Fréttablaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 64
6 FERÐALÖG SAMEINAR NÁM OG SKEMMTUN FYRIRTÆKIÐ Námsferðir er við Klapparstíg 25-27 í Reykjavík. ÞAR STARFAR Hulda Stefánsdóttir stofnandi þess sem er með net- fangið hulda@namsferdir.is VEFSÍÐAN er www.namsferdir.is NÁMSFERÐIR BJÓÐA UPP Á: Starfsþjálfun í Evrópu sem hefst á tungumála- og undirbúningsnámi. Málaskóla víða um heim. Sjálfboðastörf til að kynnast framandi menningu og um leið leggja fram aðstoð. Au pair sem gætir barna og sinnir léttum húsverkum. Camp America er starf við sumarbúðir víðs vegar um Bandaríkin. Þ etta var svolítið yfir- þyrmandi fyrst en breyttist fljótt til hins betra og varð bara rosa- lega gaman. Starfsfólkið var úr öllum áttum og allt mjög vingjarn- legt. Þarna var fólk frá Úkraínu, Póllandi, Kólumbíu, Tyrklandi, Ástralíu og Nýja-Sjálandi og svo vorum við tvær frá Íslandi, báðar á vegum Námsferða. Enskan var aðaltungumálið á staðnum og ég lærði mikið í henni yfir sumar- ið.“ Þannig byrjar Lilja Björk Jónasdóttir lýsingu á vinnu sinni í sumarbúðum í Freedom í New Hampshire í Bandaríkjunum sem merktar eru Camp America. Lilja Björk kveðst hafa frétt af sumarbúðunum gegnum bekkjar- systur sína í Versló. „Það var hægt að sækja um sem leiðbeinandi barnanna eða vinna við eitthvað annað í búðunum. Ég var í eldhús- inu. En fleiri störf eru í boði.“ Í búðunum dvöldu hópar níu til fimmtán ára stúlkna, tvær vikur hver, að sögn Lilju Bjarkar. „Þetta eru ekki vandræðabörn, heldur þvert á móti rosalega fínar stelpur,“ tekur hún fram. „Það var líka góður agi í búðunum, bæði á börn- unum og okkur sem unnum þar. Það var ætlast til að við í starfslið- inu værum góðar fyrirmyndir. Til dæmis var okkur bannað að reykja og drekka. Tilgangurinn með dvöl stelpnanna er meðal annars sá að styrkja sjálfsmynd þeirra enda fást þær við ýmislegt sem er bæði krefjandi og skemmtilegt. Það er erfitt að komast að sem leiðbein- andi, þeir þurfa að hafa stundað fimleika í mörg ár, hestamennsku eða annað sem þeir geta miðlað.“ Lífið hjá Lilju Björk snerist ekki bara um eldhússtörf. Hún kveðst hafa fengið nokkrar góðar pásur yfir daginn og tvö kvöld í viku hafi boðist rútuferð til bæjar í grennd- inni þar sem hægt var að ganga um götur og kíkja í búðir. Einn- ig hafi verið einn frídagur í viku og þá hafi hún ýmist farið í ferða- lög eða verið á svæðinu kringum sumarbúðirnar, sólað sig við stöðu- vatn, siglt á kajökum og bátum eða svifið um á vatnaskíðum. „Svo voru líka hestar þarna svo það var hægt að bregða sér á bak,“ segir hún hressilega. „Veðrið var rosa- lega gott allt sumarið og gaman að vera úti við.“ Já, svo gaman þótti Lilju Björk að hún sótti aftur um vinnu á sama stað á komandi sumri og fékk í vikunni staðfestingu á að hún væri ráðin. „Mig langar að komast í eitt- hvað annað en eldhúsið í sumar en það kemur í ljós hvað mér verður ætlað að gera,“ segir hún hress. Hún kveðst hafa fengið laun í fyrra- sumar en þegar fargjald, trygging- ar og annar kostnaður hafi verið greiddur hafi hún komið út á núlli. „Svona ferð snýst ekki um peninga heldur að safna í reynslubankann með því að kynnast fólki og upplifa eitthvað nýtt.“ - gun SIGLT Á KAJAK OG SVIFIÐ Á SKÍÐUM Að afl oknu stúdentsprófi úr Verzlunarskóla Íslands í fyrravor ákvað Lilja Björk Jónasdóttir að víkka sjóndeildarhringinn og sækja um vinnu við sumarbúðir barna í Bandaríkjunum gegnum fyrirtækið Námsferðir. Hún kom ánægð heim og ætlar aftur í vor. Útþrá Lilja Björk býr sig undir að fara út í annað sinn til að vinna í sumarbúðunum YMCA Camp Huckins í New Hampshire sem eru á bökkum stöðuvatns. MYNDIR/GVA OG ÚR EINKASAFNI Losaðu þig við sykurfíknina og kræktu þér í leiðinni í fullt af orku með TURBO GREENS orkuduftinu frá Gillian McKeith! Þú færð Turbo Greens í heilsubúðum, apótekum og heilsuhillum stórmarkaðanna Turbo Greens duftið er mitt meðal til að komast í gírinn og takast á við verkefni dagsins. Ég hef sl. 4 ár tekið kúra af Turbo Greens og finn alltaf sömu frábæru orkubreytinguna, blóðsykursjafnvægi kemst á og ég hætti öllu narti. Eins til tveggja glasa kúr nægir mér af og til. Blandan hjá Gillian er hrein og troðfull af næringarefnum. Tilvalið nú í skammdeginu! Ólína Elísabet 32 ára þriggja barna húsmóðir með meiru. Turbo Greens er kröftug blanda af náttúrulegri ofurfæðu: SPÍRULÍNU, BYGGGRASI, HVEITIGRASI, AÐALBLÁBERJUM, EPLAPEKTÍNI OG SÍTRÓNUBERKI. Sannkölluð orku- og næringarsprengja, auðmeltan- leg, glútenlaus, prótein-, steinefna- og vítamínauðug. Þessi blanda er mjög svo blóð-sykursjafnandi og er æskilegt að taka inn 1-2 tsk. á morgnana. Í tveggja teskeiða skammti er nægjanleg dagleg þörf af vítamínum og steinefnum. Hrærið duftinu í vatn eða eplasafa, einnig er gott að blanda því í próteinhristinga. 20% afsláttur frá 15-30 janúar Innflutningsaðili: G engur vel ehf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.