19. júní


19. júní - 19.06.1956, Page 44

19. júní - 19.06.1956, Page 44
TRYGGINGAR Þegar ræða skal um tryggingar, þá verður ávallt fyrst fyrir að athuga hvaS var, og síðan hvað er nú. Aðalatriðið hlýtur þó að vera umræður og at- hugun á því, hvar sé þörf umbóta. Áhrif kvenna- samtakanna eiga að vera sterk við afgreiðslu þess- ara mála, og sem betur fer þá hefur þeirra gætt í ýmsum greinum. Mæðralaun hafa fengizt viðurkennd, og þau hafa verið bætt. Réttur barns til framfærslueyris helzt til 16 ára aldurs, þó að móðir þess giftist aftur, eða öðrum en föður þess, og með hjálp frá fulltrúum sveitafélaganna á Alþingi, þá fékkst fellt niður ákvæði það, sem í frumvarpinu var á síðasta þingi, um að mæður skyldu leita til sveitastjórn- anna um greiðslu lífeyris með óskilgetnum börn- um sínum. Má það að vísu teljast mikilsvert, að fá þaðan aðtsoð til að kveða niður ófögnuð þann, sem breyt- ingartillagan verður að teljast, en meira hefði þó verið um vert, ef mannúðar og réttlætissjónarmið hefðu ein ráðið, og konur hefðu staðið einhuga um málið. Stærsta skarðið, sem höggvið var í þennan varn- argarð smælingja og lítilmagna, sem almanna- tryggingalögin eru, var niðurfelling kaflans um heilsugæzlu. Þegar lög um almannatryggingar voru sett, voru gefin fyrirheit um, að sjúkrasam- lagsiðgjöld og persónuiðgjöld myndu renna sam- an og verða eitt gjald til almannatrygginganna, er nægja myndi fyrir þeim hlunnindum, sem ráð var fyrir gert. Stærsta fyrirheitið vegna framtíðarinn- ar var raunar kaflinn um heilsugæzlu. Bráða- birgðaákvæði voru sett æ ofan í æ um að fresta því að leggja niður sjúkrasamlögin og hrinda af stað heilsugæzlunni, og síðasta stóra „átakið“ er svo að fella kaflann niður úr lögunum. Það reynist örðugt að fá að öllu upplýst, hvað valdi þessum bakföllum, hver er raunveruleg á- stæða til þess að þýðingarmesta fyrirheitinu er varpað út í hafsauga, ef svo mætti segja. Það hefur verið talað um að mjög skorti á um húsakost og annan slíkan útbúnað, til þess að unnt væri að reka heilsugæzlustöðvar. Undirstaða heilsugæzlunnar væri þar lögð. Ennfremur hefur kvisazt, að þetta stórmál hafi strandað á afstöðu læknanna, þ. e. samningar hafi strandað við þá, — sennilega um fjárhagshlið málsins. ■—- Ef svo væri, þá ætti almenningur rétt á að fá vitneskju um þessa hlið málsins frá fyrstu hendi. Heilsugæzla er undirstaða þess að forðast sjúk- dóma, að komast fyrir þá í tíma, gera nauðsynleg- ar ráðstafanir til varnar, áður en sjúkdómurinn hefur náð tökum. Heilsugæzla er fólgin í því, að lifa heilbrigðu lífi, fá til þess holl ráð og leiðbein- ingar, fá siðferðilegan og fræðilegan stuðning til að rata þá vandförnu leið. Á þann hátt mætti spara mikið af meðulum, marga sjúkdómsferðina til læknanna. Á þann veg myndi unnt að forðast marga erfiðleika, bjarga mörgum vinnudögum, bæta efnalega og andlega vellíðan fólksins, færa þjóðinni fleiri sólskinsstundir. Hvers vegna er hopað á þessum vettvangi? Við eigum kröfu á að fá um það að vita allan sann- leikann. Ekkert annarlegt sjónarmið, engir eiginhags- munir mega spilla fyrir framgangi þessa máls. Eina vörnin gegn sjúkdómum og hrörnun er heil- brigt líf. Því skyldi ekkert sparað, er verða má til þess að leiðbeina og hvetja, rannsaka og hjálpa til heilsuverndar. Auk þess, sem gæta þarf að því, að hvers konar lífeyrir greiddur úr tryggingunum skerðist ekki hlutfallslega, miðað við launatekjur verkafólks, þá er næsta og stærsta verkefnið að glæða skilning á því, hvað er heilsugæzla og hvemig á að fram- kvæma hana. Þar má ekki rikja þröngsýni í neinu. Þvi skulum við fá að vita sannleikann um það, hvað olli þess- um afturkipp, og síðan hefjast handa um að stíga næsta spor fram á við. Þvi að verði grafið fyrir rætur meinsemdarinnar, þá mun hún upprætt verða. A. G. 32 19. JÚNl

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.