Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.11.2010, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 25.11.2010, Qupperneq 62
folk@frettabladid.is Þrátt fyrir að Norður- löndin skilgreini sig sem velferðarþjóðfélög þá eru þau einnig gróðarstía fyrir glæpi og spillingu. ÁRNI ÞÓRARINSSON RITHÖFUNDUR 42 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR Bíó ★★ Skyline Leikstjórar: Colin Strause, Greg Strause. Aðalhlutverk: Eric Balfour, Scottie Thompson, Brittany Daniel, Crystal Reed, Donald Faison, David Zayas. Ódýrt og óspennandi Hópur fólks vaknar í þakíbúð skýjakljúfs um miðja nótt eftir að hafa fengið sér í aðra tána. Risastór geimskip svífa yfir Los Angeles-borg og svo virðist sem hinir framandi gestir hafi gangsett eins konar „mann-ryksugu“ sem sogar fólk upp í geimskipin. Djammararnir ákveða því að halda kyrru fyrir í íbúðinni um sinn og fylgjast með atferli og aðferðum geimveranna þar til þau treysta sér til að leggja á flótta. Þessi söguflétta er að sjálfsögðu afskaplega bjánaleg en gæti eflaust virkað ef myndin tæki sig ekki svona alvarlega. Vísindaskáldskapur verður annað hvort að skapa trúverðugar aðstæður (eins langt og trúverðugleikinn nær) eða halda sig í létt-flippuðum gír. Leikaralið Skyline er af ódýrustu sort og brellurnar upp og ofan. Þetta gæti ég fyrirgefið ef persónurnar væru áhugaverðar, eða allavega fyndnar. Það eru þær ekki. Engum stekkur bros. Ekki leikurunum. Ekki leikstjórunum. Ekki áhorfendum. Þegar ég hélt að myndinni væri lokið stóð ég pirraður á fætur, renndi upp yfirhöfninni og hugsaði: „Þetta hefði varla getað verið verra“. En myndinni var ekki lokið. Ónei. Fimm sprenghlægilegar mínútur voru eftir, og ég hló svo sannarlega ekki „með þeim“. Þegar þær voru á enda stóð ég aftur á fætur og hugsaði: „Merkilegt. Þeim tókst að gera þetta enn verra.“ Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Ein stjarna fyrir Skyline og önnur fyrir skemmtilegu handþurrk- una á snyrtingu Laugarásbíós. Hún er alltaf jafn hress. Rithöfundurinn Árni Þórar- insson rambaði inn á töku- stað Tíma nornarinnar í fyrradag en sjónvarpsþátta- röð Friðriks Þórs Friðriks- sonar er einmitt byggð á samnefndri bók höfundar- ins um Einar blaðamann. Árni segir það hafa verið erfitt að skrifa handritið sjálfur. Tökur á Tíma nornarinnar standa yfir um þessar mundir en sam- nefnd bók, sem kom út fyrir fimm árum, hefur áður verið sett upp sem útvarpsleikrit og flutt á Rás 1. Árni Þórarinsson, höfundur bók- arinnar og handritshöfundur þátt- anna, segir alltaf fróðlegt að koma á tökustað. Hann dáist að þeirri þolinmæði sem kvikmyndagerðar- menn búi yfir. „Og mér leist bara vel á það litla sem ég sá.“ Höfundurinn er einnig ánægð- ur með Hjálmar Hjálmarsson í hlutverki Einars blaðamanns, telur leikarann líkjast Einari eins og mögulegt er. „Hann hefur forvitið yfirbragð og nær alveg húmornum.“ Árni skrifaði sjálfur handritið og fékk góðar ábendingar hjá bæði Hjálmari og leikstjóran- um Friðriki Þór. Hann viðurkennir að það hafi ekki verið auðvelt verk, kaflar sem honum hafi þótt vænt um voru látnir víkja, öðru bætt inn í og atburðarásinni breytt til að laga bókina að sjónvarpsforminu. „Sumt var sársaukafullt, annað skemmtilegt og skapandi, það var forvitnilegt að gera eitthvað nýtt úr þessu gamla efni.“ Sjöunda bók Árna um Einar blaðamann, Morgunengill, kom nýverið út og hefur fengið lof- samlega dóma. Spennuþrungið íslenskt samfélag leikur lykilhlut- verk í bókinni og Árni segir það hafa verið meðvitað. „Spennuflétt- an tekur óvenjusterk mið af sam- tímanum, samfélagið er eiginlega dregið út úr aukahlutveri sínu og sett í aðalhlutverk.“ Íslenskir krimmaaðdáendur eru ekki þeir einu sem hafa tekið bókum Árna opnum örmum því Frakkar eru einstaklega hrifn- ir af honum. Árni vill ekki meina að það sé vegna útlitsins þótt það minni eilítið á franskt ljóðskáld. „Auðvitað er merkilegt að sjá sam- tímis á metsölulistum glæpasagna í Frakklandi kannski tvo eða þrjá íslenska höfunda. Arnaldur er auð- vitað fastagestur og svo slæðist ég þarna inn, Jón Hallur og Stefán Máni,“ segir Árni sem hefur ekki farið varhluta af Stieg Larsson- markaðsvæðingunni. „Ég, rétt eins og aðrir íslenskir glæpasagnahöf- undar, við höfum örugglega allir lesið þær vangaveltur hvort við værum næsti Stieg Larsson.“ Árni kann enga eina skýringu á því af hverju norrænar glæpa- sögur njóti svona mikillar hylli. „Ég hef tekið þátt í málþingum um norrænar glæpasögur og vin- sældir þeirra og menn hafa ekki getað komið sér saman um neinn einn hlut. Að mínu mati, fyrir utan framandi sögusvið, leikur það stórt hlutverk að þrátt fyrir að Norðurlöndin skilgreini sig öll sem velferðarþjóðfélag þá eru þau einnig gróðrarstía fyrir glæpi og spillingu.“ freyrgigja@frettabladid.is Einar er í góðum höndum ÁNÆGÐUR MEÐ HJÁLMAR Árni Þórarinsson er ákaflega ánægður með Hjálmar Hjálmarsson í hlutverki Einars blaðamanns en tökur á Tíma nornarinnar standa núna yfir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hin rómaða þakkargjörðarveisla Hótel Cabin verður haldin dagana 25. og 26. nóvember. Í hádeginu 25. og 26. nóvember Fimmtudagskvöldið 25. nóvember og föstudagskvöldið 26. nóvember Verð einungis: 2.750 kr. í hádeginu 3.650 kr. á kvöldin Léttir djasstónar verða leiknir yfir borðhaldi á föstudagskvöldinu. Borðapantanir í síma 511 6030 Guð jó n Ó – v is tv æ n p re n ts m ið ja 310.000 Bítlaplötur hafa selst á iTunes eftir að sala hófst í síðustu viku. Inni í þessari tölu eru 13 þúsund eintök af pakka með öllum 16 plötunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.