Barnablaðið - 01.02.1968, Page 13

Barnablaðið - 01.02.1968, Page 13
menn, sem venjulegast mættu ekki neinum kærieika, — heimilislausir farandsveinar. Allt það harðrétti, sem þeir höfðu orðið að þola, hafði gert þá þolgóða og seiga, röska og slæga. Með ymis konar kænskubrögðum drógu þeir fram lífið. Að blóta, ljúga og stela, var dagleg- ur háttur þeirra. En þrátt fyrir eymd þeirra og allsleysi voru þeir glaðir og hugrakkir, og kviðu hvorki hungri né köldum vetrum. Þeir fengu ávallt hið bezta út úr öllu. Þessi óvænta máltíð var næg ástæða til að örva gleði þeirra, og þarna sátu þeir og mauluðu eins og smá- apar. Allir erfiðleikar frá liðna tímanum voru nú gleymdir í bili. Og áhyggjur morgun- dagsins voru ekki til fyrir þá. Hvað sem öllu leið var dýrðlegt í dag, og allir nutu sín full- komlega. Hamid sat og virti þá fyrir sér. Hann var upp með sér af því að heyra til þessunr félags- skap. Uppalinn úti á landi, sem hann var, hafði hann aldrei áður hitt drengi, sem yoru líkir þessum. Honum fannst þeir, í einu orði sagt, vera undursamlegir. Þeir voru óskap- lega óhreinir, satt var það, en hugrakkir, djarfir, karlmannlegir og sjálfsíæðir. Hann þráði verulega að verða þeim líkur, og hann færði sig svolítið nær til þess að geta betur fylgzt með samtalinu og fengið lærdóm af því. Þeir sögðu honum, að þeir drægju fram lífið á ýmsan hátt. Sumir þeirra unnu nokkra daga vikunnar hjá „vefurunum", aðrir hjálp- uðu til í bolluverzlunum, nákvæmlega eins og hann hafði gert þennan dag. Þess á milli gengu þeir um og betluðu eða þá að þeir hjengu útifyrir hótelunum í von um að fá að bera ferðatöskur fyrir einhvern ferða- manninn, eða halda vörð um einhvern bílinn. Nokkrir þeirra voru yfir nóttina í óhrjá- legum stað sem þeir nefndu heimili. En sumir héldu til í moskunum. Það hvíldi einhver óvissa og ögrun yfir allri tilveru þeirra. Raun- verulega var ekki til nema eitt öruggt atriði í allri dagskránni: Kvöldmáltíðin hjá út- lendu kristniboðskonunni. Nú voru þeir að ræða með áhuga það óvænta fyrirbrigði, sem komið hafði fyrir kvöldinu áður. Það hafði komið óþekkt, lítil stúlka, sögðu þeir. Enginn hafði séð hana áður. Ekki vissi heldur neinn, hvaðan hún var, og hún hafði rétt hendurnar til kristniboðskonunnar og kallað hana möminu. En annars hafði hún ekkert talað. Kristniboðskonan hafði tekið hana upp í fang sitt og borið hana inn í stofuna. í dag ætlaði hún að reyna að komast eftir því, hverjir foreldrar hennar væru, hafði hún sagt. „En ef hún nú ekki finnur þá, hvað ætlar hún þá að gera?“ skaut hinn nýkomni drengur inn . „Læiur hún hana þá út á götuna?“ Ayashi leit upp, um leið og hann svaraði með sannfæringu í röddinni: „Nei,“ það gerir hún áreiðanlega ekki.“ „En hvernig getur þú verið svo viss um það? Ekki er hún þó hennar barn,“ sögðu liinir í einu hljóði.“ „Nei, hún er svo hjartagóð,“ sagði Ayashi. 10. KAFLI. Það sem eftir var dagsins leið í kyrrð og ró. Ayashi, sem þótti vænt um aðdáun Hamids á sér, sýndi honum borgina. Hann tók hann líka með sér gegnum efra borgarhliðið og upp á fjallið fyrir ofan. Þar var lind, sem spratt fram úr sprungu í berginu. Þegar allar aðrar lindir þornuðu, jDiaut þessi lind aldrei. Vatnið kom langt innan úr berginu og það var því nær eingöngu því að þakka, að hægt var að hafa vatnsleiðslu í borginni. Það var líka þessari lind að þakka, að nóg vatn var til fyrir umhverfið. Nú skildi Hamid, hvers vegna akrarnir voru svo grösugir og hvers vegna sáðslétturnar stóðu í svo miklum blóma. Þessu hafði hann alveg sérstaklega tek- ið eftir, þegar hann um kvöldið kom til þessa staðar. Um hádegið héldu þeir sig nærri hótelinu. Allt í einu fleygði J^jónn einn út nokkrum brauðskorpum og matarleifum, sem gestirnir höfðu skilið eftir á diskunum sínum. Dreng- irnir köstuðu sér óðara yfir þær eins og glor- hungraðir hundar og fengu sér svo miðdegis- blund í skugga kalypustrésins þar skammt £j-£ Framliald á bls. 24. 13

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.