19. júní


19. júní - 19.06.1956, Page 46

19. júní - 19.06.1956, Page 46
/ >1 19. júní tJTGEFANDI: KVENRÉTTINDAFÉLAG ÍSLANDS Útgáfustjórn: Sigríður J. Magnússon, Valborg Bentsdóítir, Guðný Helgadóttir, Halldóra B. Björnsson, Svafa Jónsdóttir. Ritstjóri: Svafa Þorleifsdóttir. Auglýsingastjóri: Anna G. Bjarnason. Afgreiðsla blaðsins er í skrifstofu K.R.F.I., Skálholts- stig 7, Reykjavík. Simi: 81156. Prentsmiðjan Leiftur. V_____________________________________________________ Þessi eru hin helztu atriði í æviferli Ingunnar Jónsdóttur, en eftir er að skýra frá ýmsu, sem hér er að engu getið. Eðli manna og hæfileika má oft rekja til ætt- ernis, og ber því heldur ekki að ganga fram hjá því, að Ingunn var vel kynjuð í báðar ættir, svo sem áður greinir, þótt margt hafi verið ólíkt með þeim ættum að sögn Ingunnar sjálfrar. Getur hún þess, að sumir einstaklingar af Melaættinni hafi verið einkenndir á þann veg, að þeir hefðu til að hera „Melahæglætið“ eða „Melaminnið“. Hefur Ingunn af hvorugu þessu farið varhluta. Enginn, sem til þekkir, mun efa, að Ingunn hafi erft „Melaminnið“, en vera kann, að einhver dragi frekar í efa hitt með „hæglætið11. Veltur þar á nokkru, hversu hugtak þetta er skilgreint. Orðið getur þýtt það eitt, að maður fari sér hægt að öllu. En önnur dýpri merking getur legið þar fólgin, þ. e. rósöm íhugun og æðruleysi. En þetta tvennt, íhugun og æðruleysi, var mjög áberandi í fari Ingunnar á Kornsá. Um aðra arfgenga eðlis- þætti Ingunnar mun ekki fjölyrt hér. Hitt má hins vegar fullyrða, að uppeldi á heimili, þar sem gamlar venjur og fastmótaður heimilisbragur ríkti, hlaut að hafa djúp áhrif á skapgerð hvers manns, er þar eyddi bernsku- og æskudögum sínum. — Æskuheimilinu lýsir Ingunn meðal annars á þessa leið: „Lífsgleði var ekki mikil, en allt traust, vandað og áreiðanlegt.“ Á öðrum stað kemst hún svo að orði: „Það hefur sína kosti og ókosti að al- ast upp á slíku heimili. Að vísu verður maður 1—T'Tfl ‘ ‘. I , ; ; aldrei fyrir aðkasti og ósvífni, en aftur var maður eins og ófiðraður ungi, þegar úr hreiðrinu kom, þekkti heiminn lítið og varð að þola margan ónota- legan kuldanæðing, áður en maður fékk á sig þá skel, sem hlífði fyrir aðkasti hans“. Þrátt fyrir þetta, verður þó eigi annað séð, en að Ingunn hafi furðu fljótt orðið fær um að mæta erfiðleikum lífs- ins, enda mun „Melahæglætið“, íhyglin og æðru- leysið, hafa valdið þar nokkru um. Eins og áður er getið, varð ferðalagið austur í Hornafjörð næsta sögulegt, svo sem nú skal greina. Bar að vísu ekkert sérlegt til tíðinda á leiðinni frá Melum til Reykjavíkur. Frá Reykjavík tók Ing- unn sér fari með póstskipi til Djúpavogs. En skipið fór fram hjá Djúpavogi og stefndi beint til Fær- eyja. Þar varð svo Ingunn eftir, en skipið hélt til Danmerkur. Eftir þriggja vikna dvöl í Færeyjum komst hún með fiskiskipi til Austfjarða, en síðar með verzlunarskipi, sem auðvitað var seglskip, frá Eskifirði til Djúpavogs. En sú ferð tók 9 daga, því að skipið lá í logni allan þann tíma úti fyrir Berufirði. Með þessu verzlunarskipi voru, auk Ing- unnar, tvær aðrar ungar stúlkur, en það er ein- mitt hún, sem styttir þeim stundir með því að segja þeim sögur eða skemmta þeim á annan hátt. Sjálfri verður henni þetta einnig dægradvöl og stundastytting. „Snemma beygist krókurinn að því, er verða vill,“ segir máltækið. Eigi verður séð, að Ingunn hafi látið hugfallast eða orðið ráða- fátt í þessari ferð, þótt hún væri „ófiðraður ungi úr heimahúsum". Á fyrstu búskaparárum sinum í Grímstungu þurfti Ingunn að berjast við ömurleika óyndis. Bar það til, auk lítilla mannaferða þar um slóðir og slæmra húsakynna, að hún hafði gert sér nokkra von um, skömmu áður en hún fluttist að Gríms- tungu, að komast aftur á æskustöðvar sínar, að Melum. En úr álögum óyndisins losnar hún, þá er hún í allri rósemd hugleiðir hlutskipti sitt, og hyggur hún þá jafnvel, að góð dularöfl séu að verki til þess að benda henni á leið til að losna við farg óvndisins, leiðina þá. að sökkva sér niður í störf sín. Ekki verður Ingunnar á Kornsá réttilega minnzt né fullkomin mynd gefin af andlegum yfirburðum hennar, ef gengið er fram hjá kærleika hennar til barna og hins næma skilnings á sálarlífi þeirra. Var hún jafnan ræðin við börn, bæði um þeirra eigin áhugamál og svo um ýmislegt það, er verða mátti til að vekja áhuga þeirra og umhugsun. Þeg- ar þeim bjó hryggð í hjarta, hvort sem tilefni þeirr- 34 19. JÚNl

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.