19. júní


19. júní - 19.06.1956, Síða 22

19. júní - 19.06.1956, Síða 22
heimta að eiginmenn þeirra afli ekki aðeins tekna fjnár heimilið, heldur að þeir vinni þar að auki húsverkin að miklu leyti. Þessar konur munu raunar vera til, en það eru einmitt þær, sem aldar eru upp í þeim hugsunar- hætti, að þær þurfi ekki að húa sig undir annað en eitthvert hráðabirgðastarf, sem þær eiga að hafa á hendi þangað til þær gifta sig og hætti áS vinna. Þeim bregður oft illa í brún nokkrum mánuðmn eftir giftinguna, þegar þær sjá, að nú eiga þær í raun og veru að fara að byrja áS vinna. Meðan ungar stúlkur eru aldar upp i þeim hugs- unarhætti, sem ennþá er ríkjandi, að konan sé framfærð af eiginmanninum, er ekki við öðru að búast en að finna megi margar slíkar konur, sem íyrv var getið. En þessar konur gera réttindamál- um kvenna hið mesta ógagn, bæði í orði og á borði. Meðan konur eru aldar upp við þá skoðun, að þær séu að mestu ábyrgðarlausir þegnar þjóðfé- lagsins, á takmark okkar langt í land. Kvenréttindahreyfingin hefur ekki reynt sem skyldi að leysa þann vanda, sem rætur sínar á að rekja til þess, að móðurhlutverkið — bamaupp- eldið — tekur aðeins tiltölulega stuttan tima af ævinni hjá þeim konrnn, sem eiga fá böm, og hjá fjölbyrjum enda líka. Vinnudagurinn er þá oft langur og erfiður, en að þeim tíma loknum, er oft sem konunni sé ofaukið í tilverunni, enda þótt hún eigi marga tugi ára ólifaða — á framfæri manns- ins síns. Raunar má ekki gleyma að minnast á hið erf- iða ömmuhlutverk, sem margar konur verða að takast á hendur nú á tímum. Það þarf að vinna að því að jafna störf giftra Mig hefur lengi Ijöðin þy<5 langáÖ til áS braga, en til þess enga átti ég tíS innan beztu daga. Nú er hugsun stirS sem stál, stinga lífsins þyrnar. Brautin reyndist brött og hál, blasa hinztu dyrnar. (E. J.) \_____________________________________________________/ JAKOBlNA JOHNSON skáldkona (Sjá bls. 11). kvenna hæfilega á æviárin og tengja móðurhlut- verkið sérhverju öðru starfi, er konur hafa löngun og hæfileika til að vinna. Kvenréttindafélög og húsmæðrafélög þurfa að taka höndum saman, með aðstoð stjórnarvalda, um að leysa vanda þessara kvenna: Móðurinnar ungu með mörg börn, -— ömmunn- ar störfum hlöðnu, — og fullorðnu konunnar, sem verður að drepa tímann eða, sem syrgir það, að hún varð engrar starfsmenntunar aðnjótandi, af því að hún átti að hœtta aS vinna um leið og hún giftist. Mér er ljóst, að þennan vanda er erfitt að leysa. En gagnsemi margra þeirra réttinda, sem konur hafa fengið að lögum, byggist á því, að þetta vanda- mál verði leyst. Og eitt er vist, að sá vandi verður ekki leystur fyrr en húsmóðurstaðan og hlutverk móðurinnar hefur hlotið fulla viðurkenningu sem þjöSnýtt starf. 10 19. JÚNl

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.