19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1956, Qupperneq 28

19. júní - 19.06.1956, Qupperneq 28
að sjá margar þeirra. Sumar eru ekki nema 1—2 metrar í þvermál og samsvarandi á hæð, en Dago- ban í Anurhadapura, hinni fornu höfuðborg, sem á þessari öld hefur verið grafin upp úr helgreip- um frumskógarins, er svo stór, að Kheops pyra- midinn væri eins og barnaleikfang við hliðina á henni. f Mahavansa er sagt frá því, hvernig Dagoban hlaut þessa lögun. Dutugemunu konungur var mikill byggingameistari, og þegar hann hafði lokið við að láta reisa höll og klaustur, sem engan átti sinn líka, kallaði hann æðsta byggingameistara sinn til sín og spurði hann hvaða lögun hann vildi hafa á næstu byggingu, sem átti að varðveita helg- an dóm hins æðsta. Byggingameistarinn hugsaði sig lengi um. Svo lét hann færa sér gullskál með vatni, beið þangað til vatnsflöturinn varð alveg kyrr, lét svo nokkra dropa detta í skálina úr háa lofti, og eðlilega myndaðist þá krystallstær bóla. „Sjáðu, konungur,“ sagði meistarinn, „þannig ætla ég að reisa Dagoban þina, sem Bubulu-bólu.“ f byggingum þessum er aðeins litið holrúm efst, þar sem múraður er inn einhver verndargripur, í stóru Dagobunni í Anurhadapura er það viðbein úr likama Buddha, sem kom óskaddað úr eldinum, og þannig er hann komin'n í fjórða sinn til Ceylon, og þá til að dvelja þar. Hann er orðinn hluti af þeirri mold, þar sem kenningar hans áttu eftir að blómg- ast og skína skærast, þegar þær voru slokknaðar og gleymdar í föðurlandi hans. Tveir eru þeir staðir á Ceylon, sem Buddha- pílagrímarnir sækja öðrum fremur. Hið heilaga Bo-tré, Ficus religiosa, í Anurhadapura og Adams- tindur, sem er 2241 metri. Bo-tréð, sem talið er vera 2200 ára gamalt og elzta tré veraldar, á að vera kvistur af því tré, er Buddha hvíldi undir, er hann dó. Þetta tré hefur dregið milljónir naktra fóta til sín, í gegn um frumskóga og yfir svimandi há fjöll koma pílagrímarnir. Frá Kína, Thailandi, Burma og Indlandi flykkjast þeir þangað til þess að bera fram fórnir sínar. Oftast eru það blóm, silkibönd, olía eða hrísgrjón. Sagan segir, að þegar Mahinda prins hafi ver- ið búinn að vera nokkur ár á Ceylon hafi hann og konungurinn beðið Asoka keisara um að senda sér kvist af þessu tré, sem hann hafði verndað síðan meistarinn dó. Asoka ákvað að verða við þessari bón. Við tréð standa þau Sanghamitta dóttir hans, er, eins og bróðir hennar, hafði helgað líf sitt til útbreiðslu kenninga Buddha. Bak við þau er allur prestaskarinn. Asoka beygir sig niður og setur gull- skál, með mold í, undir tréð. Og sjá, undrið skeður. Ein af loftrótum trésins teygir sig niður í moldina, slær þar rótum og skilur sig frá móðurtrénu, alveg eins og Ceylon sjálf i fyrndinni skildi sig frá Ind- landi. Sanghamitta kom trénu farsællega til Ceylon þar sem konungurinn óð út í brimgarðinn til að taka á móti því og bera það á land. Nú eru kvistir af þessu tré orðnir að risastórum trjám um allt landið. Hvert musteri hefur sitt tré. Eitt sá ég, sem breiddi lim sitt yfir breiðan þjóðveg. Króna þess var 40 metrar í þvermál, á neðstu greinunum héngu bönd og allavega litar smápjötlur, fórnar- gjafir hinna trúuðu. Adamstindur eða Sri Pada, sem prýðir hið guð- dómlega fótspor, safnar um sig öllum trúarbrögð- um. Efst uppi er fótspor í klettinn, sem dregur alla til sín í sameiginlegri tilbeiðslu. Þeim kemur bara ekki saman um eftir hvern það sé. Auðvita'S Buddha, segja hans áhangendur. Hér stóð hann og horfði yfir landið, stökkti dögg á héraðið við ræt- ur fjallsins — hún breyttist í rúbína í Ratnapúra- dalnum — spyrnti fæti fast í klettinn og flaug til baka til Indlands. Ómögulegt, segja Hindúar. — Sporið er eftir Shiva. Löngu á undan Buddha gisti hann Ceylon til að óska stríðsguðinum Skanda til hamingju með að lokið var striðinu milli dauð- legra og ódauðlegra. — MúhaméSstrúarmaSurinn brosir að þessu. Hann veit, að það var hér, sem Adam og Eva lentu, þegar Allah i réttlátri reiði sinni slöngvaði þeim niður úr Paradís. Eva skildi ekki eftir sig neitt spor, en fótafar Adams er mjög greinilegt. Hinir kristnu krossa sig yfir þessum óguðleik, en hugsa sitt í laumi. Það er 5—6 tíma gangur á þennan blessaða tind, svo að ég kom ekki þangað, en einu sinni, þegar ég var að skoða nýlega byggt musteri í Colombo, spurði vörðurinn hvort okkur langaði ekki til að sjá fótspor Buddha. „Jú, auðvitað,“ svöruðmn við, „en við treystum okkur ekki til að ganga á tind- inn.“ „Ég skal sýna ykkur það,“ sagði hann, tók stóran lykil upp úr vasa sínum og lauk upp stór- um dyrum að litlu herbergi, og þar var afsteypa af sporinu eins og það er í klettinum. Ekki vil ég dæma um eftir hvern það sé, en vel vaxinn hefur hann verið, því að sporið er ýkjalaus metri á lengd og 20 cm. á breidd. Ég hef áður drepið á innrásir Tamila frá Ind- landi. En það leið ekki á löngu eftir að Evrópu- menn fyrir alvöru fóru að sigla til Asíu, að þeir ágirntust þetta fagra og frjósama land. Árið 1505 komu Portúgalar til Ceylon. Singhalesar áttu þá í 16 19. JtJNl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.