Fréttablaðið - 15.01.2011, Page 58

Fréttablaðið - 15.01.2011, Page 58
 15. janúar 2011 LAUGARDAGUR12 Auglýsing um Framkvæmdasjóð aldraðra Samstarfsnefnd um málefni aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2011. Umsóknarfrestur er til 12. febrúar 2011. Hlutverk Framkvæmdasjóðs aldraðra er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land. Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 1/2011. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til velferðarráðherra um úthlutun úr honum. Heimilt er að veita framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra til eftirtalinna verkefna. 1. Bygginga þjónustumiðstöðva aldraðra og dagvista. 2. Bygginga dvalarheimila og sambýla. 3. Bygginga hjúkrunarheimila eða hjúkrunarrýma á öldrunarstofnunum. 4. Til nauðsynlegra endurbóta og breytinga á húsnæði stofnana sbr. lið 1-3. 5. Annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu. Við ákvörðun um úthlutun verður höfð hliðsjón af stefnu velferðarráðherra í öldrunarmálum einkum varðandi fækkun fjölbýla á hjúkrunarheimilum. Skilyrði fyrir framlögum til byggingaframkvæmda, nauðsynlegra endurbóta og breytinga á húsnæði er að framkvæmdir taki mið af viðmiðum velferðarráðuneytis um skipulag hjúkrunarheimila. Umsóknarfrestur er til 12. febrúar 2011. Umsóknum skal skila til Velferðarráðuneytisins, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin má einnig nálgast hér: velferdarraduneyti.is • Umsókn til nauðsynlegra endurbóta og breytinga á húsnæði. • Umsókn vegna nýframkvæmda. • Umsókn um framlag til annarra verkefna en byggingaframkvæmda. Ýmis störf í boði á Hótel Höfðabrekku í Mýrdal frá vori og fram á haust. Vantar matreiðslumenn og aðstoðarfólk í eldhús, þjóna, starfsfólk í gestamóttöku, veitingasal og herbergjaþrif. Húsnæði í boði Áhugasamir sendi umsóknir á hotel@hofdabrekka.is www.hofdabrekka.is Upplýsingar um starfið og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is. ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa um 500 manns, víðsvegar um landið sem og erlendis. ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 1970 og hefur annast ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór- iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Framkvæmdagleði í fyrirrúmi TRÉSMIÐIR Vegna aukinna verkefna óskar ÍSTAK eftir að ráða trésmiði til starfa við framkvæmdir hér á landi og erlendis. Sérstaklega er þörf yfir smiði sem hafa reynslu af mótauppslætti og eru tilbúnir að starfa erlendis til skemmri tíma. Verkefnisstjóri í aðgerðum gegn einelti Verkefnisstjórn á vegum fjögurra ráðuneyta um aðgerðir gegn einelti auglýsir laust til umsóknar starf verkefnisstjóra. Um er að ræða 50% starf til eins árs frá febrúar 2011 í til- raunaskyni. Verkefnisstjórinn mun vinna fyrir verkefnis- stjórn um aðgerðir gegn einelti og hafa umsjón með og fylgja eftir þeim verkefnum sem hún ákveður að skuli fram- kvæmd, m.a. umsjón með fagráði sem tekur við eineltis- málum til úrlausnar. Leitað er að einstaklingi sem er reiðubúinn að takast á við krefjandi verkefni, góður í mannlegum samskiptum, skipu- lagður og vanur að vinna sjálfstætt. Nauðsynlegt er að einstaklingurinn hafi víðtæka þekkingu á eineltismálum og reynslu af úrlausn eineltismála. Menntunarskilyrði er háskólapróf í uppeldisfræðum, sál- fræði, félagsráðgjöf, náms- og starfsráðgjöf eða af öðrum sambærilegum sviðum. Enn fremur er lögð áhersla á góða færni í ensku og að minnsta kosti einu Norðurlandamáli. Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg og reynsla af störfum á opinberum vettvangi er kostur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í upphafi árs 2011. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskóla- menntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Umsóknir ásamt greinargóðum upplýsingum um menntun og starfsferil sendist Verkefnisstjórn um einelti, mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, merktar: „Verkefnisstjóri gegn einelti“, í síðasta lagi þriðjudaginn 2. febrúar 2011. Nánari upplýsingar veitir Jóhanna María Eyjólfsdóttir, verkefnastjóri, í síma 545 9500 eða í tölvupósti á johanna.maria.eyjolfsdottir@mrn.is Mennta- og menningarmálaráðuneyti 14. janúar 2011 gleraugnaverslun í Smáralind óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf við sölu- og þjónustu Hæfniskröfur: ■ Reynsla af sölu- og þjónustustörfum skilyrði. ■ Umsækjendur þurfa að hafa náð 25 ára aldri. ■ Áhugi á tísku og útliti kostur. ■ Snyrtimennska skilyrði. ■ Reglusemi og stundvísi skilyrði. Umsóknir sendist á fannykolbrun@opticalstudio.is fyrir 24. janúar 2011. w w w . o p t i c a l s t u d i o . i s Matreiðslumaður óskast Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund óskar eftir matreiðslu- manni til starfa. Hann þarf að vera hugmyndaríkur, sam- starfsfús og viljugur að setja sig inn í óskir heimilisfólks um mataræði. Viðkomandi mun hafa yfirumsjón með starfsmannahaldi eldhússins, gerð matseðla, matreiðslu og matarinnkaupum heimilisins. Hægt er að sækja um starfið á www.grund.is. Nánari upp- lýsingar veitir Júlíus Rafnsson framkvæmdastjóri Grundar í síma 5306100 og einnig er hægt að senda honum tölvupóst á julius@grund.is óskar eftir framtíðar starfsmanni á réttinga og sprautuverkstæði sitt sem staðsett er á Akureyri. Um er að ræða starf fyrir bifreiðasmið eða bifvélavirkja. er vel útbúið réttinga og sprautuverkstæði. Megin starfsemi CAR-X er bílaréttingar-bílasprautun- plastviðgerðir-framrúðuskipti. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir berist á car-x@car-x.is með upplýsingum um menntun og fyrri störf. Njarðarnesi 8. 603 AkureyriStarfsmaður í mötuneyti Embætti ríkisskattstjóra starfar á landsvísu við úrlausn margbreytilegra verkefna. Rík áhersla er lögð á góðan vinnustað, þar sem fjölbreyttur hópur samhentra starfsmanna sinnir vel lögboðnum verkefnum og þjónustu. Ríkisskattstjóri leitar að áhugasömum og dugmiklum einstaklingi til starfa í mötuneyti embættisins að Laugavegi 166. Vinnutími er frá kl. 10:30 – 14:00 virka daga. Starfið felst í framreiðslu matar, uppvaski, frágangi og þrifum í eldhúsi undir stjórn yfirmanns í mötuneyti. Einnig afleysing yfirmanns þegar þörf er á. Menntunar- og hæfniskröfur: Fáguð framkoma, þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum. Hæfileiki til að vinna undir álagi. Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi. Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Upplýsingar um starfið gefur Inga Hanna Guðmundsdóttir starfsmannastjóri RSK í síma 442 1151. Umsóknarfrestur er til og með 29. janúar 2011. Umsókn skal fylla út á vef embættisins, www.rsk.is og láta ferilskrá fylgja með í viðhengi. Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við SFR. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.