Fréttablaðið - 25.11.2010, Síða 56

Fréttablaðið - 25.11.2010, Síða 56
mann sem lá mjaðmabrotinn í meira en mánuð á gólfi heima hjá sér án þess að nokkur vitjaði hans. Árni Kristjánsson snýr sér fum- laus að áhorfendum sem sitja í hálfhring í salnum og hefur góða sviðsnærveru og eins er það hreyfi- mynstur sem leikstjórinn hefur lík- lega lagt honum til, vel til þess fall- ið að segja þessa sögu. Hitt er annað mál að sennilega hefði einleikurinn allur orðið dramatískari ef hinn ungi Árni hefði brugðið sér alfarið í hlutverk gamla mannsins, þar sem hann hafði jú fengið frásögn hans í skrifuðu máli. Það er náttúrulega smekksatriði hvernig maður velur að segja sögu og hvert er markmiðið með henni. Árni segir frá fleirum en þessum eina manni í einleik sínum. Gamall Eistlendingur sem neitar alfarið að fara í síða brók er einn þeirra sem hann verður að fara með til lækn- is. Brussuleg pirrandi hjúkka er líka á sínum stað fyrir svo utan Halldór Laxness og bókina Sjálfstætt fólk. Árni er öruggur í framsögn og á vafalítið eftir að segja fleiri sögur og ná góðu sambandi við áhorfendur sína. Seinni einleikurinn var í höndum Snæbjörns Brynjarssonar sem um þessar mundir stundar nám í japönsku en hefur starfað með Stúd- entaleikhúsinu og er með leikverk í smíðum sem sýnt verður í mars hjá Tilbreytingaleikhúsinu. Snæbjörn velur fyrirlestrarform- ið. Hann velur að velta sér upp úr fyrirlestrum sem nú þegar eru í gangi og er ekki lengi að smeygja sér inn undir alla þá föstu frasa sem flögra frá powerpoint-púltum þar sem fólk er að nema sjálfsþekk- ingu eða sjálfsblekkingu. Snæbjörn velur jakkafatagaurinn. Fyrirtæki hans blæs upp hugmyndir. Hann er í þröngum fötum og heldur strikt, sem undirstrikar vel karakterinn sem allt þykist vita en er um leið hjárænulegur. Þegar hann bregð- ur sér í gjörningahlutverk ætluðu nú sumir áhorfendur að springa úr hlátri. Hann treður sér inn í örlít- inn kassa mannkynssögunnar og þar veltist hann um millum þess sem hann virkjar áhorfendur með ágengum spurningum og leikur sér að viðbrögðum salarins. Þetta var heldur skemmtileg kvöldstund og vonandi verður fram- hald á þessari höfundasmiðju. Leik- húsið sjálft er svo falleg umgjörð að það er eins konar uppljómun í sjálfu sér að sitja þar á gólfinu. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Skemmtileg kvöldstund. Vonandi verður framhald á höfundar- smiðju Vonarstrætisleikhússins. 36 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fimmtudagur 25. nóvember ➜ Tónleikar 19.30 Helga Þóra Björgvinsdóttir flytur fiðlukonstert Mendelssohns ásamt Sinfóníunni í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 19 og er hægt að nálgast miða í Háskólabíói, á www.sinfonia.is og í síma 545-2500. 20.00 Aðventutónleikar Kvennakórs Reykjavíkur verða haldnir í Neskirkju í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er miðaverð 3.000 krónur, 2.500 krónur í forsölu. 21.00 Agent Fresco og Mammút verða með tónleika á Faktorý í kvöld. Húsið opnar kl. 21 en tónleikarnir byrja stundvíslega kl. 22. Aðgangseyrir er 1.000 kr. ➜ Leiklist 21.00 Aukasýning verður hjá Sjónleik – Áhugaleikhúsi atvinnumanna á verkinu Ódauðlegt verk um draum og veruleika í kvöld kl. 21. Sýningin fer fram í Útgerð Hugmyndahúss háskólanna við Grandagarð. ➜ Fundir Árlegur morgunverðarfundur UNIFEM á Íslandi verður haldinn í dag á Hótel Loftleiðum. Fundurinn verður frá 8.15- 9.30 og er yfirskriftin Jafnrétti sem sóknarfæri: heima og að heiman. ➜ Upplestur 20.00 Hið íslenska glæpafélag efnir til glæpakvölds í kvöld í samvinnu við Gallery-bar 46 á Hverfisgötu 46. Höfundar lesa úr verkum sínum. Húsið opnar kl. 20. Eddi Lár og félagar leika djass fram til 20.30 þegar upplestur hefst. ➜ Pub Quiz 20.00 Sammarinn.com stendur fyrir Fótbolta Pub Quiz til styrktar Fjöl- skylduhjálp í kvöld kl. 20 á Enska Barnum við Austurstræti. Þátttökugjald er 500 krónur og frír drykkur fylgir fyrir þá/þær sem koma með fatnað/mat- vöru. ➜ Uppistand 21.00 Uppistand í Tjarnarbíói í kvöld kl. 21. Fram koma Þórhallur Þórhalls- son, Þórdís Nadia, Daníel Geir Moritz og Pálmi Freyr Hauksson. Miðasala fer fram á midi.is og í miðasölu Tjarnarbíós og kostar 2.000 kr. inn. ➜ Samkoma 19.00 UNIFEM á Íslandi í samvinnu við mannréttindasamtök og kvenna- hreyfinguna á Íslandi standa fyrir Ljósa- göngu í kvöld í tilefni af alþjóðlegum degi gegn kynbundnu ofbeldi. Gengið verður frá Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu kl. 19. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Jóhanna Bogadóttir sýnir ný og eldri verk sín á vinnustofusýningu í Hamraborg 9 í Kópavogi. Jóhanna sýnir þar málverk, litó- grafíur og fleira. Sömuleiðis sýnir hún samsetningar með grafík og ljósmyndum hennar frá fjarlæg- um löndum. „Flestar þessara sam- setninga eru með Afríkuljósmynd- um. Litógrafíurnar sem ég vann þegar ég kom heim frá Mósambík beint í hrunið mikla haustið 2008 eru um þemað „einn heimur eða hvað“ og eru mikið innblásnar af fólki og þá ekki síst konum sem ég hitti í Mósambík og Suður-Afr- íku,“ segir Jóhanna um sýningu sína. Sýningin er sem fyrr segir í Hamraborg 9 í Kópavogi, í fyrr- verandi bankaútibúi fyrrverandi banka. Opið er alla daga milli klukkan 15 og 18 og stendur sýn- ingin til 28. nóvember. Vinnustofusýning Jóhönnu Boga Leikhús Á gólfinu og Uppljómun – einleikir Vonarstrætisleikhúsið Leikarar og höfundar: Árni Kristj- ánsson og Snæbjörn Brynjarsson Leiðbeinandi: Sveinn Einarsson Ráðgjafi: Vigdís Finnbogadóttir Tveir ungir menn, nýútskrifaðir af Fræða- og framkvæmdabraut Lista- háskóla Íslands gengu til liðs við höf- undasmiðju Vonarstrætisleikhússins þar sem Sveinn Einarsson leiðbein- ir og Vigdís Finnbogadóttir gefur góð ráð. Það er alltaf ákveðin stemning í því að fara í gamla fallega leikhús- ið við Tjörnina einkum núna eftir að myrkur er fallið á og rómantík skammdegisins verður hluti af umhverfinu. Árni Kristjánsson er ungur nýút- skrifaður háskólanemi, sem hefur m.a. skrifað og leikstýrt í Kvenna- skólanum og eins verið aðstoðar- leikstjóri í íslensku óperunni. Hann tók sig upp fyrir nokkrum árum og fékk sér sumarstarf á langlegudeild fyrir aldrað fólk í Bergen í Noregi. Að sinna sjúkum, spjalla og aðstoða gamla í hvívetna verður honum að yrkisefni í einleik sínum sem fyrst og fremst fjallar um rígfullorðinn Hugmynd er allt sem þarf OPTIMISM SHOP Eitt verka Jóhönnu Bogadóttur á sýningunni í Hamraborg í Kópa- vogi. Ástarbréf frá bónda fast á hæla Arnaldar Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson vermir annað sætið á eftir Furðu- ströndum Arnaldar Indriða- sonar á metsölulista Eymunds- son í flokki innlendra skáldverka þessa vikuna og fjórða sætið í öllum flokkum. Bókin fjallar um aldraðan bónda sem skrifar bréf til ást- konunnar sem honum bauðst að fylgja til borgarinnar forð- um tíð. Ekki beint formúlan að metsölubók, ef hún er þá til. Guðrún Vilmundardóttir hjá Bjarti, sem gefur bókina út, segir vinsældir bókarinnar koma sér ánægjulega á óvart. „Og þó. Við vissum að við værum með mikinn dýrgrip í höndunum en oft ná slíkar bækur ekki flugi,“ segir hún. Bókin hefur hlotið mikið lof hjá gagnrýnendum, meðal annars fullt hús stiga í Frétta- blaðinu. „Ég held að velgengni bókarinnar helgist fyrst og fremst af því að hún hefur spurst vel út,“ segir Guðrún. „Við höfum að minnsta kosti ekki auglýst hana neitt að ráði hingað til.“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.