Fréttablaðið - 15.01.2011, Side 47
15. janúar 2011 LAUGARDAGUR1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 Sölufulltrúar Við Ingi Pétursson vip@365.is 512 542 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
EKKERT
VENJULEGT
SJÓNVARP
KLIPPARI
Starfssvið:
Klipping á kynningarefni og auglýsingum ásamt
öðru efni.
Hæfniskröfur:
· Mikil reynsla af Final Cut Pro. Einnig gott vald á
Soundtrack Pro, DVD Studio Pro, Pro Tools og
After Effects
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Reynsla úr sjónvarpi er mikill kostur en
þó ekki nauðsynleg
Um tímabundna ráðningu er að ræða til 1. jan. 2012.
FORRITARI
Starfssvið:
Starfið felst í þróun og rekstri á vefumhverfi þeirra
vefja sem Skjárinn rekur ásamt þróun á ýmsum
stoðkerfum. Flest verkefnin snúa að veflausnum og
gagnagrunnsvinnslu.
Hæfniskröfur:
Við leitum að sjálfstæðum og öflugum forritara.
Einstaklingi sem er annaðhvort með reynslu eða
tilbúinn að læra og þróast með starfinu.
· Reynsla af Python og Django er kostur en
ekki nauðsyn
· Þekking á SQL og Reporting services er kostur
· Góð þekking á JS, CSS og HTML
· Háskólamenntun er kostur en ekki skilyrði
· Áhugi og vilji til að læra nýja hluti
SÖLUMAÐUR AUGLÝSINGA
Starfssvið:
· Sala auglýsinga, tilboðs- og samningagerð við
auglýsendur.
Hæfniskröfur:
· Sjálfstæði, skipulögð vinnubrögð, hugmyndaauðgi
og áræðni.
· Reynsla og þekking á sölu á fyrirtækjasviði, tilboðs-
og samningagerð
· Góð tölvukunnátta, t.d. Excel, Powerpoint, Word
og Outlook
· Reynsla af stjórnun funda og kynninga
· Þekking á fjölmiðlaumhverfi er æskileg
Umsjón með ráðningum hefur Ragna Margrét Norðdahl hjá Skiptum.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir á ragnam@skipti.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar nk.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Við bjóðum fjölbreytt og skemmtileg verkefni hjá fyrirtæki í fremstu röð á sínu sviði.
Skjárinn sér um rekstur SkjásEins, SkjásBíós, SkjásHeims og SkjásGolfs. SkjárEinn og SkjárGolf eru áskriftarstöðvar , SkjárBíó veitir aðgang að kvikmyndum heima í stofu og SkjárHeimur er endurvarp erlendra sjónvarpsstöðva.
Forritari
Hagstofa Íslands leitar að forritara sem hefur þekkingu á hönnun gagnagrunna, gagnagrunnsforritun og gagna-
vinnslu (ETL). Þekking á forritun í .NET umhverfinu er einnig nauðsynleg. Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga
á að vinna í hóp og eigi auðvelt með að starfa með öðrum.
Við leggjum áherslu á að viðkomandi ástundi öguð vinnubrögð og hafi lifandi áhuga á að þróa ferla og
upplýsinga kerfi Hagstofu Íslands.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í tölvunarfræði, kerfisfræði eða sambærilegum greinum er æskilegt.
• Þekking á gagnagrunnsforritun.
• Þekking á .NET forritun.
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
• Góðir samskiptahæfileikar.
Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Laust starf hjá Hagstofu Íslands
Borgartúni 21a
150 Reykjavík
Sími 528 1000
Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2011 og skulu umsóknir berast á eftir-
farandi póstfang: Hagstofa Íslands, starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík
eða rafrænt á netfangið starfsumsokn@hagstofa.is. Öllum umsóknum verður
svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur
verið tekin. Nánari upp lýsing ar veitir Ólafur Arnar Þórðarson í síma 528 1000 eða
á netfanginu olafur.thordarson@hagstofa.is.
Útboð skila árangri!
Viltu vinna við skjalaþýðingar?
14860-Þýðingar á ESB löggjöf
RAMMASAMNINGUR
Ríkiskaup, fyrir hönd Þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins (ÞM),
auglýsir hér með útboð vegna þýðinga á löggjöf ESB. Um er að ræða
lagatexta á ýmsum sviðum úr ensku á íslensku.
Stefnt er að því að semja við a.m.k. 25 verksala.
Jafnt einstaklingum sem fyrirtækjum er boðið að leggja inn tilboð. Gerð
er krafa um háskólamenntun og/eða löggildingu í skjalaþýðingum auk
þess sem æskilegt er að hafa reynslu af textagerð.
Haldin verða hæfnispróf og verða bjóðendur valdir til þátttöku á
grundvelli ferilskrár og tilboðs. Samningar verða gerðir við bjóðendur á
grundvelli tilboðs að því tilskyldu að viðkomandi hafi staðist hæfnispróf.
Umfang og fjöldi verkefna til einstakra þýðenda ræðst af niðurstöðu
gæðamats ÞM.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og
aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is eigi síðar en 19. janúar.
Opnunartími tilboða er 24. febrúar kl. 11:00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni
7c, 105 Reykjavík, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.