Fréttablaðið - 25.11.2010, Page 36
25. NÓVEMBER 2010 FIMMTUDAGUR2 ● em kvenna 2010
Nú fögnum við þeim árangri
að kvennalandsliðið okkar er
að taka þátt í stórmóti í fyrsta
sinn. Þessu hefur verið beðið
eftir, en það kom ekki af sjálfu
sér.
Stórstígar framfarir hafa
átt sér stað í kvennaboltanum
á undanförnum árum auk þess
sem mikill metnaður er hjá
stúlkunum. Einnig hafa þær
gott bakland á áhorfendabekkj-
unum og margar eiga foreldra
sem hafa fylgt þeim öll árin í
boltanum.
Fyrir fjórum árum var stefna
HSÍ sett á stórmót og reynt að
skapa umgjörð sem drægi að
stuðningsaðila sem væru til í
að standa við bakið á átakinu.
Fyrirtækin Lyfja, Míla og Ís-
landspóstur brugðust vel við
og svara því hvert fyrir sig hér
í blaðinu af hverju þau eru með.
Þá var VR stuðningsaðili fyrstu
tvö árin og ber að þakka það.
Umfjöllun hefur aukist jafnt
og þétt í fjölmiðlum og fylgja
Fréttablaðið, Morgunblaðið og
RÚV okkur á EM. Það er já-
kvætt fyrir sjálfstraust lítill-
ar þjóðar að stimpla sig enn
einu sinni inn á meðal þeirra
bestu, þar viljum við Íslending-
ar ávallt vera.
Með þessu blaði er reynt að
veita smá innsýn í handbolta-
heiminn og er það von okkar að
lesturinn veiti ánægju um leið
og við þökkum þeim fjölmörgu
sem studdu verkefnið.
Áfram Ísland!
Við viljum allt-
af vera á meðal
þeirra bestu
Landliðsnefnd kvenna Frá vinstri:
Guðbjörg Jónsdóttir, Þorbjörg Gunn-
arsdóttir og Aðalheiður Pálmadóttir.
Sitjandi er Árni Þór Árnason. Á
myndina vantar Helgu H. Magnús-
dóttur og Ásmund Jónsson.
S elfyssingurinn Þórir Her-geirsson er þjálfari eins allra besta landsliðs heims,
norska landsliðsins, sem á undan-
förnum ellefu árum hefur orðið
heims-, Evrópu- og Ólympíumeist-
ari. Þórir var lengi aðstoðarþjálf-
ari Marit Breivik sem náði þessum
glæsilega árangri með liðið en tók
við sem aðalþjálfari þegar Breivik
hætti í fyrra.
Þóri tókst að koma liðinu á verð-
launapall á sínu fyrsta stórmóti er
Norðmenn unnu til bronsverðlauna
á HM í Kína í fyrra. Nú stefnir
hann á gull enda liðið á heimavelli
að þessu sinni. Evrópumeistara-
mótið, sem hefst hinn 7. desember
næstkomandi, fer fram í Noregi og
Danmörku.
„Undirbúningurinn gengur
þokkalega. Maður vildi auðvitað
hafa alla leikmenn fríska en þannig
er það yfirleitt ekki í þessum
bransa,“ segir Þórir í samtali við
Fréttablaðið. „Það er ávallt áskor-
un að koma liðinu saman og gera
ráðstafanir vegna heilsufars leik-
manna og fleira í þeim dúr. En ef
okkur tekst að halda góðum dampi
á liðinu eigum við möguleika á að
fara langt og koma liðinu í baráttu
um verðlaun. En að spila á heima-
velli getur verið eins og tvíeggja
sverð. Hann getur reynst dýrmæt-
ur en einnig hættulegur því kröf-
urnar vilja verða enn meiri þegar
leikið er heima. Við höfum undir-
búið okkur eins vel og kostur er og
tökum því sem verða vill.“
ÁTJÁN VERÐLAUN Á 24 ÁRUM
Norðmenn eru vanir mikillar vel-
gengni hjá landsliði sínu. Það er
ekki furða enda hafa norsku stúlk-
urnar fjórum sinnum orðið Evr-
ópumeistarar í þau átta skipti sem
keppnin hefur verið haldin. Þar
af hafa þær fagnað sigri á síðustu
þremur mótum í röð. Reyndar
hefur þeim aðeins einu sinni mis-
tekist að komast á verðlaunapall á
þessum átta mótum en það var árið
2000. Annars er árangurinn fjögur
gull, tvö silfur og eitt brons.
Þótt ótrúlega megi virðast hafa
Norðmenn alls átján sinnum unnið
til verðlauna á stórmótum í hand-
bolta síðustu 24 árin. Þórir segist
þó ekki leiða hugann mikið að því
og er ekki hræddur við að takast á
við þær miklu kröfur sem gerðar
eru til liðsins.
TEK ÁSKORUNINNI
„Fólk er góðu vant og enginn spyr
hvort önnur lið séu góð eða ekki.
Það er krafa um að vera í toppbar-
áttunni ég hefði ekki tekið að mér
þessa stöðu ef ég hefði ekki verið
tilbúinn að takast á við það,“ segir
Þórir. „Þess fyrir utan er mikill
metnaður í leikmannahópnum og
við viljum öll ná langt. Við höfum
þó inni á milli lent í mótum þar sem
við höfum lent í basli. Þetta gengur
því ekki alltaf eins og í sögu.“
Norska landsliðið hefur tekið
nokkrum breytingum síðan liðið
varð bæði Evrópu- og Ólympíu-
meistari árið 2008. „Um helming-
urinn af liðinu er eftir – góður
kjarni 5-6 lykilleikmanna sem eru
í kringum þrítugsaldurinn. Þess
fyrir utan erum við með yngri
leikmenn, þar af þrjár sem urðu
heimsmeistarar í flokki U-20 liða
nú í sumar. Ég myndi ekki segja
að um kynslóðaskipti sé að ræða
því við viljum frekar gera þetta
smám saman. Handbolti er reynsl-
uíþrótt og því hættulegt að missa
of marga sterka leikmenn á einu
bretti,“ segir Þórir.
MARGAR STERKAR ÞJÓÐIR
Hann segir stefna í jafna og spenn-
andi keppni á EM. „Það eru mörg
góð lið að keppa og það er mun meiri
breidd í alþjóðlegum bolta í dag en
fyrir 10-15 árum. Það eru mörg lið
sem geta blandað sér í toppbarátt-
una. Það sést best á því að allir riðl-
arnir eru gríðarlega sterkir.“ Nor-
egur og Rússland hafa átt mestri
velgengni að fagna í gegnum árin
og þá hafa Ungverjar og Frakkar
einnig oft blandað sér í baráttuna
um verðlaun. Þórir á von á að það
verði einnig tilfellið nú, en að fleiri
lið geti blandað sér í slaginn. „Þjóð-
verjar eru með skemmtilegt lið sem
þeir hafa verið að yngja upp síðustu
árin, Spánverjar og Rúmenar eru
líka með geysisterk lið og þá hafa
Svíar tekið miklum framförum og
hafa verið við það að slá í gegn á
stórmóti. Danirnir geta líka orðið
hættulegir ef allir þeir leikmenn
sem hafa verið að glíma við meiðsli
geta verið með. Svo eru það þjóð-
irnar frá Balkanskaga – þær geta
strítt og eyðilagt fyrir mörgum þótt
þær verði ekki endilega með í topp-
baráttunni,“ segir Þórir. „Ég á von
á afar erfiðri keppni fyrir okkur.“
eirikur@frettabladid.is
Óhræddur við kröfurnar í Noregi
● Þórir Hergeirsson er landsliðsþjálfari Noregs, eins allra sterkasta landsliðs heims, sem spilar nú á heimavelli. Norðmenn
hafa alls fjórum sinnum orðið Evrópumeistarar og hafa einokað titilinn síðustu sex árin.
● ÆTLAÐI BARA AÐ VERA HÉR Í 2-3 ÁR „Upphaflega ætlaði
ég bara að vera hér úti í 2-3 ár en þau eru nú orðin 24,“ segir Þórir
Hergeirsson sem hefur náð langt sem handknattleiksþjálfari í Noregi á
þessum tíma.
„Ég er Selfyssingur og tók þátt í því að byggja upp handboltastarfið þar
frá því að íþróttahúsið var byggt árið 1978. Ég spilaði með
yngri flokkunum og í næstefstu deild með meistaraflokki
félagsins. Svo ákvað ég að fara í nám í Íþróttaháskólanum í
Ósló,“ segir Þórir. Hann hafi fljótlega eftir það farið á fullt í
þjálfuninni.
„Ég spilaði með til að byrja með en hætti því þó fljót-
lega og hef stundum séð eftir því. En ég var nú aldrei í
neinum landsliðsklassa og þá fannst mér alveg eins
gott að einbeita mér að þjálfuninni.“
Þórir hóf störf hjá norska handboltasamband-
inu árið 1994 eftir að hafa þjálfað félagslið í
nokkur ár, þar af karlalið Elverum í fimm ár.
Hann á norska eiginkonu og þrjú börn á aldrin-
um 10-17 ára. Og það er ekki útlit fyrir að hann
sé á heimleið í bráð.
„Ég reyndi nú á sínum tíma að plata konuna
með mér heim til Íslands. En það varð ekkert úr
því enda höfum við það mjög gott hér.“
ÁRANGUR NOREGS
Árangur Norðmanna á stórmótum
undanfarinn áratug:
EM 2000 6. sæti
Ólympíuleikarnir 2000 Brons
HM 2001 Silfur
EM 2002 Silfur
HM 2003 6. sæti
EM 2004 Gull
HM 2005 9. sæti
EM 2006 Gull
HM 2007 Silfur
EM 2008 Gull
Ólympíuleikarnir 2008 Gull
HM 2009 Brons
Þórir Hergeirsson hefur stýrt norska landsliðinu í rúmt ár en var áður aðstoðarmaður Marit Breivik til fjölda ára. NORDIC PHOTOS/AFP
Útgefandi: HSÍ
Ábyrgðarmaður: Árni Þór Árnason
Umsjónarmaður auglýsinga: Benedikt
Freyr Jónsson s. 512 5411
Þórir Hergeirsson er ekki eini ís-
lenski þjálfarinn í Noregi en æ
fleiri íslenskir handknattleiks-
þjálfarar hafa ákveðið að freista
gæfunnar í Noregi á síðustu árum.
Nægir þar að nefna menn eins
og Ágúst Jóhannsson, fyrrum
landsliðsþjálfara kvenna, Gunnar
Magnússon, aðstoðarmann karla-
landsliðsins, Alfreð Finnsson,
fyrrum þjálfara Gróttu, sem og þá
Ólaf Sveinsson og Halldór Harra
Kristjánsson.
Þá spila einnig fjölmargir ís-
lenskir handknattleiksmenn í
Noregi.
Fleiri þjálfa
í Noregi