Fréttablaðið - 15.01.2011, Side 28
28 15. janúar 2011 LAUGARDAGUR
ATLAVÍKURSTEKKUR Sýnir blöndu af birkiskógi og gróðursettum skógi og skóglaust land handan við Lagarfljót til samanburðar. Myndin er tekin á Atlavíkurstekk í Hallorms-
staðaskógi. MYNDIR/ÞRÖSTUR EYSTEINSSON
SITKALÚS
S itkalús er mesti skaðvaldur á ýmsum grenitegundum og
dregur úr vexti trjánna.
MYND/EDDA ODDSDÓTTIR
RYÐ
Ryðsjúkdómar herja á birki, víðitegundir, alaskaösp og
fleiri tré. Skemmdir geta verið
mjög áberandi síðsumars og vald-
ið vaxtartapi og kali.
MYND/HALLDÓR SVERRISSON
FIÐRILDI
F iðrildalirfur valda reglulega skemmdum á ungum trjám
og geta aflaufgað heilu skógana
þegar fjöldi þeirra er í hámarki.
Hér eru ertuyglur á asparblöðum.
MYND/HALLDÓR SVERRISSON
FROSTLYFTING
F rostlyfting nýgróðursettra plantna er algeng í skógrækt
á rýru landi en hægt er að draga
verulega úr henni með áburðar-
gjöf. Hér frostlyfting birkiplöntu.
MYND/EDDA ODDSDÓTTIR
FROST
F rost seint að vori, snemma hausts eða jafnvel um hásum-
ar valda einkum skemmdum á
ungplöntum. Hættan á vorkali
gæti aukist vegna hlýnunar á
vetrum. MYND/ÞRÖSTUR EYSTEINSSON
HELSTU ÓGNIR SEM STEÐJA AÐ SKÓGRÆKT Á ÍSLANDI
STIKLAÐ Á STÓRU
1898 Ríkið keypti tvo höfuð-
skóga Íslands, Hallorms-
staðaskóg og Vaglaskóg,
til að forða þeim frá
eyðingu. Heimildin veitt
með lögum frá Alþingi
sem voru fyrstu skref í
náttúruvernd á Íslandi.
1907 Lög til stuðnings skógrækt.
Með lögunum var stofnað
til Skógræktar ríkisins.
Agner F. Kofoed-Hansen
ráðinn skógræktarstjóri
og tók til starfa í febrúar
1908.
1914 Skógræktin fékk umsjón
með Vatnaskógi í Svínadal
og Laugarvatnsbrekkum.
Báðir friðaðir sama ár.
1927 Skógræktin eignast og
friðar Ásbyrgi og Sig-
ríðarstaðaskóg í Ljósa-
vatnsskarði. Fékk einnig
umsjón með Þórsmörk og
Goðalandi.
1930 Skógræktarfélag Íslands
stofnað á Þingvöllum.
Skógræktarfélög stofnuð
víða um land á næstu
árum.
1935 Hákon Bjarnason tekur við
sem skógræktarstjóri.
1940 Ný skógræktarlög sett á
Alþingi.
1944 Landgræðslusjóður stofn-
aður í tilefni lýðveldis-
stofnunar.
1955 Ný skógræktarlög. Sömu
markmið og 1907: vernda
skógarleifar, rækta nýja
skóga og leiðbeina um
skógrækt.
1967 Rannsóknastöð Skógrækt-
arinnar stofnuð á Mógilsá
í Kollafirði fyrir þjóðargjöf
frá Norðmönnum.
1970 Fljótsdalsáætlun.
1977 Sigurður Blöndal tekur við
sem skógræktarstjóri.
1984 Kafla um nytjaskógrækt á
bújörðum bætt við skóg-
ræktarlögin.
1980 - Mikil endurnýjun í
skógfræðingastétt. Vigdís
Finnbogadóttir forseti
vinnur stórvirki við að afla
skógrækt fylgis.
1990 Jón Loftsson skógræktar-
stjóri. Landgræðsluskógar
og Héraðsskógar hefjast
og gróðursetning trjáa fer
úr einni milljón plantna í
þrjár og hálfa á áratug.
1995 Rússalerki í Hallorms-
staðaskógi, gróðursett
1937, nær 20 metra hæð.
2000 Lög sett um landshluta-
verkefni í skógrækt.
2006 Hekluskógaverkefnið hófst
og varð sjálfstætt 2008.
2008 Hugtakið þjóðskógar tekið
upp yfir skóga í eigu og
umsjá Skógræktar ríkisins.
2009 Skógrækt ríkisins færð
undir Umhverfisráðuneyt-
ið.
Febrúar – heima-
síða Árs skóga á
Íslandi opnuð.
Átakið Þekkjum
skógartrén á
heimasíðu kynnt.
Hugað að mynd-
listarsýningu
undir heitinu
Skógurinn í
íslenskri myndlist.
ALÞJÓÐLEGT ÁR SKÓGA DRÖG AÐ DAGSKRÁ
áhugamanna og félaga. Í landinu
eru í dag yfir sextíu skógræktar-
félög, með mismikið umleikis. Þau
eru starfrækt um allt land undir
hatti Skógræktarfélags Íslands.
Auk skógræktarfélaganna rækt-
ar umtalsverður fjöldi bænda um
allt land skóga og starfrækja þeir
Landssamtök skógareigenda.
Stór verkefni eru unnin innan
landshlutanna og er ástæða til að
geta sérstaklega. Öðruvísi fæst
ekki yfirsýn yfir skógræktina í
landinu.
Landshlutaverkefni
Markmiðið með landshlutaverk-
efnum í skógrækt er að gefa sem
flestum tækifæri til að taka þátt í
fjölnytjaþróun og viðhaldi byggðar
í öllum landshlutum, jafnframt því
að græða og bæta landið fyrir kom-
andi kynslóðir. Gert er ráð fyrir að
umfang skóganna verði um fimm
prósent af landi sem er 400 metr-
um yfir sjó. Verkefnin skapa grund-
völl fyrir marga til að halda áfram
búsetu á jörðum sínum og fyrir
aðra skapa þau nýtingarmöguleika
á jörðum sem áður voru lítið nýtt-
ar.
Með tilkomu þessara verkefna í
skógrækt hefur skógrækt á lögbýl-
um víða um land aukist undanfar-
in ár, því nú geta landeigendur sótt
um framlög til skógræktar á jörð-
um sínum. Landshlutaverkefnin eru
fimm talsins. Þau starfa sjálfstætt
og mótast þróun hvers verkefnis af
aðstæðum og áherslum í hverjum
landshluta.
Landgræðsluskógar
Landgræðsluskógar er skógrækt-
ar- og uppgræðsluverkefni á vegum
skógræktarfélaganna í samstarfi
við Landgræðslu ríkisins, Skógrækt
ríkisins og umhverfisráðuneytið. Á
vegum verkefnisins hafa skógrækt-
arfélögin séð um gróðursetningu á
um einni milljón trjáplantna árlega
frá árinu 1990. Markmiðið er að
sameina aðgerðir landgræðslu og
skógræktar til að klæða rýr og illa
gróin svæði skógi. Öll eru þau opin
almenningi til útivistar.
Ræktunarsvæði Landgræðslu-
skóga eru víðs vegar á landinu og
eru nú rúmlega hundrað talsins.
Langflest svæðin eru á landi í eigu
sveitarfélaga, ríkis eða skógrækt-
arfélaganna sjálfra. Skógræktarfé-
lögin sjá um framkvæmd verkefn-
isins á hverjum stað, útvegun lands,
friðun og vörslu, gróðursetningu og
umhirðu.
Hekluskógar
Hekluskógaverkefnið er kapítuli
út af fyrir sig og er runnið undan
rifjum Úlfars Óskarssonar, skóg-
fræðings hjá Landgræðslu ríkisins.
Hann hefur unnið að rannsóknum
á ræktun birkis á vikri í nágrenni
Heklu. Áætlað er að rúmlega níutíu
þúsund hektarar lands í nágrenni
Heklu verði innan Hekluskóga-
svæðisins, eða nálægt einu prósenti
af Íslandi. Um sjötíu prósent þess
lands eru nú lítið gróin og á hluta
þess er sandfok og mikið rof.
Ekki íslensk hugmynd
Þegar talað er um skóga á Íslandi
vitna menn gjarnan til orðanna um
að við landnám hafi landið verið
viði vaxið milli fjalls og fjöru.
Það hafi síðan tekið okkur nokk-
ur hundruð ár að nota þennan við
í ýmsum tilgangi og ekki sést fyrir
um afleiðingar þess. Enda litu
sennilega Íslendingar á við sem
hráefni en ekki æskilegan hlut í
umhverfinu af öðrum ástæðum.
Þröstur segir að skiptar skoð-
anir séu um hvað felst í orðum
sagnaritaranna forðum. Almennt
megi þó segja að tilvitnunin eigi
við um láglendið fyrir utan blaut-
ustu mýrar og rasksvæði eins og
nýrunnin hraun og flóðasvæði,
til dæmis sunnan jökla. „Að öðru
leyti var landið þakið birki og á
skjólsælum stöðum og inn til dala
hefur hér verið sæmilega hávax-
inn skógur en við strendurnar og
í meiri hæð yfir sjó hefur þetta
verið kjarr.“
Allt of fáir Íslendingar sjá nefni-
lega að í skóglausu landi vantar
skóg, var upplifun danska sjóliðs-
foringjans Carls H. Ryder, sem
hafði siglt reglulega til Íslands á
síðustu áratugum 19. aldar. Eða svo
segir Þröstur frá í upprifjun hans
um upphaf íslenskrar skógræktar.
Ryder fékk skógfræðiprófess-
orinn Carl V. Prytz til liðs við sig
og saman stofnuðu þeir Islands
Skovsag, sem Þröstur þýðir sem
Skógræktarmálefni Íslands. Þeir
útveguðu styrki fyrir tilraunir í
skógrækt á Íslandi. Stofnað var til
Furulundarins á Þingvöllum 1899
og Grundarreits í Eyjafirði alda-
mótaárið og fóru þar fram tilraun-
ir með innfluttar trjátegundir. Þar
vaxa enn tré frá þessum tíma, en
kannski má segja að þau standi
sem minnisvarði um upphaf langr-
ar vegferðar skógræktarfólks á
Íslandi. Alþjóðlegt ár skóga 2011
vekur athygli á því starfi og mark-
ar grundvöll til að ræða hvernig því
verður best fram haldið.
Sjá skogur.is
Sigurður Blöndal – Skúli Björn
Gunnarsson, Íslandsskógar –
Hundrað ára saga, 1999.
Sérstakar þakkir: Þröstur
Eysteinsson
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní júlí Ágúst September Október Nóvember Desember
Mars – Skógrækt á
Íslandi í framtíðinni
– málstofa á fræða-
þingi landbúnað-
arins.
Apríl – Skógarmyndir óskast – fólki boðið að
senda inn að hámarki tvær myndir fram að
15. okt, þar sem skógur/tré leika veigamikið
hlutverk
21. apríl: „Skógurinn í ljóðlist og bókmennt-
um”
25. apríl: „Vernd, þróun og sjálfbær nýting
skóga á Íslandi“
28. apríl: Heilsdagsráðstefna um „úrvinnslu
timburs úr íslenskum skógum – staða og fram-
tíð. Haldin í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð
Maí-ágúst:
Áhersla á
atburði í
náttúrunni
um land allt.
Hugað að gerð
sjónvarps-
myndar um
hvernig skógar
Íslands hafa
breyst.
September-
desember:
Fundir og ráð-
stefnur. Kynnt
verður fram-
kvæmdaáætl-
un um vernd
og endurheimt
birkiskóga á
umhverfisþingi
í október.
FRAMHALD AF SÍÐU 26