Fréttablaðið - 25.11.2010, Side 42

Fréttablaðið - 25.11.2010, Side 42
 25. NÓVEMBER 2010 FIMMTUDAGUR8 ● em kvenna 2010 Helga H. Magnúsdóttir hefur átt óvenjulegan og einstakan feril í handboltanum, bæði sem leikmaður og stjórnar- maður. Helga er eina íslenska konan sem hefur náð langt á alþjóðlegum vettvangi handboltans. Helga var kosin í mótanefnd Hand- knattleikssambands Evrópu, EHF, árið 2000 og verksvið hennar er Evrópukeppni kvenna. Helga var þar með fyrsta konan sem kosin var til embættisstarfa hjá EHF. Eftirlitsstörf innan sambandsins komu svo í kjölfarið. „Ég byrjaði að æfa handbolta þegar ég var tíu ára og þrettán ára var ég farin að spila með meistara- flokki kvenna í FH. Í meistara- flokknum spilaði ég svo í tuttugu ár, þar af lengst með Fram, sem ég spilaði með frá árinu 1967,“ segir Helga. Á þeim tímapunkti þegar Helga hætti var hún nýbúin að eignast sitt þriðja barn en hætti ekki þess vegna, heldur var öxlin ónýt. Helga segir tímann með Fram hafa verið afar skemmti- legan og liðið átti farsælan feril, vann til að mynda ein sextán mót á tímabilinu 1967-1981. Auk þess spilaði Helga með íslenska lands- liðinu í handbolta. Meðan hún var leikmaður sinnti Helga einn- ig stjórnarstörfum og hefur verið í stjórn Handknattleikssambands Íslands frá árinu 1984 og hefur setið í framkvæmdastjórn ÍSÍ. „Jú, það má eiginlega segja að ég hafi verið viðloðandi handbolt- ann síðan ég fæddist, setið í alls kyns nefndum, tekið þátt í for- eldrastarfinu með mín börn sem æfa handbolta, starfað í kring- um kvennalandsliðið og svo mætti áfram telja. Þetta hefur bara ein- hvern veginn æxlast svona. Nú hef ég starfað með mótanefnd EHF í ein ellefu ár og eftir tvö ár hef ég fyllt kjörkvótann minn þar þannig að það er spurning hvað ég geri næst. Starfið úti var allt öðruvísi en ég þekkti hér heima og ég man að það var stórt skref í fyrstu að sitja á stórum fundum og segja sína meiningu, en ég lét vaða, auðvitað með mikinn hjart- slátt í fyrstu, en ég fékk mínu framgengt,“ segir Helga og hlær. „Ég hef yfirleitt verið eina konan á þessum fundum og þekki það vel þegar samkoman er ávörpuð „lady and gentlemen“.“ Helga segir það koma sér vel að hafa reynslu leikmanns í störfum eftirlitsmanns. „Maður hefur oft meiri tilfinningu fyrir því sem er að gerast úti á velli, að hafa verið í sporum leikmannsins. Reynslan skiptir miklu máli og mér finnst ég vera ein af stelpunum þegar ég annast eftirlit á leikjunum. Sem er fínn blekkingarvefur, mér finnst ég vera síung.“ Helga segist að lokum vera í skýjunum með gott gengi íslenska kvennalandsliðsins í handbolta sem tekur þátt í úrslitakeppni Evrópumótsins í byrjun desem- ber. „Þetta vekur athygli hér sem erlendis og margir óska mér til hamingju með að Ísland skuli vera komið í úrslit.“ - jma Löngu orðin vön að vera eina konan á fundum „Ég hef yfirleitt verið eina konan á þessum fundum og þekki það vel þegar samkom- an er ávörpuð „lady and gentlemen“,“ segir Helga H. Magnúsdóttir, eftirlitsmaður hjá Handknattleikssambandi Evrópu. Saffran Góa Linda Aðföng Blikkrás Bygg Eskja ehf Gjögur Gleraugnaverslun Garðabæjar Héðinn Schindler Húsanes Húsið fasteignasala Ísfugl Markaðsnefnd Kindakjöts Mjólk er góð Saltkaup Samhentir Þökkum stuðninginn Seyðisfjarðarbær Síldarvinnslan Sjúkraþjálfun Garðabæjar Útfarastofa Kirkjugarðanna Veitingahúsið Siam Vísir hf Þorbjörn Össur Stoðtækni Ísafoldarprentsmiðja Kópavogsbær Melodíur minninganna SÍBS Gull og Silfur Sjúkraþjálfun Reykjavíkur Daði Guðmundsson Downtown Reykjavik Apartments

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.