Fréttablaðið - 25.11.2010, Page 4
4 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
ALÞINGI Sex þingsályktunartillögur um
rannsóknir hafa verið lagðar fram á
Alþingi síðan það kom saman 1. október.
Snúa þær að einkavæðingu bankanna,
Icesave, Íbúðalánasjóði, starfsháttum í
ráðuneytum, athöfnum þingmanna í bús-
áhaldabyltingunni og stuðningnum við
innrásina í Írak.
Tillögurnar eru misjafnlega á vegi
staddar; sumum hefur verið vísað til
nefndar en aðrar eru óræddar. Alþingi
samþykkti í lok september þingsályktun
um viðbrögð þess við skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis. Í henni segir að á
vegum Alþingis eigi að rannsaka starf-
semi lífeyrissjóða og fall sparisjóða auk
stjórnsýsluúttektar á Fjármálaeftirlitinu
og Seðlabanka Íslands.
Flytja þarf sérstök þingmál um hverja
rannsókn og úttekt. Það hefur ekki verið
gert. bjorn@frettabladid.is
Alþingismenn vilja að efnt
verði til fjölda rannsókna
Tillögur að sex rannsóknum liggja fyrir Alþingi. Þingið samþykkti í september að stofna beri til þriggja
rannsókna og úttekta. Þingmál til að uppfylla samþykktina hafa ekki enn verið flutt.
UNDIR UMRÆÐUM Ekkert bólar á sérstökum þingmálum um rannsóknir á grundvelli samþykktar þingsins frá því í lok
september. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Icesave
Sérstök rannsóknarnefnd
rannsaki embættisfærslur
og ákvarðanir stjórnvalda og
samskipti þeirra við bresk og
hollensk stjórnvöld vegna inn-
stæðna í útibúum Landsbank-
ans á EES.
Fyrsti flutningsmaður er
Sigurður Kári Kristjánsson
Sjálfstæðisflokki og meðflutn-
ingsmenn eru aðrir þingmenn
flokksins.
Einkavæðing bankanna
Einkavæðing og sala hluta-
bréfa í Landsbankanum og
Búnaðarbankanum og tengd
málefni verði rannsökuð.
Forseti Alþingis skipi þriggja
manna nefnd sjálfstæðra aðila
til verksins. Hún hafi sömu
heimildir til skýrslutöku og
gagnaöflunar og rannsóknar-
nefnd Alþingis hafði.
Fyrsti flutningsmaður er
Þórunn Sveinbjarnardóttir,
þingflokksformaður Samfylk-
ingarinnar. Aðrir þingmenn
flokksins, utan ráðherra, eru
meðflytjendur.
Íbúðalánasjóður
Rannsókn verði gerð á
starfsemi Íbúðalánasjóðs
frá aðdraganda breytinga á
fjármögnun og lánareglum
hans sem hrint var í fram-
kvæmd 2004. Í kjölfarið verði
stefna og starfsemi sjóðsins
endurskoðuð.
Fyrsti flutningsmaður er
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
Samfylkingunni. Þrír samflokks-
menn hennar eru á málinu,
auk tveggja úr Sjálfstæðisflokki
og einum úr Hreyfingunni.
Íraksmálið
Alþingi kjósi nefnd fimm
þingmanna til að rannsaka
aðdraganda og ástæður þess
að ríkisstjórnin lýsti yfir stuðn-
ingi við innrásina í Írak 2003.
Nefndin fái vald samkvæmt
ákvæði stjórnarskráinnar um
rannsóknarnefndir þingsins.
Allir þingmenn VG og Sam-
fylkingarinnar, utan ráðherra,
eru flutningsmenn að málinu,
auk þingflokks Hreyfingarinnar
og tveggja þingmanna Fram-
sóknarflokksins, þeirra Eyglóar
Harðardóttur og Höskuldar Þór-
hallssonar. Árni Þór Sigurðsson
VG er fyrsti flutningsmaður.
Starfshættir í ráðuneytum
Þriggja manna nefnd rannsaki
starfshætti forsætisráðuneytis,
fjármálaráðuneytis og við-
skiptaráðuneytis frá ársbyrjun
2007 til loka september
2010. Rannsóknin beinist að
ákvörðunum og atburðum sem
tengjast falli bankanna.
Þingmenn Hreyfingarinnar
flytja málið.
Búsáhaldabyltingin
Nefnd þriggja sérfræðinga á
sviði sakamálaréttarfars, refsi-
réttar og stjórnskipunaréttar
rannsaki hvort athafnir ein-
stakra þingmanna í búsáhalda-
byltingunni hafi brotið í bága
við lög, og leggi eftir atvikum
mat á hvort þeir hafi bakað sér
refsiábyrgð.
Gunnar Bragi Sveinsson,
þingflokksformaður Fram-
sóknarflokksins, er fyrsti
flutningsmaður og með honum
á málinu eru tveir samflokks-
menn hans.
Rannsóknirnar sem þingmenn hafa lagt til að ráðist verði í
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
STJÓRNMÁL Félag atvinnurekenda geldur var-
hug við frumvarpi fjármálaráðherra um að
heimilt verði að bjóða út
innkaup í útlöndum. Í grein-
argerð þess er vísað til
áhuga heilbrigðisráðuneyt-
isins og Landspítala á að
kanna möguleika á sameig-
inlegum lyfjaútboðum með
hinum Norðurlöndunum.
Almar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Félags
atvinnurekenda, segir að
með frumvarpinu sé opnað
fyrir mjög almenna heimild til að útfæra opin-
ber innkaup í samvinnu við erlendar innkaupa-
stofnanir. Það þýði að þau færist úr landi.
„Þetta veldur okkur áhyggjum. Það eru til
fyrirtæki sem hafa um helming tekna sinna
af viðskiptum við ríkið og svona opin heim-
ild getur haft mikil neikvæð áhrif á þau, sem
gæti leitt til fækkunar starfa,“ segir Almar.
Frumvarpið geri ráð fyrir að um viðskiptin
gildi lög viðkomandi ríkis. Íslenskri löggjöf sé
því vikið til hliðar. Þá hafi fáir íslenskir aðil-
ar tök á að taka þátt í sameiginlegum útboð-
um ríkja og margir dæmist því úr leik.
Markmið frumvarpsins virðist fyrst og
fremst vera að lækka lyfjakostnað. Í kostnað-
armati fjármálaráðuneytisins segir að hvert
prósent í lækkuðu innkaupsverði ségreindra
heilbrigðisvara nemi 100 milljóna útgjalda-
lækkun.
Almar kveðst vitaskuld bera virðingu fyrir
því markmiði en hugsa þurfi málið til enda.
Þó sparast kunni við sjálf innkaupin geti auk-
inn kostnaður, til dæmis, vegna byrgðahalds
og flutninga lagst ofan á. Ekki sé vikið að
heildaráhrifum í kostnaðarmatinu. - bþs
GENGIÐ 24.11.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,3942
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,55 115,09
180,37 181,25
152,41 153,27
20,44 20,56
18,723 18,833
16,351 16,447
1,3739 1,3819
176,38 177,44
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Fyrirsögn fréttar af húsnæðismálum
Héraðsdóms Reykjavíkur í blaðinu í
gær var röng eins og sjá mátti af efni
fréttarinnar.
LEIÐRÉTTING
Reykjavík Akureyri
20% afsláttur af völdum rjúpnaveiðivörum.Síðustu dagarnir.
RJÚPUNNI
Ekki missa af
ellingsen.is
SAMGÖNGUR Kristján Ólafsson,
bóndi á Seljalandi, segir að land-
eigendur við fljótið telji að fyrir-
hugaður flutningur Markarfljóts
til austurs vegna áhrifa á Land-
eyjahöfn muni hafa mikil áhrif
á svæðinu. Í viðtali við eyjar.net
segir Kristján að á frostavetrum
hafi fljótið sprengt sér leið aust-
ur. „Nú er verið að hjálpa til við
það af mannavöldum. Þetta eru
náttúruhamfarir.“
Kristján segir að fólk hafi
orðið að flýja bæi sína á árum
áður vegna þessa. „Þarna er
tekin skyndiákvörðun, það þarf
að skoða afleiðingarnar miklu
betur.“ - shá
Bændur við Markarfljót:
Tilfærsla fljóts-
ins varhugaverð
LANDEYJAHÖFN Hugmyndin er að beina
Markarfljóti til austurs vegna vandræða
við höfnina. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
8°
1°
0°
3°
3°
0°
0°
23°
5°
15°
7°
28°
-8°
2°
12°
-2°Á MORGUN
3-8 m/s.
Hvassara SA-til.
LAUGARDAGUR
Norðlæg eða
breytileg átt.
0
-3
-4
0
-4
0
-3
1
-2
4
-6
6
8
6
6
4
8
8
10
5
4
6
-2
-3
-3
-4
-5 -3
-5 -6
-5
-5
SVALT Í VEÐRI
Þessa dagana er
heldur svalt í veðri.
Í bjartviðri kólnar
oft töluvert enda
streymir varmi
óhindraður frá
jörðunni þegar ský-
in skortir. Á morg-
un og laugardaginn
má búast við tölu-
verðu frosti. Yfi rleitt
verður bjart S-til
en þungbúnara og
stöku él N- og A-til.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
Herir enn í viðbragðsstöðu
Herir Kóreuríkjanna eru enn í við-
bragðsstöðu og bandarískt flugmóð-
urskip er á leiðinni þangað ásamt
fylgdarskipum. Bandaríska flotadeild-
in mun hefja æfingar með suður-
kóreska flotanum. Barack Obama,
forseti Bandaríkjanna, ítrekaði enn
í dag að Bandaríkin myndu standa
við skuldbindingar sínar um að verja
Suður-Kóreu fyrir öllum árásum.
KÓREURÍKIN
Frumvarp fjármálaráðherra gerir ráð fyrir að heimilt verði að bjóða út innkaup í útlöndum:
Innflytjendur óttast um hag sinn
ALMAR
GUÐMUNDSSON
Það eru til fyrirtæki sem hafa
um helming tekna sinna af við-
skiptum við ríkið og svona opin heimild
getur haft mikil neikvæð áhrif á þau.
ALMAR GUÐMUNDSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI FÉLAGS ATVINNUREKENDA.