skoraði hlæjandi á foreldra sína að skoða sig sem allra-nákvæmast, svo að ]>au gætu gengið úr skugga um, hver þar væri kominn. Hvað eftir annað spurði hann um, hvort þau gætu séð húfuna, sem hann hefði á höfðinu. Þessi húfa var ná- kvæmlega eins og húfan, sem pilturinn hafði notað síð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.