Fréttablaðið - 25.11.2010, Síða 58
38 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Vandræðagemlingurinn Kid
Rock sendi á dögunum frá
sér plötuna Born Free. Ólíkt
fyrstu skrefum Rocks í tón-
listarbransanum er Born
Free kántríplata af gamla
skólanum og stefnubreyting-
in malar fyrir hann gull.
Upp úr aldamótum þegar rapp-
rokkið (e.: nu metal) var að renna
sitt skeið á enda sendi Kid Rock
frá sér plötuna Cocky. Á henni
má finna kántrílagið Picture, sem
Sheryl Crow söng ásamt Rock.
Lagið kom ekki út áreynslulaust.
Útgáfufyrirtæki Kids Rock kærði
sig ekki um að hann breytti ímynd
sinni úr harðgerðum rapprokk-
ara í dúnmjúkan kántrísöngvara á
einni nóttu og til að bæta gráu ofan
á svart náðust ekki samningar við
útgáfufyrirtæki Crow um útgáfu
lagsins á smáskífu. Henni var því
skipt út fyrir söngkonuna Allison
Moorer. Lagið gat þá komið út, sló
rækilega í gegn og Kid Rock hafði
farið í kántríið (e.þ. gone country).
Gone country er bandarískt
slangur sem lýsir tónlistarmanni
sem skiptir yfir í kántrítónlist.
Gott dæmi um hljómsveit sem
hefur farið í kántríið með góðum
árangri er Bon Jovi en árið 2007
sendi hljómsveitin frá sér plötuna
Lost Highway. Hún var fyrsta
plata hljómsveitarinnar sem fór
beint á topp bandaríska Billbo-
ard-listans. Slangrið lýsir reynd-
ar líka sifjaspelli, en það er eng-
inn að saka Kid Rock um slíkt.
Dæmi um misheppnaða tilraun
til að fara í kántríið er platan Do
You Know með Jessicu Simpson
frá árinu 2008. Platan gerði nán-
ast út af við tónlistarferil Simp-
son, sem hefur átt afar erfitt
uppdráttar undanfarið.
Til að undirstrika þessa nýju
ímynd má nefna að Kid Rock eyddi
hluta þessa árs í að hita upp fyrir
Bon Jovi. Á sama tíma fyrir
áratug hitaði hann upp
fyrir hljómsveitir á borð
við Korn og System of a
Down.
Það getur enginn sakað Kid
Rock um leti. Hann er búinn að
vera að lengi; gaf út fyrstu plötuna
1990 og sló í gegn í átta árum síðar
með plötunni Devil Without a Cause
eftir mikið streð. Rock lýsir nýju
plötunni sem lífrænni blöndu
af blús og rokki. Rick Rubin
stýrði upptökum á plötunni,
en hann hefur unnið með
meisturum á borð við
Johnny Cash, Slayer
og System of a Down.
Platan er sú fyrsta
sem Kid Rock send-
ir frá sér sem er ekki
með viðvörunarmerki
sem varar við óhefluðu
orðbragði. Þykir það til
marks um nýja ímynd
tónlistarmannsins.
atlifannar@frettabladid.is
Kántrí-upprisa Kid Rock
Biblíulegt letur
Sólarupprás
Engi
Byssur
Kúrekastígvél
Amerískur blæjubíll
Leður
Kross
Tónlistarveitur sem selja tónlist á netinu eru alltaf að sækja í sig
veðrið. Gogoyoko býður enn þá notendum að hlusta frítt á alla þá tón-
list sem þar er. Þú borgar bara það sem þú halar niður í tölvuna. Tón-
list.is býður bæði upp á áskrift og niðurhal og hefur gríðarlegt magn
af nýrri og gamalli tónlist í boði, íslenskri og erlendri. Það hefur
lengi verið ódýrara að kaupa nýjar plötur stafrænt, en nú er Tónlist.
is komin með nýjung
til að gera stafræna
kostinn enn þá meira
spennandi. Með nokkr-
um nýútkomnum
íslenskum plötum fylg-
ir nefnilega fullt af
aukalögum sem ekki
er hægt að kaupa úti
í búð.
Þetta á til dæmis
við um Næstu jól með
Baggalúti. Auk nýju
laganna ellefu fylgja
jólatónleikarnir frá
því í fyrra. Ef þú kaup-
ir Best of Bang Gang
á Tónlist.is færðu öll lögin sem eru á diskunum tveimur, en líka 13
aukalög, bæði remix og fágætt efni. Bestu kaupin eru samt sennilega
í nýju Hjálmaplötunni, Keflavík-Kingston. Með henni fylgja tónleik-
ar sveitarinnar í Háskólabíói 30. okt. síðastliðinn í heild sinni. Tveir
klukkutímar og 25 lög. Engin smá viðbót það og kostar ekki krónu
aukalega!
Það er fagnaðarefni að Tónlist.is skuli bjóða upp á nýtt efni sem
ekki er hægt að nálgast úti í búð. I-Tunes hefur gert þetta lengi með
góðum árangri og löngu kominn tími á að íslenskar tónlistarveitur
taki við sér. Það verður nefnilega aldrei of mikið framboð af góðri
tónlist!
Stafræn ofurtilboð
HJÁLMAR Tveggja tíma 25 laga tónleikar fylgja frítt með
nýju plötunni á Tónlist.is. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
> Plata vikunnar
Prinspóló - Jukk
★★★
„Prinspóló gleður með góðu jukki.“
TJ
> Í SPILARANUM
Hjaltalín - Alpanon
Ómar Guðjónsson - Von í óvon
Motörhead - The World Is Yours
Bubbi - Sögur af ást, landi og þjóð 1980-2010
Robyn - Body Talk
HJALTALÍN ROBYN
Snillingurinn Bonnie ‘Prince‘ Billy verður
á meðal flytjenda á ábreiðuplötu þar sem öll
lögin verða af plötunni Seven Swans eftir
Sufjan Stevens. Seven Swans kom út árið
2004 og er jafnan talin ein af betri plötum
meistara Stevens.
Ábreiðuplatan kemur út 22. mars á næsta
ári og er gerð að frumkvæði bloggsíðunnar
On Joyful Wings. Allur ágóði af sölu plötunn-
ar rennur til samtaka sem styrkja rannsókn-
ir á brjóstakrabbameini. Bonnie ‘Prince‘
flytur lagið All The Trees of the Field Will
Clap Their Hands, en á meðal annarra flytj-
enda eru DM Stith, Half-Handed Cloud og
Gregory Brothers.
Sufjan Stevens tekur ekki þátt í gerð plöt-
unnar en gaf verkefninu samþykki sitt.
Bonnie ‘Prince‘ tekur Sufjan
LEIÐA SAMAN HESTA SÍNA Bonnie ‘Prince‘ Billy
hyggst taka þátt í gerð plötu þar sem lög Sufjans
Stevens verða endurgerð.
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Smekkleysa plötubúð, Havarí, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 18. - 24. nóvember 2010
LAGALISTINN
Vikuna 18. - 24. nóvember 2010
Sæti Flytjandi Lag
1 Páll Óskar og Memfismafían ......Það geta ekki allir...
2 Kings Of Leon ................................................Radioactive
3 Blaz Roca Bent og Ragga Bjarna .. Allir eru að fá sér
4 Hjálmar ....................................................Gakktu alla leið
5 Hurts ..........................................................Wonderful Life
6 Rihanna .......................................Only Girl In The World
7 Dikta ......................................................................Goodbye
8 Sálin hans Jóns míns.... Vatnið rennur undir brúnna
9 Robbie Williams / Gary Barlow ........................Shame
10 Mammút ...................................................................Follow
Sæti Flytjandi Lag
1 Baggalútur ..........................................................Næstu jól
2 Bubbi ..................................Sögur af ást, landi og þjóð
3 Björgvin Halldórsson .............................................Duet II
4 Prófessorinn og Memfismafían ................. Diskóeyjan
5 Blaz Roca ............................. Velkomin til KópaCabana
6 Hjálmar .................................................Keflavík Kingston
7 Sálin hans Jóns míns................ Upp og niður stigann
8 Helgi Björns og reiðmenn vind .....Þú komst í hlaðið
9 Friðrik Dór ................................................. Allt sem þú átt
10 Regína Ósk ..............................................Um gleðileg jól
Umslag nýrrar plötu Kid Rock,
Born Free, sýnir að kappinn kann
öll trixin til að höfða til sveitalúð-
anna í Bandaríkjunum.
ÖLL TRIXIN Í BÓKINNI
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Sparaðu með Miele
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop
Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending
Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár.
Miele þvottavélar og þurrkarar eru framleidd til að endast.