Fréttablaðið - 25.11.2010, Side 74

Fréttablaðið - 25.11.2010, Side 74
 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR54 golfogveidi@frettabladid.is „Ég reyni alltaf að veiða, það er bara vinnan sem er að trufla,“ segir Dagur Jónsson prentsmiður og stang- og skotveiðimaður. Dagur segist veiða á flugu eins lengi og hægt sé. En þegar það sé ekki hægt grípi hann gjarnan til strandveiðinnar. Þar noti hann stöng sem sé 4,2 metrar að lengd og fimmtíu til sextíu punda línu. „Ég er að kasta um það bil 150 metra. Það eru töluverð átök en það eru menn sem kasta miklu lengra en það – ég er bara ekki búinn að ná tækninni betur,“ segir Dagur sem kveðst hafa veitt frá strönd- inni við Ölfusárósa og upp í Hval- fjarðarbotn auk þess sem hann fari á Snæfellsnesið. „Það er hægt að veiða nánast hvað sem er í strandveiðinni. Ég held að ég sé komin upp í fimmt- án tegundir,“ lýsir Dagur og nefnir fiska eins og þorsk, ýsu, ufsa, kola, steinbít, síld, makríl og meira að segja lax í eitt skipti. Hann hafi jafnvel dregið krossfisk á land. Aðspurður um það furðulegasta sem hann hafi veitt nefnir Dagur tannlausan steinbít. Hann nefnir steinbítinn jafnframt sem besta fenginn. Flest ef ekki allt af því sem komi á land sé hægt að leggja sér til munns. Dagur segir strandveiði stund- aða frá Vík í Mýrdal og vestur með allri ströndinni. „Strandveiðimenn eru mjög spenntir fyrir Landeyja- höfn. „Þar vestan við og einnig í Háfsfjöru og í Vík, hafa verið menn verið að veiða háf,“ segir Dagur sem kveður vísast mikið bras að draga slíkar skepnur á land en það hjálpi þó til að menn noti víra í önglana og séu með sterkar línur og öflugar stangir. Hægt er að veiða frá strönd- inni allt í kring um landið. Dagur segir þó að sumir staðir séu betri en aðrir. Til dæmis séu fáir veið- anlegir staðir við Hvassahraun vegna þarafláka. „Það er mjög gaman að veiða úti á enda á bryggjunni í Garðinum. Þar fá menn væna þorska. Eins er Helguvíkin mjög vinsæl í febrúar. Þá kemur steinbíturinn þar inn,“ segir Dagur og minnist einnig á Sandvík vestan við Reykjanesvita. Það hjálpi honum að hafa oft siglt í kring um Reykjanesið og þekki því nokkuð vel til sjávarbotnsins á þeim slóðum. Við veiðina notar Dagur sökku og beitu. „Ég læt sökkva í botninn og bíð. Ef það gerist ekkert fljót- lega þá dregur maður aðeins inn og hinkrar,“ segir hann um veiði- aðferðina. Strandveiði er hægt að stunda allt árið. „Menn þurfa fyrst og fremst að vera meðvitaðir um sjávarföll,“ segir Dagur og bend- ir á að vaxandi áhugi sé fyrir strandveiðinni enda sé hún afar skemmtileg. „Þetta snýst mikið um útiveruna. Strandveiðin er öðruvísi en hefðbundin stang- veiði að því leyti að þetta er meira slark. Það er miklu meira slor í þessu.“ gar@frettbladid.is Skemmtilegt í slarki og slori Dagur Jónsson prentsmiður leitast við að veiða fisk á stöng alla mánuði ársins. Hann hefur veitt frá strönd- inni við Ölfusárósa og upp í Hvalfjarðarbotn. Auk þess veiðir hann vestur á Snæfellsnesi. Kálfhagahylur geymir oftast lax alveg frá fyrsta degi veiðitímans og allt til loka. Kálfhagahylur er langur og fallegur veiðistaður og alls staðar geta menn átt von á fiski. Veitt er frá vesturbakkanum og er vissara að kasta fyrstu umferð frá landi og varast að vaða, þar sem lax getur ekkert síður legið við vesturbakkann þó svo austurbakkinn sé oftast líklegri. Þarna fer fluga einstaklega vel. Sérstaklega getur reynst skemmtilegt að notast við smáar gárutúpur og jafnast ekkert á við kraftmiklar yfirborðstökur við þennan einstaka veiðistað. Þó svo að flugur þyngist jafnan þegar líða fer að hausti þá er óvitlaust að reyna fyrst með létt- um flugum og gárutúbum, áður en þyngri flugum/túbum er kastað, jafnvel þó komið sé vel fram í september. Veiðistaðurinn: Kálfhagahylur í Stóru-Laxá í Hreppum Á SVÆÐI 1&2 Fullyrt er að hylurinn geymi lax allt sumarið. MYND/LAX-Á Veiðifélagið Árnmenn kynnti í gærkvöld félagsmönnum sínum ný veiðisvæði. „Þetta eru sjóbirt- ingsveiðar vor og haust í Grímsá, og laxveiði með silungavon yfir sumarið í Úlfarsá (Korpu), Tunguá í Lundarreykjadal og Gljúfurá í Húnavatnssýslu,“ segir á vef Ármanna. Á frétta- vefnum votnogveidi.is kemur enn fremur fram að Ármenn fái forkaupsrétt að vissum leyfum á þessu svæðum sem eru í umsjón veiðifélagsins Hreggnasa. - gar Ármenn auka framboðið: Fá forkaupsrétt í fleiri ám Þótt hefðbundnu stangveiðitíma- bili sé lokið gefast ekki allir upp á því að kasta fyrir fisk. Á spjall- þræði veidi.is er lífleg umræða um strandveiði. Ef eitthvað er að marka hana þá geta menn gert góða veiði í Sandvík á Reykjanes- skaga þar sem Clint Eastwood tók upp kvikmynd um árið. „Það dýpkar nokkuð snöggt þarna en ég var að kasta um 40 til 50 metra út. Það fer líka eftir því hvar maður er að veiða hvort að það þurfi langt kast,“ segir einn sem nefnir sig Beitukónginn og heldur áfram. „Á einum stað fyrir sunnan kasta þeir kannski um 20 til 30 metra út með stórum Tobý og taka þá ufsar og þorskur, fer bara eftir botnlaginu hvar fiskurinn er. Oft eru bestu veiðistaðirnir þar sem það myndast öldubrot svona 30 til 50 metra út frá strönd (grjót eða eitthvað á botninum) og kastar maður þá alveg að því og dregur í land.“ Óþarft að leggja árar í bát: Veiða af strönd þótt vetur ríki SANDVÍK Nálægt Reykjanesvita eru góðar strandveiðislóðir. Sala stangveiðileyfa fyrir næsta sumar er að komast á aukið skrið. Í Veiðifréttum Stangaveiðifélags Reykjavíkur segir að forúthlut- un leyfa, sem er á vissum tímum á tilteknum svæðum, hafi geng- ið vel. Þó séu enn nokkur laus leyfi. Almenn úthlutun sé síðan fram undan. Í þeirri umferð njóta félagsmenn SVFR forgangs og tuttugu prósenta afsláttar. Þá hefur Lax-á sett í gang sölu nokkurra svæða á agn.is. Þar er nú meðal annars hægt að kaupa leyfi í Norðlingafljóti og Brynju- dalsá. - gar Segja veiðileyfasölu góða: Margir kaupa leyfi næsta árs STEFNUMÓT 2011 Veiðimenn eru byrjaðir að tryggja sér stundir við árbakkann næsta sumar. Skipt verður um alla stjórnar- menn neima einn í Stangaveiði- félagi Reykjavíkur á laugar- daginn. Erfiðleikar steðja að SVFR. Auk þess sem félagið tapar miklu fé á urriðasvæðun- um í Laxá þá hefur það nú misst frá sér gamalgróin svæði á borð við Syðri-Brú og Stóru-Laxá og óvíst er með Ásgarð. Aðeins einn stjórnarmaður gefur kost á sér til endurkjörs og etur kappi við fimm nýja frambjóðendur um fjögur stjórnarsæti. Fimmta sætið er frátekið fyrir formann stjórnarinnar. Aðeins Bjarni Júlíusson gefur kost á sér í það embætti. Hann hefur áður verið formaður. - gar Mannabreytingar hjá SVFR: Stjórnarkjör á erfiðum tímum FÉLAGSMENN í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur mega kjósa í stjórnarkjóri félagsins á aðalfundi á laugardag. 4.000 TILBOÐ bárust í leigu á veiðiréttindum í Ásgarði. Sveitarstjórnin hefur falið lögmanni að gera áreiðanleikakönnun á tilboðunum. 3 FJÖRUVEIÐI Í HVALFIRÐI Hér er Dagur á góðri stund við veiðar í fjörunni í Hvalfirði. MYND/DAGUR KOLI KOMINN Á LAND Guðmundur Páls- son nýbúinn að landa kola í Hvalfirði. MYND/DAGUR BJARNI JÚLÍUSSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.