Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 78
58 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR „Það verður að endurskoða þenn- an lista,“ segir Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar. Birtingu metsölulista bókaút- gefenda, sem unninn er af Rann- sóknarsetri verslunarinnar, var frestað í gær vegna athugasemda annarra bókaútgefenda við sölu- tölur á ævisögu Jónínu Benedikts- dóttur eftir Sölva Tryggvason sem verslanir N1 selja. Jón Gunn- ar Geirdal, markaðsstjóri N1, segir ekkert athugavert við töl- urnar frá fyrirtækinu en á föstu- daginn í síðustu viku var greint frá því að starfsmenn bókaversl- unarinnar Office 1 hefðu keypt í kringum 300 bækur og haft þær til sölu á hálfvirði. Bókaútgefend- ur vilja nú vita hvort þau eintök séu tvítalin á metsölulistanum, hvort listinn styðjist við tölur frá bæði N1 og Office 1. Jón Gunnar vísar því á bug að Office 1 hafi keypt bók Jónínu af lager fyrirtækisins. „Við getum ekkert gert ef einhver kemur í okkar verslun, kaupir þrjár eða þrjú hundruð bækur og selur þær á niðursprengdu verði. Það hafði enginn hjá Office 1 samband við okkur og við höfum ekki nein- ar nákvæmar tölur yfir hversu margar bækur þeir keyptu. Þessi eintök eru því inni í okkar tölum.“ Orð Jóns Gunnars stangast algjörlega á við það sem Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rann- sóknarseturs verslunarinnar, segir í samtali við Fréttablaðið. „Þetta kemur mér alveg í opna skjöldu,“ segir Emil. Því til stuðn- ings vísar hann meðal annars í tölvupóst sem honum barst frá N1 en þar kemur fram að eintök- in sem Office 1 keypti yrði ekki inni í tölum frá N1. „Okkur var sagt að það væri ekki verið að telja sömu eintökin,“ segir Emil. Þegar þetta var borið undir Jón Gunnar sagði hann þetta hljóta að vera misskilning. Kjartan Örn Sigurðsson, for- stjóri Egilsson hf. sem rekur verslanir Office 1, staðfesti í samtali við Fréttablaðið að keypt hefðu verið 300 eintök. Hann segir tvo bílstjóra hafa farið á vegum fyrirtækisins á átta bensínstöðvar og keypt bókina. Eintökin 300 hafi selst upp á föstudaginn. Kjartan upplýsir jafnframt að þessi 300 eintök hafi verið inni í sölutölun- um sem sendar voru til Rannsókn- arseturs verslunarinnar. Kristján Bjarki Jónasson, for- maður Félags bókaútgefenda, sagðist í samtali við Fréttablað- ið vera orðlaus. „Við báðum um einfaldan hlut, að fá staðfestingu hjá Rannsóknarsetrinu að eintök- in væru ekki tvítalin og að listinn væri réttur. Ég leyfði mér bara að trúa þeim.“ freyrgigja@frettabladid.is SJÓNVARPSÞÁTTURINN „Ef þú spyrð mig, þá á að senda öllum útrásarvík- ingunum þessa bók og kannski vakna einhverjir þeirra til lífsins,“ segir Huginn Þór Grétarsson rit- höfundur. Hann gefur út fjórar barnabækur fyrir jólin en ein þeirra, „Kanínan sem fékk ALDREI nóg“, minnir óneitanlega mikið á útrásina alræmdu. „Bókin fjallar um kanínu sem fellur fyrir freist- ingum og vill alltaf meira og meira. Kanínan sæk- ist eftir grænmeti í bókinni, en það er tákn fyrir auðæfi og peninga. Hún gefur sér aldrei tíma til að borða grænmetið, því hún veit að það er meira af því handan hornsins,“ segir Huginn. Hann segir að hver geti skilið bókina á sinn hátt. „Börnin sjá gráðuga kanínu og flottar myndir en fullorðna fólkið sér útrásarvíkingana fyrir sér.“ Huginn segist ekki hafa verið með neinn sérstak- an útrásarvíking í huga þegar hann skrifaði bók- ina. „Þeir hlupu á þúsundum, þessir útrásarvíking- ar. Þetta ástand var orðið svakalegt,“ segir Huginn, sem sjálfur er lærður viðskiptafræðingur. „Það er alltaf verið að tala um að grunnskóla- börn þurfi að fá fræðslu um siðferði. Bókin er ein- mitt eitthvað sem gæti komið í veg fyrir að þau falli í þessa gryfju. Við viljum ekki sjá þetta endurtaka sig,“ segir viðskiptafræðingurinn og rithöfundur- inn Huginn Þór Grétarsson. - ka Barnabók um útrásarvíkinga VILL GEFA ÚTRÁSARVÍKINGUM BÓKINA Huginn Þór segir að útrásarvíkingarnir hefðu gott af því að lesa bókina um kanín- una sem aldrei fékk nóg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Þetta verður mjög skrautlegur og flottur þáttur,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. RÚV hóf nýlega framleiðslu á þætti um líf og starf popp- stjörnunnar Páls Óskars Hjálmtýssonar. Þátturinn verð- ur á dagskrá laugardaginn 18. desember, þegar Hringekjan hefur runnið sitt skeið. „Sigurlaug Jónasdóttir er að byrja að vinna þáttinn með Páli. Þetta verður mjög glæsi- legur og flottur þáttur svona rétt fyrir jólin,“ segir Sigrún og bætir við að mikið sé til af efni um Pál sem gaman verð- ur að sýna áhorfendum. „Hún var að sýna mér bunkana úr safni, það er alveg fullt af efni til um hann. Eðli málsins sam- kvæmt verður Páll Óskar eini viðmælandi þáttarins og mun Sigur- laug spyrja hann spjörunum úr. Þá verður hann henni innan handar þegar efnið úr for- tíðinni verður valið. - afb RÚV gerir þátt um Poppstjörnu Íslands POPPSTJARNA Á RÚV Sigurlaug Jónasdóttir vinnur að þætti um poppstjörnu Íslands – Pál Óskar Hjálmtýsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Sex and the City er bestur en annars horfi ég líka á Gossip Girl, Desperate Housewives og Grey‘s Anatomy.“ Ásdís Svava Hallgrímsdóttir, fyrirsæta og flugfreyja. „Kræsingar fyrir hinn kröfuharða krimmalesanda.“ POLITIKEN „VERÐUGIR ARFTAKAR STIEG LARSSONS.“ LA GACETA DE LOS NEGOCIOS PÁLL BALDVIN BALDVINSSON / FRÉTTATÍMINN FiNNSKi HESTURiNN „Fimm stjörnu Ólafía Hrönn“GB, Mbl Fös 26.11. Kl. 20:00 Lau 27.11. Kl. 20:00 Fös 3.12. Kl. 20:00 Lau 4.12. Kl. 20:00 Fös 10.12. Kl. 20:00 Aukas. Lau 27.11. Kl. 13:00 Lau 27.11. Kl. 15:00 Sun 28.11. Kl. 13:00 Sun 28.11. Kl. 15:00 100. sýn. Sun 5.12. Kl. 13:00 Sun 5.12. Kl. 15:00 Mið 29.12. Kl. 16:00 br. sýn.t. Fim 30.12. Kl. 16:00 br. sýn.t. Fös 26.11. Kl. 20:00 Fös 2.12. Kl. 20:00 Fim 3.12. Kl. 20:00 Aukas. U U Finnski hesturinn (Stóra sviðið) Fíasól (Kúlan) Hænuungarnir (Kassinn) Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Gerpla (Stóra sviðið) Ö Leitin að jólunum Ö Ö Ö Ö U Ö Ö Lér konungur (Stóra sviðið) Sun 26.12. Kl. 20:00 Frums. Þri 28.12. Kl. 20:00 2. sýn Mið 29.12. Kl. 20:00 3. sýn Lau 8.1. Kl. 20:00 4. sýn Sun 9.1. Kl. 20:00 5. sýn Fim 13.1. Kl. 20:00 6. sýn Fös 14.1. Kl. 20:00 7. sýn Fös 21.1. Kl. 20:00 U Ö Ö Ö Ö Ö U Ö U Ö Ö U U Ö U U U Ö Lau 27.11. Kl. 20:00 Sun 28.11. Kl. 20:00 Lau 4.12. Kl. 20:00 Sun 5.12. Kl. 20:00 Mið 24.11. Kl. 19:00 Aukas. Fim 25.11. Kl. 19:00 Aukas. Fös 10.12. Kl. 19:00 Aukas. Lau 11.12. Kl. 19:00 Aukas. Sun 12.12. Kl. 19:00 Aukas. Fim 30.12. Kl. 19:00 Fös 7.1. Kl. 19:00 Lau 15.1. Kl. 19:00 Sun 16.1. Kl. 19:00 Lau 22.1. Kl. 19:00 Sun 23.1. Kl. 19:00 Lau 27.11. Kl. 13:00 Lau 27.11. Kl. 14:30 Sun 28.11. Kl. 11:00 Sun 28.11. Kl. 13:00 Sun 28.11. Kl. 14:30 Lau 4.12. Kl. 11:00 Lau 4.12. Kl. 13:00 Lau 4.12. Kl. 14:30 Sun 5.12. Kl. 11:00 Sun 5.12. Kl. 13:00 Sun 5.12. Kl. 14:30 Lau 11.12. Kl. 11:00 Lau 11.12. Kl. 13:00 Lau 11.12. Kl. 14:30 Sun 12.12. Kl. 11:00 Sun 12.12. Kl. 13:00 Sun 12.12. Kl. 14:30 Lau 18.12. Kl. 11:00 Lau 18.12. Kl. 13:00 Lau 18.12. Kl. 14:30 Sun 19.12. Kl. 11:00 Sun 19.12. Kl. 13:00 Sun 19.12. Kl. 14:30 U 8. sýn U Ö U U U U Ö Ö Ö Ö Ö Ö U Ö Ö U U U U U U U U U U U U FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI ÍÞRÓTTIR Meiri Vísir. BÓK TVÍTALIN Á METSÖLULISTA 2. N1 hafði þessi 300 eintök með í sölutölum sem olíufé- lagið sendi rannsóknarsetri verslunarinnar, sem sér um metsölulista bókaútgefenda. 4. Metsölulisti bókaútgefenda var ekki sendur út á tilsettum tíma vegna misvísandi upplýsinga um sölu á Ævisögu Jónínu Ben. 300 ein- tök sem seldust voru talin sem 600. 3. Office 1 hafði sömu 300 eintök í sölutölum sem verslunin sendi rannsóknarsetri verslunarinnar. Bókin var því tvítalin. 1. Á föstudaginn í síðustu viku bárust fréttir af því að Office 1 hefði keypt 300 eintök af N1 og ætlað að selja þær á hálfvirði. Bókin seldist upp í Office 1 fyrir hádegi að sögn forstjóra Egilsson hf. sem rekur Office 1. EMIL B. KARLSSON: ÞETTA KEMUR MÉR ALGJÖRLEGA Í OPNA SKJÖLDU Ævisaga Jónínu tvítalin á metsölulista bókaverslana
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.