Fréttablaðið - 25.11.2010, Síða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Fimmtudagur
skoðun 22
25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
É g keypti þennan kjól fyrir um það bil fjór-um árum en gleymdi honum síðan! Ég var að uppgötva hann aftur og hef notað hann mikið núna þegar ég kem fram að kynna nýja diskinn minn,“ segir Regína Ósk Óskarsdótt-ir sönkona, en hún gaf nýverið út jóladiskinn, Um gleðileg jól.
Regína segist algjör kjólakona en á umslagi disks-
ins er hún einmitt í drifhvítum kjól sem hún á sjálf. „Ég
elska kjóla hvort sem þeir eru síðir eða stuttir og þá sér-
staklega „second-hand“ kjóla, sniðin eru svo kvenleg. Ég
versla mikið í Rokki og rósum og í búð sem heitir „Ein-
stakar ostakökur“, en hún selur nýja kjóla í gamla stíln-
um, alveg geggjuð!“Regína segist aldrei ganga í buxum og lýsir fatastíl
sínum sem kvenlegum og þægilegum. Eins segist hún
ekki fara út úr húsi nema á háum hælum h ðeigi þá ma h
Geng aldrei
í buxum
Regína Ósk söngkona er mikil kjólakona og klæðist drifhvítum sparikjól á umslagi nýs jóladisks.
20% f
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
Skór & töskur í miklu úrvali
www.gabor.is
Sérverslun með
Vefverslunin www.asos.com býður upp á ótrúlegt úrval kjóla sem er hægt að fá senda heim hvert á land sem er. Leitar-
vélin er sérstaklega aðgengileg og er hægt að leita eftir litum,
stærðum, merkjum og stíl. Þá er hægt að velja nöfn þekktra ein-
staklinga og fá upp kjóla og föt í þeirra anda. Victoria Beckham
og Cameron Diaz eru á meðal þeirra sem eru á listanum.SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
veðrið í dag
25. nóvember 2010
277. tölublað 10. árgangur
EM-blað HSÍ fylgir
Fréttablaðinu í dag
Apple
jólagjafalistinn
fylgir Fréttablaðinu í dag
Komin
í jólaskap
Opið til 21 í kvöld
Í takt við breytta tíma...
Frábær opnunartilboð!
Rokkabillí ekki búið
Strákarnir í hljómsveitinni
The 59‘s eru stórhuga og
flottir í tauinu.
fólk 44
FÓLK Þrjú hundruð eintök af Ævisögu Jón-
ínu Benediktsdóttur, sem verslanir Office
1 keyptu af N1 og seldu á hálfvirði, komu
bæði fram í sölutölum frá Office 1 og N1
vegna bókasölulista þessarar viku. Rann-
sóknarsetur verslunarinnar tekur listann
saman fyrir Félag íslenska bókaútgef-
enda. Vegna tvítalningarinnar var met-
sölulistinn ekki sendur út til fjölmiðla í
gær eins og ráð var fyrir gert.
Emil B. Karlsson, forstöðumaður
Rannsóknarseturs verslunarinnar, segir í
samtali við Fréttablaðið að endurskoða verði
listann í ljósi þess að þrjú hundruð eintök af
ævisögu Jónínu sem Office 1 keypti í síðustu
viku voru talin bæði í gögnum frá N1 og Off-
ice 1. „Okkur var sagt að það væri ekki verið
að telja sömu eintökin,“ segir Emil. Annað
hafi hins vegar komið í ljós.
Formaður Félags bókaútgefenda, Kristján
Bjarki Jónasson, segist orðlaus vegna máls-
ins. - fgg / sjá síðu 58
Birtingu metsölulista frestað vegna rangra talna um ævisögu Jónínu Ben:
Jónína tvítalin á metsölulista
0
-4 -4
-3
-2
HVESSIR LÍTILLEGA Í dag má
búast við NA 5-10 m/s en aðeins
hvassara verður við A-ströndina.
Sunnan og vestan til verður víða
bjart en N- og A-lands eru horfur á
skýjuðu veðri, éljum eða lítils háttar
snjókomu.
VEÐUR 4
FÉLAGSMÁL Lögmaður Götusmiðj-
unnar hyggst eftir helgi kvarta
til umboðsmanns Alþingis vegna
Árbótarmálsins. Hann telur að jafn-
ræðisregla stjórnarskrárinnar hafi
verið brotin og að ríkið hafi bakað
sér bótaskyldu með því að semja
með gjörólíkum hætti um uppgjör
við Götusmiðjuna og Árbót.
Gísli Kr. Björnsson, lögmaður
Götusmiðjunnar, segir ólíka
afgreiðslu stjórnvalda á málunum
tveimur endurspegla brotalamir
innan stjórnsýslunnar.
„Mér finnst óeðlilegt að ráðherr-
arnir blandi sér inn í annað málið
en ekki hitt. Þeir hefðu í rauninni
átt að stíga inn í bæði málin vegna
þess að það voru sömu aðstæður
uppi í málunum,“ segir Gísli Kr.
Björnsson, lögmaður Götusmiðj-
unnar. „Að sama skapi finnst mér
óeðlilegt af Braga [Guðbrandssyni,
forstjóra Barnaverndarstofu] að
klára samninginn við okkur vitandi
vits að það er verið að gera öðruvísi
samninga við annan aðila í máli
sem er alveg eins. Jafnræðisreglan
er því augljóslega ekki virt.“
Gísli segist hafa kallað eftir því
að Árni Páll Árnason, þáverandi
félagsmálaráðherra, blandaði sér
í málið í júní en ekkert svar hafi
borist.
„Eftir helgi munum við skjóta
málinu til umboðsmanns Alþingis
og senda öllum þingmönnum erindi
þess efnis að mál Götusmiðjunnar
verði tekið upp aftur,“ segir Gísli.
Spurður hvort ekki sé nauðsyn-
legt að fara í skaðabótamál fyrir
dómstólum segir Gísli: „Ef við fáum
eins fyrirgreiðslu hjá þingmönnum
og ráðherrum og Árbót fékk þá á
þess ekki að þurfa.“
- sh, th / sjá síðu 12
Götusmiðjan kvartar til
umboðsmanns Alþingis
Ólík málsmeðferð stjórnvalda við gerð starfslokasamninga vegna Árbótar og Götusmiðjunnar er brot á
jafnræðisreglu segir lögmaður. Kvartað verður til umboðsmanns Alþingis og öllum þingmönnum sent bréf.
Mér finnst óeðlilegt
að ráðherrar blandi
sér inn í annað málið en ekki
hitt.
GÍSLI KR. BJÖRNSSON
LÖGMAÐUR GÖTUSMIÐJUNNAR
SÓLARLAG VIÐ GRÍMSSTAÐAVÖR Þeir sem nutu veðurblíðunnar í vesturbæ Reykjavíkur í gær voru ekki sviknir af sýningunni sem
máttarvöldin settu þar á svið. Í fjörunni standa minjar um útgerð grásleppukarla við Skerjafjörð. Lengst var róið frá Grímsstaðavörinni en sextán bátar voru
gerðir þaðan út þegar mest var. Minjar um þessa útgerð verða varðveittar um alla framtíð, samkvæmt ákvörðun borgaryfirvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Rooney mættur aftur
Wayne Rooney skaut
Man. Utd áfram í
Meistaradeildinni í gær.
sport 52