Fréttablaðið - 25.11.2010, Síða 34
25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR4
Tískuspámenn sem leggja í vana sinn að greina strauma og stefnur tísk-unnar reyna sífellt að
finna upp hjólið þó ekki væri
nema til þess að lifa af í hverful-
um fjölmiðlaheimi. Þess vegna
má reglulega lesa í tískublöð-
um allt um það hvernig fara eigi
að því að vera „inn“ á hverjum
tíma, sem að sjálfsögðu getur
ekki verið það sama
og síðast.
Í vetur hafa sér-
fræðingarnir fundið
út að naglalakk sé
það sem skipti mestu
fyrir heildarútlit-
ið og í gegnum það
megi jafnvel lesa
persónuleika hverrar
konu. Lakkið á helst
að vera áberandi,
til dæmis í sterkum
bleikum litum, skær-
grænu, andarbláu
eða hárauðu. Nagla-
lakk er í vetur aðal
„fylgihluturinn“ og hlýtur að
teljast með þeim ódýrari.
Reyndar er merkilegt að
skoða sögu naglalakks í dag-
legri tísku en í upphafi innihélt
það meðal annars nitrocellu-
lose sem, ef blandað er saman
við nitroglycerine, myndar
dínamít og var ekki ráðlegt að
nota nálægt eldi. Naglalakkið
er upprunnið í Bandaríkjunum
af frönskum snyrti sem horfði
á fallega lakkaðar bifreiðar í
kringum 1930. Hún fékk þá flugu
í höfuðið að neglur hlytu að vera
sérlega glæsilegar lakkaðar eins
og bílar. Hollywoodstjörnur tóku
lakkið strax í sína þjónustu sem
þótti ótrúlega flott. Stjörnur eins
og Mae West og Rita Hayworth
og seinna Marlene Dietrich voru
myndaðar með fallegar, rauðar
neglur og langar sígarettur.
Það er merkilegt að naglalakkið
komst í tísku á kreppuárunum
þegar almenningur var dapur og
hafði lítið milli handanna. Þetta
var því ódýr lausn til að gefa líf-
inu lit. Merkilegt að enn á ný, í
miðri heimskreppunni, virðist
naglalakk í áberandi
litum, með pallíettum
og jafnvel álímdar
neglur úr plasti með
alls kyns skrauti,
vera í sókn í götu-
tískunni. Neglurnar
geta verið með sem-
ilíusteinum, blóma-
mynstri og slagorð-
um eins og „Yes
we can“, svo dæmi
sé nefnt. Spurning
hvort þarna sé enn á
ferðinni ódýr aðferð
til að hressa upp á
annars litlaust útlit.
Í kreppunni unnu konur
hörðum höndum til dæmis
í verksmiðjum og hend-
ur þeirra báru þess merki.
Hvítar hendur með rauðum
nöglum þóttu því afskaplega
„chic“. Í dag eru lökkin eins
og varalitir og augnskuggar,
tugir nýrra lita í boði á hverri
árstíð.
Franskur málari og bókarhöf-
undur, Camille Saint-Jacques,
greinir förðunartísku í bók sem
hún hefur skrifað. Hún segir
neglur leifar af klóm frumdýrs-
ins sem mannskepnan hafi tekið
upp á að setja í forgrunn með
málningu sem tælingartól.
bergb75@free.fr
Pallíettur og Yes we can-plastneglur
Hönnuður Loewe, Stuart Vevers,
lítur vor og sumar næsta árs
björtum augum.
Bjartir og sumarlegir litir voru
allsráðandi á tískusýningu Loe-
wes á tískuvikunni í París sem
haldin var nú á haustmánuð-
um. Hvort sem um var að ræða
pils eða buxur, varalit eða augn-
skugga, tösku eða skó, var lita-
spjald Stuarts Vevers, hönnuðar
Loewe, stútfullt af björtum litum
sem ættu að geta komið hverjum
sem er í sumarskap.
Vevers lagði mikla
áherslu á fylgihluti
í þessari nýjustu
línu sinni og voru
töskur Vevers í
senn klassískar og
skemmtilegar,
með elegant
sniði í glað-
legum
litum. Skór
Vevers
voru með
litlum hæl
sem setti
sportleg-
an svip á
klæðnað
fyrirsætn-
anna, sem
í þet t a
skiptið
áttu ekki
í erfið-
leikum
með að
þramma
tískupall-
ana vegna fóta-
búnaðarins.
- jbá
Bjartur
Loewe
Bjartir litir eru það sem
koma skal næsta vor
hjá Loewe.
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18. Lau. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
TVEIR ALVEG
HRIKALEGA
FLOTTIR
teg. 100161 - létt fylltur og virkilega
þægilegur í BC skálum á kr. 4.350,-
buxur í stíl á kr. 1.990,-
teg. 7273 - mjög fallegur blúnduhaldari
í BC skálum á kr. 4.350,-
buxur í stíl á kr. 1.990,-
SKARTHÚSIÐ
LAUGAVEGI 44
SÍMI 562 24 66
Tilvalin jólagjöf
Ný sending af vinsælu
hringtreflunum - mjúkir,
hlýir og flottir. Einnig mikið
úrval af húfum, treflum, vett-
lingum, grifflum, hnésokkum
og legghlífum.
Barnafatnaður frá Ej sikke lej , Mini A
Ture, Bifrost og Danefae. Sokkabuxur
frá Melton og íslensku merkin Rendur
og Sunbird .
20% afsláttur á öllum vörum frá Ej
sikke lej, Mini A Ture og Bifrost.
Laugavegi 61 - 101 Reykjavík - S: 552 7722
• Kjólar
• Kjólabolir
• Bolir
• Peysur
• Pils
• Leggings
• Buxur
• Jakkar
• Yfirhafnir
• Skart og klútar
Full búð af nýjum
og flottum fötum
fyrir flottar konur
Stærðir 40-60
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI
FRÉTTIR
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París