Barnablaðið - 01.02.1968, Síða 41

Barnablaðið - 01.02.1968, Síða 41
frá því, hvers vegna hann gerði þetta, því að hann vildi ekki vera að staa-a sig af miskunn- semi sinni. Það var aðeins heppni, að einn kennaranna komst að því, að hann gerði þetta. ,,Og nú, herrar mínir og frúr, vil ég spyrja ykkur, finnst ykkur ekki, að þessi drengur hafi sýnt hugprýði? Nei, Watson, vertu ekki að fela þig á bak við töfluna. Þú hræddist ekki háð félaga þinna, og þú mátt heldur ekki vera hræddur, er þér er hrósað." Með eldrauðar kinnar kom Watson fram og var tekið á móti honum með húrrahróp- um, er hann gekk fram og tók á móti hinu sjaldgæfa heiðursmei'ki. (Úr Klrkeklokken.) Frœkileg björgun Framhald af bls. 21. gerði það, því að ég vissi að hika er sama og tapa.“ Valdimar varð aðeins snöggvast kímileitur og sagði: „Já, þetta var náttúrlega stórkost- legt bað fvrir ykkur báða og Björn hreink- aðist mikið í andliti og á höndum. en í a!- vöru sagt, þú ert hugrakkur. Geir, og ég ber virðingu fyrir þér og því sem þú og foreldrar þínir trúa á. Þú ert hetja í mínum aueum. Svo þorir þú líka að vera öðruvísi en aðrir og trúa á Jesúm svo aðrir viti það.“ Karl sagði: „Þetta var hraustlega af sér vikið, þetta hefðum við Valdi hvorugur get- að gert. Svo hefði ég líklega ekki þorað að bleyta mig.“ Björn saeði með grátstafinn í kverkunum: „Viltu fyrirgefa mér það sem ég sagði um Guð, nú veit ég að hann er góður.“ „Já, auðvitað fyrirgef ég þér, en eitt átt þú eftir að gera. og það er að biðja Guð að fyrirgefa þér, Bjössi minn, og þegar þú háttar í kvöld, ættir þú að muna eftir því.“ „Já, áreiðanlega, það skal ég sannarlega gera,“ sagði Björn. „Það er það minnsta sem ég get gert. Já, það má nú segja, að Jesús hennar mömmu þinnar er góður, að nota þig til að bjarga mér frá voða.“ „Já, sannarlega," sagði Geir, og andlit hans G Á T A Eitt sinn flutt var yfir á úlfur, lamb og heypokinn, ekkert granda öðru má, eitt og mann tók báturinn. Svar á bls. 19 ljómaði af fögnuði í kvöldsólinni, og blíður andvari strauk um vanga drengjanna. „Ó, Jesús,“ hélt Geir áfram, „er Jesús okk- ar allra, bara ef við viljum þiggja það. — Nokkrum dögum seinna var pabbi Geirs orð- inn alheilbrigður og kominn í vinnu. Garðar Loftsson. 41

x

Barnablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.