Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 41
em kvenna 2010 ●FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 7 Leikjaniðurröðun á EM 2010 UNDANRIÐLAR A riðill Álaborg ESP Spánn DEN Danmörk ROU Rúmenía SRB Serbía Leikir tveir á dag 7., 9., og 12. desember Kl. Nr. Viðureign 17:15 1 ESP : ROU 19:45 2 DEN : SRB 17:15 3 SRB : ESP 19:45 4 ROU : DEN 17:15 5 ROU : SRB 19:45 6 ESP : DEN Úrslit þrjú efstu fara áfram í milliriðil Sæti Lið Stig 1. .................................... ...... 2. .................................... ...... 3. .................................... ...... 4. .................................... ...... B riðill Árósar MNE Svartfjallaland CRO Króatía RUS Rússland ISL Ísland Leikir tveir á dag 7., 9., og 12. desember Kl. Nr. Viðureign 17:15 7 MNE : RUS 19:15 8 CRO : ISL 17:15 9 ISL : MNE 19:15 10 RUS : CRO 17:15 11 RUS : ISL 19:15 12 MNE : CRO Úrslit þrjú efstu fara áfram í milliriðil Sæti Lið Stig 1. .................................... ...... 2. .................................... ...... 3. .................................... ...... 4. .................................... ...... C riðill Larvik GER Þýskaland UKR Úkraína SWE Svíþjóð NED Holland Leikir tveir á dag 7., 8., og 10. desember Kl. Nr. Viðureign 16:45 13 GER : SWE 18:45 14 UKR : NED 16:45 16 SWE : UKR 18:45 15 NED : GER 16:45 17 SWE : NED 18:45 18 GER : UKR Úrslit þrjú efstu fara áfram í milliriðil Sæti Lið Stig 1. .................................... ...... 2. .................................... ...... 3. .................................... ...... 4. .................................... ...... D riðill Lillehammer NOR Noregur HUN Ungverjaland FRA Frakkland SLO Slóvenía Leikir tveir á dag 7., 8., og 10. desember Kl. Nr. Viðureign 17:15 20 HUN : SLO 19:15 19 NOR : FRA 17:15 22 FRA : HUN 19:15 21 SLO : NOR 17:15 23 FRA : SLO 19:15 24 NOR : HUN Úrslit þrjú efstu fara áfram í milliriðil Sæti Lið Stig 1. .................................... ...... 2. .................................... ...... 3. .................................... ...... 4. .................................... ...... MILLIRIÐLAR OG ÚRSLIT ● MILLIRIÐILL 1 Þrjú efstu liðin úr A- og B-riðli komast í riðilinn og taka með sér stigin úr innbyrðisviðureignum. Leik- ið verður í Herning í Danmörku dagana 13.-16. desember. ● MILLIRIÐILL 2 Þrjú efstu liðin úr C- og D-riðli komast í riðilinn og taka með sér stigin úr innbyrðisviðureignum. Leik- ið verður í Lillehammer í Noregi dagana 12.-15. desember. ● ÚRSLITAHELGIN Undanúrslit og leikur um 5. sætið fara fram í Herning laugardaginn 18. desember. Úrslitaleik- urinn fer fram í íþróttahöllinni í Herning sunnudaginn 19. desember. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Júlíus Jónasson tók við kvennalandsliðinu fyrir fjórum árum. Leikmannahópur lands- liðsins fer sístækkandi og síðast- liðið vor braut það ísinn er það tryggði sig inn á stórmót í fyrsta skipti. „Það er mikil tilhlökkun að fara á þetta mót. Ég hef verið að reyna að smita stelpurnar af því hversu frábært það sé að fara á stórmót. Það hefur engin þeirra farið á svona mót áður, en ég þekki það vel frá mínum tíma sem leikmað- ur í karlalandsliðinu. Það er líka mikilvægt að við gerum allt sem við getum til þess að vera vel undirbúnar og fara síðan á mótið og njóta þess,“ segir Júlíus. ÆTLUM AÐ NÝTA OKKUR VANMAT ANDSTÆÐINGANNA Þó svo að stelpurnar ætli að njóta þess að vera með á stórmóti í fyrsta skipti stendur ekki til að vera bara einhverjir túristar á mótinu. Það á að standa sig líka. „Við höfum rætt það mikið að við ætlum ekki að vera þarna sem farþegar. Við erum auðvit- að samt nýliðar á þessu móti og erum ekki hátt skrifuð hjá and- stæðingum okkar. Það er akkúr- at trompið okkar. Liðin munu ör- ugglega vanmeta okkur og ef það gerist verðum við að vera klárar að koma andstæðingum okkar á óvart. Stelpurnar eru meðvitaðar um þennan möguleika og ætla sér að nýta hann. Þessar stelpur hafa keppt að þessu markmiði lengi og hafa metnað til þess að gera enn betur en bara að fara á stórmót. Þær eru hvergi bangnar,“ segir þjálfarinn ákveðinn. VERÐUM KLÁRAR Í SLAGINN ÞEGAR BALLIÐ HEFST Ísland tryggði sér þátttökurétt í mótinu síðasta vor og síðan þá hefur staðið yfir markviss undirbúningur sem Júlíus er ánægður með. „Þetta hefur verið fínn undir- búningur. Við fórum á mót í Hol- landi sem var reyndar á óheppi- legum tíma þar sem okkar tíma- bil var ekki byrjað þá. Engu að síður mjög gott. Svo kom 20 ára lið Norðmanna í heimsókn sem er mjög sterkt lið. Svo förum við á stórt mót áður en stóri slagurinn hefst, sem er frábært. Stelpurnar ættu því að vera klárar í slaginn þegar ballið hefst,“ segir Júlíus. Eins og áður segir er breiddin í íslenskum kvennahandbolta sí- fellt að verða meiri og þar af leið- andi verður alltaf erfiðara fyrir Júlíus að velja leikmannahóp sinn. Það er hlutur sem þjálfarar kalla lúxusvandamál. „Það hefur gengið ágætlega að velja í hópinn en það er ekkert auðvelt. Auðvitað eru alltaf skipt- ar skoðanir á liðsvalinu hjá bæði leikmönnum og þjálfurum. Það er þannig séð af hinu góðu. Við vilj- um eiga stóran leikmannahóp. Landsliðsval verður síðan alltaf umdeilt, sama í hvaða íþrótt það er. Ég fæ ekkert að heyra það mikið en geri mér grein fyrir því að gagnrýni er hluti af starf- inu. Ef ég væri ekki til í að taka slíku myndi ég finna mér annað starf,“ segir Júlíus, sem telur sig fara með afar sterkan hóp til Dan- merkur. „Kjarninn í þessum hópi hefur verið lengi saman. Þegar ég kom að liðinu fyrir fjórum árum fór ég í að yngja liðið og sá mannskapur sem hefur verið meira og minna í hópnum síðan þá er farinn að þekkjast mjög vel.“ DRAUMURINN AÐ KOMAST Í MILLIRIÐIL Ísland er í sterkum riðli á mótinu með Svartfellingum, Króötum og Rússum. Fyrir fram er talið að Ís- land eigi mesta möguleika gegn Króötum en það er fyrsti leik- ur liðsins í keppninni. Stelpurnar verða því að vera klárar frá fyrstu mínútu. „Draumur okkar er að komast í milliriðil í þessu móti. Það er líka markmið okkar. Þá þurfum við að vinna einn leik í riðlinum og lík- lega er mesti möguleikinn á því í fyrsta leiknum. Það væri stórt afrek að komast í milliriðil. Þetta eru mjög sterkar þjóðir allt saman og það þarf margt að ganga upp svo við náum markmiðum okkar. Liðið hefur aftur á móti háleit markmið og ætlar sér að ná þeim. Við höfum þegar náð frábærum árangri en við erum ekki til í að láta hann duga. Við viljum meira,“ segir þjálfarinn fullur metnaðar. MUN KVEÐJA LIÐIÐ STOLTUR EFTIR MÓTIÐ Júlíus er að þjálfa kvennalands- liðið í dag samhliða starfi sínu hjá Val þar sem hann þjálfar karla- lið félagsins. Þegar Júlíus tók við því starfi var ljóst að eitthvað yrði undan að láta og því mun hann segja skilið við stelpurnar eftir EM. Ætlum ekki að vera farþegar ● Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari segir það vera draum íslenska liðsins að komast í milliriðil á EM í Danmörku. „Það væri frábær árangur,“ segir Júlíus en þrjú efstu liðin í riðli Íslands tryggja sér sæti í milliriðlinum. Júlíus mun hætta að þjálfa landsliðið eftir mótið en hann hefur þjálfað það í fjögur ár. Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari segir stelpurnar ætla að nýta sér vanmat andstæðinganna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.