Fréttablaðið - 25.11.2010, Page 12
12 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
Stígur
Helgason
stigur@frettabladid.is
Trausti
Hafliðason
trausti@frettabladid.is
FRÉTTASKÝRING: Bætur til meðferðarheimilisins Árbótar
Hugsanlegt er að ríkið hafi
bakað sér bótaskyldu með
greiðslu 30 milljóna króna
bóta til meðferðarheimil-
isins Árbótar í Þingeyjar-
sýslu. Lögfræðingur Götu-
smiðjunnar segir að samið
hafi verið við skjólstæðing
sinn á allt öðrum forsendum
í sumar og ætlar með málið
lengra á grundvelli jafn-
ræðisreglu stjórnarskrár-
innar.
Í lok júnímánaðar var þjónustu-
samningi Barnaverndarstofu við
meðferðarheimilið Götusmiðjuna
rift vegna ásakana um að Guðmund-
ur Týr Þórarinsson (Mummi) hefði
haft í hótunum við börn sem voru
í vistun á heimilinu. Hinn 15. júlí
var síðan undirritaður samningur
um starfslok heimilisins, sem fól í
sér að Götusmiðjan fékk tæpar 20
milljónir í bætur frá Barnavernd-
arstofu sem auk þess lagði út um
10 milljónir vegna ógreiddra launa
starfsfólks Götusmiðjunnar.
Gísli Kr. Björnsson, lögfræð-
ingur Götusmiðjunnar, telur að
óeðlilega hafi verið staðið að lokun
Götusmiðjunnar. Meintar hótanir
Guðmundar Týs í garð ungmenn-
anna hafi til að mynda aldrei verið
kærðar til lögreglu þrátt fyrir að
þess hafi verið krafist af Guð-
mundi Tý sjálfum. Af þeim sökum
hafi aldrei verið skorið úr því hvort
ásakanirnar hafi átt við rök að
styðjast eða ekki.
Þetta vekur upp spurningar því
1. ágúst barst yfirlýsing frá Guð-
mundi Tý og Braga Guðbrandssyni
um að sættir hefðu náðst. Í yfirlýs-
ingunni kom fram að samkomu-
lagið um starfslok Götusmiðjunn-
ar hefði verið gert í góðri sátt og
fæli í sér farsælar málalyktir fyrir
alla aðila. Gísli segir að forsendan
fyrir starfslokasamningnum hafi
verið sú að Guðmundur Týr skrif-
aði undir þessa yfirlýsingu þótt það
hafi verið honum þvert um geð.
Gísli segir að í ljósi umfjöllun-
ar Fréttablaðsins undanfarna daga
af því hvernig staðið hafi verið að
samningum um starfslok meðferð-
arheimilisins Árbótar hyggist Guð-
mundur Týr nú leita réttar síns.
Samningurinn við Árbót hafi verið
gerður á nákvæmlega sama tíma
og verið var að semja um starfs-
lok Götusmiðjunnar. Aðferðin við
samningana hafi hins vegar verið
gjörólík.
„Mér finnst þetta óeðlileg stjórn-
sýsla af ráðherrunum og Barna-
verndarstofu, þó af ólíkum ástæð-
um,“ segir Gísli. „Mér finnst
óeðlilegt að ráðherrarnir blandi
sér inn í annað málið en ekki hitt.
Þeir hefðu í rauninni átt að stíga
inn í bæði málin vegna þess að það
voru sömu aðstæður uppi í mál-
unum. Að sama skapi finnst mér
óeðlilegt af Braga að klára samn-
inginn við okkur vitandi vits að það
er verið að gera öðruvísi samning
við annan aðila í máli sem er alveg
eins. Jafnræðisreglan er því aug-
ljóslega ekki
virt.“
Gísli segist
hafa kallað eftir
því að Árni Páll
Árnason, þáver-
andi félagsmála-
ráðherra, gengi í
málið. Það hafi
verið gert strax
í lok júní. Ekkert
svar hafi borist
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Spurður hvort Árna Páli hafi
verið stætt á því að blanda sér í
málið, þar sem Barnaverndarstofa
sé sjálfstæð stjórnsýslustofnun
segir Gísli: „Af hverju virti hann
það þá ekki í máli Árbótar?“ Árni
Páll hafi verið farinn að beita sér í
máli Árbótar löngu áður en málið
hafi formlega verið komið á for-
ræði félagsmálaráðuneytisins.
„Það var full ástæða fyrir Árna
Pál að stíga inn í samningaviðræð-
urnar við okkur,“ segir Gísli því
samningaviðræðurnar við Barna-
verndarstofu hafi lítið gengið.
Gísli segir að afgreiðsla stjórn-
valda á Árbótarmálinu annars
vegar og Götusmiðjumálinu hins
vegar endurspegli brotalamir
innan stjórnsýslunnar. Í Árbótar-
málinu hafi ráðherrar beitt sér
mjög ákveðið fyrir því að nið-
urstaða næðist en ekki í Götu-
smiðjumálinu. Árbót hafi af þeim
sökum fengið greiddar hærri
bætur því auk þess að fá 48 millj-
ónir fyrir að starfa út sex mán-
aða uppsagnarfrest hafi heimilið
fengið 30 milljónir króna í bætur.
Götusmiðjan hafi þurft að hætta
strax starfsemi og því ekki fengið
greiddan uppsagnarfrest heldur
aðeins tæpar 20 milljónir króna í
bætur.
Á grundvelli alls þessa telur
Gísli ljóst að jafnræðisreglan hafi
ekki verið virt. Hann geti ekki
betur séð en að ríkið hafi bakað
sér bótaskyldu með þessari ólíku
málsmeðferð.
„Eftir helgi munum við skjóta
málinu til umboðsmanns Alþing-
is og senda öllum þingmönnum
erindi þess efnis að mál Götu-
smiðjunnar verði tekið upp aftur,“
segir Gísli. „Mér finnst ekkert
óeðlilegt við það að Alþingi hlut-
ist til um það að réttindi þegnanna
séu virt af stjórnsýslunni.“
Gísli segir ekki ákveðið hversu
háar bætur Götusmiðjan muni
fara fram á verði málið tekið upp
á ný.
„Eðlilegt er að kröfur Árbótar
um fastan útlagðan kostnað séu
hafðar til viðmiðunar og líka það
að það var maður að hætta starf-
semi sem hann hafði sinnt í tólf
ár.“
Spurður hvort ekki sé nauðsyn-
legt að fara í skaðabótamál fyrir
dómstólum til að sækja bætur
segir Gísli: „Ef við fáum eins fyr-
irgreiðslu hjá þingmönnum og
ráðherrum og Árbót fékk þá á
þess ekki að þurfa.“
Götusmiðjan vill bætur líkt og Árbót
GÖTUSMIÐJAN Leiðir þeirra Braga Guðbrandssonar, forstjóra Barnaverndarstofu, og Guðmundar Týs Þórarinssonar, fyrrverandi
forstöðumanns Götusmiðjunnar, skildu síðastliðið sumar þegar Götusmiðjunni var lokað.
Árbótarmálið í hnotskurn
Fréttablaðið hefur undanfarna þrjá daga sagt frá því hvernig Árni Páll
Árnason, þáverandi félagsmálaráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra ákváðu að greiða eigendum meðferðarheimilisins Árbótar
í Þingeyjarsýslu þrjátíu milljónir króna í bætur vegna lokunar heimilisins.
Þetta var meðal annars gert þvert gegn vilja Braga Guðbrandssonar,
forstjóra Barnaverndarstofu, og vegna þrýstings frá þingmönnum Norð-
austurkjördæmis. Fjármálaráðherra segir að sanngirnissjónarmið hafi
ráðið för. Barnaverndarstofa hefur þegar greitt tólf milljónir. Ráðgert er
að greiða þær átján milljónir sem eftir standa þegar Alþingi hefur afgreitt
fjáraukalög.
Þegar Braga var tilkynnt um að til stæði að greiða eigendum Árbótar
30 milljónir í bætur mótmælti hann því enda mat Barnaverndarstofa
það svo að uppsagnarákvæðið í samningnum við Árbót hefði verið skýrt
og því bæri ekki greiða eigendum Árbótar meira en sex mánaða upp-
sagnarfrest. Í bréfi sem blaðið hefur undir höndum segist Bragi ekki telja
það „samræmast góðri og vandaðri stjórnsýslu að gengið sé frá málinu
án þess að leitað sé sjónarmiða ríkislögmanns um greiðsluskyldu ríkis-
sjóðs vegna uppsagnar samningsins”.
Ráðherrarnir töldu ekki ástæðu til að leita álits ríkislögmanns. Í Frétta-
blaðinu í gær var Árni Páll spurður hvers vegna það hefði ekki verið
gert. „Ég er lögfræðingur sjálfur og get alveg lesið hvað stendur í þessu
uppsagnarákvæði. Það er ekki ótvírætt - langt frá því.”
GÍSLI KR.
BJÖRNSSON
Torfastaðir fengu þrettán milljónir
Árni Magnússon, þáverandi félagsmálaráðherra, gerði
samning um að greiða rekstraraðilum meðferðarheim-
ilisins Torfastaða þrettán milljónir króna í bætur fyrir
lokun heimilisins árið 2005, eða tæpa 21 milljón að
núvirði. Þetta kom fram í Morgunblaðinu í gær. Þar
sagði jafnframt að fyrir utan Árbót í Aðaldal væru Torfa-
staðir eina meðferðarheimilið sem fengið hefði bætur
eftir uppsögn þjónustusamnings.
Þetta er athyglisvert í ljósi þess að á þeim tíma var
leitað eftir áliti ríkislögmanns á því hvort ríkinu bæri
skylda til að greiða eigendum Torfastaða bætur. Niðurstaða hans var sú að
þar sem samningnum hefði verið sagt upp með lögmætum hætti bæri að
hafna öllum kröfum um bætur.
Hjálpum þeim
sem verst
eru settir
Næst þegar þú verslar geturðu keypt
nauðsynjar sem ekki þurfa að vera í kæli
og gefið þeim sem þurfa á hjálp að
halda. Þú skilur vörurnar eftir í merktri
kerru við útganginn og Hjálparstarf
kirkjunnar kemur aðstoð þinni til
skila. Aukapokanum má líka skila beint
til okkar. Takk!
Þessar verslanir eru með:
Krónan – allt höfuðborgarsvæðið
Bónus – allt höfuðborgarsvæðið
og Akureyri
Nettó – Mjódd, Hverafold, Akureyri
og Reykjanesbær
Kostur – Kópavogur
Hagkaup – allt höfuðborgarsvæðið
og Akureyri