19. júní


19. júní - 19.06.1956, Page 36

19. júní - 19.06.1956, Page 36
f---------------------------------------->1 ELlSABETJÓNSDÓTTIR frá Eyvindarmúla: TIL DRENGSINS MlNS Hnappaslitinn slóði slítur öllu af sér, votur vöðusöði veit, hvar bleytan er. Finnist forin engin fer hann nið’r að sjó. Mamma mœdd við drenginn margoft í hann sló. v_________________________________________ hæðir þessar eru grunnupphæðir, sem greiða ber verðlagsuppbætur á samkvæmt vísitölu, eftir sömu reglum og greitt er á laun almennra verkamanna í Reykjavík. Samkvæmt lögum þessum má ekki gera fjárnám eða lögtak í bótafé, né halda því til greiðslu opinberra gjalda. Bætur greiðast úr sérreikningi þess félags, sem bótaþegi telst til. Ef fé er eigi fyrir hendi á sér- reikningi félags eða sambands til greiðslu bóta, er sjóðstjórn heimilt að lána stofnfé sjóðsins í þessu skyni. Sé stofnfé sjóðsins einnig þrotið, er heim- ilt að lána milli sérreikninga með ríkissjóðsábyrgð. VINNUMIÐLUN. Jafnframt lögfestingu atvinnuleysistrygginga voru á seinasta Alþingi sett lög um vinnumiðlun. Var það nauðsynlegt til þess að atvinnuleysis- tryggingarnar kæmu að fullum notum. Hlutverk vinnumiðlunar er svo sem segir í 3. grein laganna: a. að veita verkamönnum aðstoð við að finna vinnu við þeirra hæfi, og atvinnurekendum við að fá hæfa verkamenn, hvorutveggja án endurgjalds; b. að miðla vinnu milli verkamanna um land allt, eftir því, sem unnt er; c. að veita öryrkjum og unglingum aðstoð við að finna vinnu við þeirra hæfi; d. að úthluta atvinnubótavinnu, svo og annari vinnu, sem ríki, sveitarstjórn eða opinberar stofnanir óska að úthlutað sé; e. að fylgjast með atvinnuháttum, eftir því sem auðið er, og safna skýrslum og gögnum í því augnamiði; f. að annast atvinnuleysisskráningar 1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember ár hvert, og láta auk þess fara fram atvinnuleysisskrán- ingar eftir fyrirmælum sveitarstjórnar eða fé- lagsmálaráðherra; g. að veita opinberum stofnunum, svo og verka- lýðsfélögum og félögum atvinnurekenda, upp- lýsingar um ástandið á vinnumarkaðnum, eft- ir því sem unnt er; h. að láta launþegum, sem óskað hafa aðstoðar við vinnuráðningar, í té vottorð um atvinnu þeirra eða atvinnuleysi það tímabil, sem þeir hafa verið skráðir sem umsækjendur um at- vinnu; i. að inna af höndum önnur þau störf, sem lög og reglugerðir kunna að ákveða. Það er augljóst, að vinnumiðlun, sem er skyn- samlega stjórnað og vel skipulögð, hefur afar þýð- ingarmiklu hlutverki að gegna á sviði atvinnulífs- ins. Eitt aðalhlutverk hennar er, að vera tengiliður milli vinnuveitenda og verkafólks og taka jafnt tillit til hagsmuna beggja. Með setningu þessara tveggja laga hefur verið leitazt við að leysa aðkallandi nauðsynjamál, og ber vissulega að fagna því. Ýmsir telja, að heppi- legra hefði verið að fara þá leið, að koma á fót sérstakri stofnun, atvinnustofnun rikisins, sem hefði á hendi bæði atvinnuleysistryggingarnar og vinnumiðlunina ásamt fleiru, sem snertir atvinnu- mál. — Ekki mun ég hér leggja neinn dóm á þetta, tel mig líka skorta nægilega þekkingu á mál- unum til þess. En áreiðanlega hefur hér verið haf- izt handa um mjög merkilegt mál, og er mikið und- ir því komið, að vel takist til um alla framkvæmd þess. Svo mikilsvert sem það er, að hægt sé að láta í té atvinnuleysisbætur, er í nauðirnar rekur, er hitt þó langtum meira virði, að geta fyrirbyggt at- vinnuleysi. Engin þjóð getur búið sér farsælt efna- hagsástand, nema atvinnulíf hennar sé heilbrigt og öflugt, en að því ber að stefna. Skrifað í maí 1956. 24 19. JtJNl

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.