19. júní


19. júní - 19.06.1956, Síða 35

19. júní - 19.06.1956, Síða 35
apríl 1943, en í þeim lögum eru fyrirmæli um, að verja skuli þrem milljónum króna til þess að efla alþýðutryggingar. 1 lögum um almannatrygging- ar frá 1946 er svo ákveðið, að fé þetta skuli vera áfram í vörzlu Tryggingastofnunar ríkisins, þar til Alþingi setji lög um atvinnuleysistryggingar. Sjóð- urinn er nú um 4^2 milljón króna. Hann er enn í vörzlu Tryggingastofnunarinnar, enda annast hún reikningshald og daglega afgreiðslu atvinnuleysis- tryggingasjóðs. Árlegar tekjur sjóðsins eru iðgjöld frá atvinnurekendum, framlög frá hlutaðeigandi sveitafélögum og framlög úr ríkissjóði. Atvinnurekandi skal greiða iðgjald sem svarar 1% af almennu dagvinnukaupi Dagsbrúnarverka- manns fyrir unninn tíma, miðað við 48 klst. vinnu- viku. Gjaldskyldur atvinnurekandi telst hver sá, er hefur í þjónustu sinni mann, 16 ára eða eldri, sem tekur laun samkvæmt kjarasamningi eða gildandi launataxta verkalýðsfélags. Framlag sveitafélaga er jafnhátt iðgjöldum at- vinnurekenda, en framlag rikissjóðs er tvöfalt hærra. Tekjur þessar eiga að færast á sérreikninga verkalýðsfélaganna. Stjórn atvinnuleysistryggingasjóðs skipa 7 menn. Alþýðusamband Islands og Vinnuveitendasam- band íslands tilnefna einn mann hvort, hinir 5 eru kosnir af sameinuðu Alþingi með hlutfalls- kosningu. Varamenn skulu vera jafnmargir og að- almenn og valdir með sama hætti. Skipun stjórn- arinnar fer fram eftir gildistöku laganna, og eftir það að loknum hverjum almennum alþingiskosn- ingum. Ráðherra skipar formann og varafor- mann sjóðsstjórnar úr hópi þeirra aðalmanna, sem kosnir eru af Alþingi. TIL HVERRA TAKA LÖGIN? RÉTTUR TIL BÓTA SAMKVÆMT ÞEIM OG BÓTAGREIÐSLUR. Ákvæði laga þessara taka aðeins til atvinnurek- enda, verkalýðsfélaga og meðlima þeirra í kaup- stöðum og kauptúnum með 300 ibúa eða fleiri, einnig til allra erlendra verktaka, sem hafa með höndum framkvæmdir hér á landi. Ráðherra getur ákveðið, að lögin taki til annaar staða, ef verka- lýðsfélög og atvinnurekendur þar óska þess og hlutaðeigandi sveitarstjórn mælir með því. Úthlutun bótafjár fyrir hvert félag eða félaga- samband sé undir stjóm nefndar, sem skipuð er 5 mönnum, þrem frá verkalýðsfélagi eða sam- ----------------------------------------------\ ELlSABET JÓNSDÓTTIR frá Eyvindarmúla: MEÐ HÆKKANDI SÓL % þrái sól og sumar, en sífellt koma él. Þó á ég alltaf vonir, áS öllu farnist vel. Ég bíð sem barn á vetri, að bráðum hœkki sól, er eyði ís og hatri og ylji þeim, sem kól. Já, vorið, vorið kemur, að verma kaldan svörð, og upp úr gœgjast angar um urð og vanrœkt börð. Ó, vorið, vorið góða méð vegsemd kœrleikans, er frið og sættir semur með sólu lífgjafans. \_____________________________________________/ bandi, einum tilnefndum af Vinnuveitendasam- bandi íslands og einum af Vinnumálasambandi samvinnuf élaganna. Rétt til bóta hafa þeir menn á aldrinum 16—67 ára, sem eru fullgildir meðlimir í verkalýðsfélög- um, sem lög þessi taka til. Ýms nánari ákvæði eru um þetta i lögunum, en mér þykir ekki ástæða til að fara ítarlegar út í það hér. Lágmark atvinnuleysisbóta skal vera kr. 12,00 á dag fyrir einhleypan mann, kr. 15,00 á dag fyrir kvæntan mann og kr. 3,00 á dag fyrir hvert barn, allt að þremur, yngra en 16 ára, sem er á fullu framfæri bótaþega. Ákveða má hærri bætur, en þó eigi hærri en kr. 26,00 á dag fyrir einhleypan mann, kr. 30,00 á dag fyrir kvæntan mann og kr. 4,00 á dag fyrir hvert barn, allt að þremur, yngra en 16 ára, sem er á fullu framfæri bótaþega. — Upphæð atvinnuleysisbóta má ekki vera hærri en svo, að þær ásamt öðrum tekjum bótaþega nemi 75% af almennu dagvinnukaupi verkamanna í Reykjavík fyrir 8 stunda vinnu, eða kaupi verka- konu, ef um konu er að ræða. Bótagreiðsluupp- 19. JtJNÍ 23

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.