Fréttablaðið - 25.11.2010, Side 37

Fréttablaðið - 25.11.2010, Side 37
Við ákváðum að styðja stelpurnar í handboltanum til þess auka tækifæri þeirra til þess að sýna getu sína. Meirihluti starfsmanna og viðskiptavina Lyfju eru líka konur svo okkur þótti passa vel að styðja við konur. Stelpurnar hafa sýnt hvað í þeim býr og við erum afar stolt af árangri þeirra. Þorgerður Þráinsdóttir Forstöðumaður verslana- og markaðssviðs. Míla leggur áherslu á að fyrirtæki taki samfélagslega ábyrgð. Stefna Mílu er að taka virkan þátt í uppbyggingu á íslensku þjóðfélagi. Frá upphafi ákvað Míla að leggja lóð sitt á vogarskálarnar með stuðningi við uppbyggingu afreksíþrótta á Íslandi með samstarfi við Fimleikasamband Íslands til þriggja ára. Handbolti kvenna er í mikilli sókn hérlendis og Míla vill leggja sitt af mörkum til að tryggja að sú sókn haldi áfram. Það er með mikilli ánægju sem Míla tekur þátt í þessari uppbyggingu og við óskum þess að kvennaboltinn nái jafn miklu flugi og karlaboltinn hefur náð. Með sams konar stuðningi er enginn efi á því. Míla hefur þar að auki mótað sér stefnu í lýðheilsumálum. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á líkamlegt og andlegt heilbrigði starfsmanna sinna. Til þess að efna lýðheilsumarkmið sín styður Míla starfsmenn til heilbrigðrar hreyfingar og almennrar hollustu. Stuðningur Mílu við handboltalandslið kvenna fellur vel að lýðheilsustefnu Mílu. Eva Magnúsdóttir, forstöðumaður hjá Mílu ehf. Pósturinn hefur alltaf lagt metnað sinn í að styrkja öflug og þörf málefni og við viljum láta gott af okkur leiða varðandi m.a. heilbrigði, menningu, listir og íþróttauppbyggingu í landinu. Það að Pósturinn styrki landslið kvenna í handknattleik er því hluti af stefnu fyrirtækisins að efla íþróttir og þá sérstaklega kvennaíþróttir. Við fögnum því tækifæri að geta starfað með HSÍ og hvetja til áhuga á kvennaíþróttum en áður hefur Pósturinn t.d. styrkt kvennalandsliðið í knattspyrnu. Við bíðum spennt eftir að fylgjast með hvernig stelpunum okkar gengur á EM í desember og sendum þeim baráttukveðjur frá öllu starfsfólki Póstsins. Ágústa Hrund Steinarsdóttir Forstöðumaður markaðsdeildar. Hvers vegna við styðjum kvennaboltann? Aðalstyrktaraðilar kvennalandsliðs Íslands á EM eru Lyfja, Míla og Pósturinn

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.