Fréttablaðið - 25.11.2010, Síða 2
2 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
Guðmundur, ertu ekki vanur
samba-töktum úr boltanum?
„Jú, og þó að það sé aðeins öðruvísi
að vera á spariskónum hef ég mikla
trú á sjálfum mér í þessu.“
Knattspyrnukempan Guðmundur
Benediktsson og fleiri valinkunnir kappar
undirbúa nú dansatriði sem sýnt verður á
degi Rauða nefsins 3. desember.
ÍRLAND, AP Írska stjórnin kynnti
í gær aðhaldsaðgerðir í ríkis-
fjármálum til næstu fjögurra
ára, þær harkalegustu í sögu
landsins.
Hugmyndin er að lækka útgjöld
um tíu milljarða evra og hækka
skatta um fimm milljarða evra,
þannig að fjárlagahallinn minnki
samtals um fimmtán milljarða
evra á tímabilinu 2011 til 2014.
Meðal annars missa þúsundir
ríkisstarfsmanna vinnuna og líf-
eyrisgreiðslur og ýmis velferð-
arútgjöld verða lækkuð. Á móti
verður virðisaukaskattur hækk-
aður úr 21 prósenti í 23 prósent
en skattur á fyrirtæki verður þó
óbreyttur í 12,5 prósentum.
Aðhaldsaðgerðir þessar eru í
samræmi við þau skilyrði sem
Evrópusambandið og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn setja fyrir
fjárhagsaðstoð upp á 85 millj-
arða evra.
„Þetta er vegvísir beint
aftur til steinaldar,“ sagði Jack
O‘Connor, formaður SIPTU,
stærsta verkalýðsfélags landsins,
sem ætlar að efna til mótmæla á
laugardag.
- gb
Þúsundir ríkisstarfsmanna missa vinnuna og lífeyrisgreiðslur lækka:
Harkalegt aðhald á Írlandi
BRIAN COWEN Verkalýðsfélög á Írlandi
eru óánægð og ætla að mótmæla á
laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNLAGAÞING Hópur blindra og sjónskertra telur
mannréttindi brotin á sér í aðdraganda og við fram-
kvæmd fyrirhugaðra kosninga til stjórnlagaþings.
Þeir telja sig ekki sitja við sama borð og ófatlaðir
þegar kemur að kynningu frambjóðenda og tilhögun
kosninganna.
Lögfræðingur þeirra, Ragnar Aðalsteinsson,
hefur skrifað Ögmundi Jónassyni, dóms- og mann-
réttindamálaráðherra, bréf þar sem þess er farið á
leit að réttur þeirra sé virtur.
Í bréfinu kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir
nauðsynlegri aðstöðu við kosningarnar. Reyndar
sé hvergi vikið að réttindum blindra og sjónskertra
í lögum um stjórnlagaþing. Hins vegar segir á vef
ráðuneytisins að blindum og sjónskertum sé heimilt
að hafa með sér aðstoðarmann, en auk þess sé talið
nauðsynlegt að kjörstjóri eða annar af hálfu kjör-
stjórnar sé viðstaddur þegar seðillinn er fylltur út.
Umbjóðendur Ragnars gera þá kröfu að þeir geti
kosið í einrúmi í leynilegri kosningu eins og aðrir
og það sé ótækt að hópur fatlaðra þurfi að kjósa
undir eftirliti hins opinbera.
Dómsmálaráðherra sagði í viðtali við Ríkis-
útvarpið í gær að stjórnvöld séu bundin af lögum, en
í framtíðinni verði fundin lausn sem blindir og sjón-
skertir geta sætt sig við. - shá
Hópur blindra segir mannréttindi brotin á sér í kosningum til stjórnlagaþings:
Blindir kjósa undir eftirliti
DYGGUR ÞJÓNN Blindir og sjónskertir telja að mannréttindi
séu brotin á sér vegna framkvæmdar kosninga til stjórnlaga-
þings. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FISKELDI Norðmenn munu í fyrsta
skipti í sögunni ala yfir milljón
tonn af fiski. Framleiðsla norsks
fiskeldis hefur aukist um níu pró-
sent milli ára.
Uppistaðan í eldi Norðmanna
er lax eða 950 þúsund tonn; 50
þúsund tonn eru framleidd af
urriða.
Jon Arne Grøttum hjá norska
sjávarútvegsráðuneytinu telur að
reikna megi með svipuðum vexti
í fiskeldi þegar horft er til næstu
ára. Þetta mat er byggt á því
seiðamagni sem nú þegar hefur
verið sett í sjó.
Útflutningsverðmæti eldisins
nálgast 600 milljarða íslenskra
króna á ári. - shá
Fiskeldi í Noregi árið 2010:
Framleiða yfir
milljón tonn
HEILBRIGÐISMÁL Guðbjartur
Hannesson heilbrigðisráðherra
telur ekki að niðurskurður á
heilbrigðis-
stofnunum
muni valda því
að sjúklingar
komist seinna
undir læknis-
hendur en ann-
ars hefði verið.
Þetta kemur
fram í skrif-
legu svari ráð-
herrans við
fyrirspurn
þingmannsins
Gunnars Braga Sveinssonar.
Í svari ráðherra segir að í
fjárlagafrumvarpinu sé lögð
mikil áhersla á að heilsugæsla
verði áfram öflug og mönnun
lækna óbreytt í heilsugæslu.
Þá sé bráðaþjónusta við lands-
menn í föstum skorðum og ekki
sé ætlunin að hrófla við henni.
Sérhæfðri þjónustu sé aðallega
sinnt á tveimur helstu sjúkra-
húsum landsins og á því séu ekki
fyrirhugaðar breytingar.
- shá
Heilbrigðisráðherra:
Ekki tafir vegna
niðurskurðar
GUÐBJARTUR
HANNESSON
STJÓRNSÝSLA Flytja á alla starf-
semi Vinnumálastofnunar á höf-
uðborgarsvæðinu á einn stað.
Hún er nú á fjórum stöðum og
skapast af því
mikið óhag-
ræði, að sögn
Gissurar Pét-
urssonar for-
stjóra.
Ríkiskaup
hafa auglýst
eftir tilboðum í
1.800 fermetra
skrifstofu-
húsnæði fyrir
stofnunina með „óvenju stóru
móttökusvæði“. Er gerð krafa
um góða staðsetningu miðsvæðis
á höfuðborgarsvæðinu með góðu
aðgengi og nægum bílastæðum.
Flutningarnir hanga saman
við sameiningu ráðuneyta en
nýju velferðarráðuneyti hefur
verið valinn staður í Hafnar-
húsinu, þar sem höfuðstöðv-
ar Vinnumálastofnunar eru til
húsa. - bþs
Vinnumálastofnun á einn stað:
Víkur fyrir vel-
ferðarráðuneyti
GISSUR
PÉTURSSON
MENNTAMÁL Á þeim tæplega sex-
tán árum sem liðin eru síðan
Evrópusambandið fór að styrkja
starfsmenntun og skólaverkefni
hér á landi hafa tæplega fimm
milljarðar króna að núvirði
runnið til ýmiss konar verkefna
hér á landi. Árangur starfsins
verður gerður upp á afmælishá-
tíð í dag.
„Stærstu áhrifin af þessu starfi
hljóta að vera þau að gefa Íslend-
ingum tækifæri til að sækja
nám í öðrum Evrópulöndum,“
segir Dóra Stefánsdóttir, verk-
efnisstjóri hjá Menntaáætlun
Evrópusambandsins.
„Íslendingar hafa fengið mögu-
leika á því að fá styrki til náms,
allt frá því að fara í viku nám-
skeið og upp í að vera heilu árin í
háskólanámi,“ segir Dóra.
Forverar Menntaáætlunarinn-
ar, Leonardo da Vinci og Socrat-
es áætlanirnar, tóku til starfa
árið 1995, en runnu síðar inn
í Menntaáætlunina. Alls hafa
á fjórtánda þúsund Íslendinga
fengið styrki til að fara í nám af
ýmsu tagi.
Verkefnin sem hlotið hafa
styrki hafa verið ótrúlega fjöl-
breytt, segir Dóra. Að þeim hefur
staðið fólk sem starfar á öllum
skólastigum, frá grunnskóla upp
í háskóla, auk endurmenntunar
og fullorðinsfræðslu.
„Það skiptir oft miklu máli
fyrir venjulegt fólk að geta feng-
ið námsstyrk og fara utan til að
læra eitthvað nýtt, sem það gat
kannski ekki áður. Þetta hefur
opnað á ýmiss konar samskipti
og leyft Íslendingum að sjá það
sem aðrir eru að gera,“ segir
Dóra. brjann@frettabladid.is
Fimm milljarðar frá
ESB til menntamála
Á undanförnum 15 árum hafa á fjórtánda þúsund Íslendinga fengið styrki frá
Evrópusambandinu til að fara í starfsþjálfun og nám. Fjölbreytt verkefni styrkt
segir verkefnisstjóri. Fyrirmyndarverkefni verða verðlaunuð í Ráðhúsinu í dag.
Á afmælishátíð Menntaáætlunarinnar sem fram fer í Ráðhúsi Reykja-
víkur í dag verða verkefni sem á einhvern hátt hafa skarað fram úr
verðlaunuð. Hér eru nokkur dæmi um verkefni sem hafa verið tilnefnd:
■ Leikskólinn Dvergasteinn tók þátt í brúðuverkefni ásamt öðrum evrópsk-
um leikskólum. Hver þátttökuskóli var með brúðu sem fór sem nokkurs
konar skiptinemi til leikskóla í öðrum löndum, og deildi svo reynslu sinni
með börnunum.
■ Nemendur í Flataskóla í Garðabæ tóku þátt í söngvakeppninni Schoolo-
vision og unnu keppnina í ár. Skólar frá yfir þrjátíu löndum tóku þátt og
voru sigurvegarar kosnir í beinni útsendingu á netinu.
■ Nemendur í Borgarholtsskóla tóku þátt í samvinnu um nemendaskipti.
Nemendur úr skólanum sóttu nám í eistneskum skóla í sex vikur.
■ Unnið var að þróun námsleiða í tölvufærni fatlaðra og aldraðra með hjálp
yngri kynslóða hjá Sjálfsbjörgu – Landssambandi fatlaðra. Fimm Evrópu-
ríki skiptust á heimsóknum kennara og nemenda.
Brúður og söngvakeppni tilnefnd
Dreifing menntastyrkja ESB
500
400
300
200
100
0
19
95
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
■ Fullorðinsfræðsla
■ Háskólastig
■ Starfsmenntun
■ Grunn- og framhaldsskólastig
SLYS Karlmaður á níræðisaldri
slasaðist alvarlega þegar ekið
var á hann á Sæbraut rétt fyrir
klukkan tvö í gær. Hann var
fluttur meðvitundarlaus á gjör-
gæsludeild Landspítalans í Foss-
vogi, en var ekki í lífshættu,
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu.
Maðurinn sem var á leið yfir
gangbraut við Holtagarða ók
rafskutlu og er talið að hann
hafi ekið í veg fyrir bílinn sem
var á austurleið. Ökumann bíls-
ins sakaði ekki.
- shá
Alvarlegt slys á Sæbraut:
Keyrt á mann
sem ók rafskutlu
FRAKKLAND Eldri konu í París var
bjargað á dögunum en hún hafði
setið föst inni á baðherbergi sínu
í 20 daga. Baðherbergishurðin
læstist og þar sem herbergið er
gluggalaust átti hún engin ráð
með að láta vita af sér.
Nokkrir nágrannar konunnar
fóru að lokum að undrast og
gerðu viðvart. Slökkviliðsmenn
brutust inn í íbúðina og komu
að konunni aðframkominni af
hungri. Það varð henni til lífs að
hafa aðgang að rennandi vatni.
Konan mun á batavegi.
Eldri konu bjargað í París:
Var læst inni á
baði 20 daga
SPURNING DAGSINS