19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1956, Qupperneq 37

19. júní - 19.06.1956, Qupperneq 37
KATRÍN ÖLAFSDÓTTIR: „GRAMMÓLINN“ Þungur árniðurinn barst úr fjarska. Inni í litlu, lágu stofunni varð lengra bil á milli drophljóðanna á þeim tveim stöðum, þar sem lekið hafði meðan á rigningunni stóð. Ekkert hljóð lieyrðist úr bænum — ekkert hljóð heyrðist nema minnkandi drop- hljóðið inni í stofunni og þunglyndislegur undir- leikur árinnar, sem ruddi sér braut í djúpum far- vegi skammt frá bænum. Úti fyrir teygðu sig þokuslæður yfir eyðilegu, stórbrotnu landslaginu. Það var eins og við tvö þarna í stofunni værum einu lífverurnar á jörðinni, yfirgefnar í lífvana auðn. Eyðileikinn, kyrrðin, sem einróma árniður og drophljóð virtust vera hluti af, hvíldi á okkur eins og farg. Okkur var hrollkalt í rakri stofunni, þótt við sætum í yfirhöfnunum. Hráslaginn, auðnin, umhverfið höfðu gripið okkur einhverjum heljar- tökum. Skakkir, skældir timburveggirnir þrengdu að okkur, ógnuðu okkur, virtust mundu hrynja yf- ir okkur á hverri stundu. Hugsunarlaust stokkaði ég í sífellu spilin, sem okkur höfðu verið lánuð okkur til dægrastyttingar, og mændi hálfsljóum augum út um gluggakrílið á regnvota jörð og grá- an himin. Skyndilega breyttist myndin í gluggaumgerð- inni. í ljós kom veðurbarið, rauðskeggjað andlit undir barðinu á stórum, upplituðum hatti. Ég tók viðbragð, henti spilunum á borðið fyrir framan mig og opnaði gluggann. Þarna var kominn faðir húsbóndans á þessu hrörlega, afskekkta heiðabýli. „Ykkur leiðist, býst ég við — hafið ekkert til afþreyingar -—“. Röddin var dimm og hikandi. „Nei, nei,“ flýtti ég mér að segja. „Það er allt í lagi með okkur. Það er verst að baka ykkur óþæg- indi með veru okkar hér. Ætli veðrið sé nú ekki að batna — ætli við getum ekki haldið áfram á morgun?“ „Mér datt í hug — ég á grammóla í geymslunni. Á ég að sækja hann — koma með hann hingað?“ Ég varð sein til svars — ég var að velta því fyrir mér, við hvað maðurinn ætti. „Hann er raunar orðinn nokkuð gamall,“ hélt nú röddin i glugganum áfram. „Við höfum ekki spilað á hann í langan tíma.“ Nú þóttist ég skilja, að hann ætti við grammó- fón. Ég flýtti mér að þakka lionum fyrir, og and- litið hvarf aftur af glugganum. Eyðileiki umhverfisins var horfinn og farginu af okkur létt við komu gamla mannsins. Við vorum aftur lifandi verur innan um aðrar manneskjur. Líf færðist um bæinn. Það heyrðist fótatak úti fyrir, strákhnokki skauzt fyrir gluggann, bónda- konan kallaði á hlaðinu. Líf færðist einnig um okkur; við teygðum úr okkur og fórum að spjalla fjörlega saman og hreyfa okkur um herbergið. Innan skamms opnuðust dyrnar upp á gátt, og Rauðskeggur birtist með undarlegan grip í fanginu, er hann setti á borðið hjá okkur. Það var gi'ammólinn. Grammófónn þessi hafði sennilega verið með þeim fyrstu, sem fluttust til landsins. Hann var fyrirferðarmikill, hljóðdósin stór og klunnaleg, stór sveif á hliðinni, og á honum mikil trekt eða lúður. Hef ég hvorki fyrr né síðar séð slíkt — minnti á myndseðla þá, sem eru á His Master’s Voice plöt- unum. Við höfðum nógan tíma til þess að virða fyrir okkur grammólann, því að gamli maðurinn var aftur horfinn úr herberginu, og leið drykklöng stund áður en dyrnar opnuðust að nýju. Unga hús- móðirin kom brosandi inn með ungbarn í fanginu, og tvö eldri börn héldu dauðahaldi í kjólinn lienn- ar. Hún settist á rvimstokkinn, hagræddi barninu í fangi sér, en eldri börnin skotruðu augunum feimnislega til okkar, þessa ókunna fólks, sem dvalið hafði í stofunni á bænum þeirra í tvo drungalega rigningardaga. Á hæla bóndakonunn- ar kom gömul, lotin kona, sem einnig tyllti sér 19. JtJNl 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.