19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1968, Qupperneq 9

19. júní - 19.06.1968, Qupperneq 9
Lœrði skólinn „Það er sá einasti vegur til að lijálpa Islandi (ef annars nokkur) segi ég enn og aftur . . .“ (úr bréfi Baldvins Ein- arssonar 1830 um tillögur hans til end- urbóta á lærða skólanum). Lærðu skólarnir höfðu verið tveir, annar í Skál- holti og hinn á Hólum, og oltið á ýmsu fyrir þeim, aðallega vegna naumra fjárveitinga; skortur hæfra kennara og aðbúð þeirra og nemenda eins vesöl og hugsast gat. Það bar upp á nokkurn veginn á sama tíma, að Alþingi var lagt niður og skólarnir sameinaðir í einn, á Hólavelli í Reykjavík. Þetta var um aldamótin 1800. Þá tók ekki betra við. Ætl- unin hafði verið að fá einn góðan skóla, en sem fyrr skorti fé og nothæft húsnæði, og allir sömu annmarkar og áður loddu við skólann. Bjarni amt- maður Thorsteinsson var i Hólavallarskóla 1795 — 1800. Hann segir i ævisögu sinni að rektor hafi verið mjög drykkfeldur sem og konrektor og lær- dómur var eftir þvi. Allir skólapiltar að kalla urðu sjúkir af kláða og öðrum kvillum vegna ills matar- æðis og kulda. „f skólanum var um þær mundir jafn illa séð fyrir líkama og sál,“ 7) segir Bjarni. Árni Helgason stiftprófastur var í skólanum á sama tima og Bjarni og er oft vitnað til þessara um- mæla hans: „Fátækt þekkti ég að heiman, en sult- inum kynntist ég fyrst í skóla.“ 8) Sveinn læknir Pálsson gaf þann úrskurð 1803 að af 32 skólapilt- um í Hólavallarskóla hefðu 24 skyrbjúg og 9 þeirra svo illa á sig komnir að þeir yrðu að liggja rúm- fastir svo vikum skipti.9) Margir biðu þess aldrei bætur að hafa verið í skólanum. Veturinn 1804—1805 varð skóli ekki haldinn á Hólavelli. Það ár var enginn opinber skóli í land- inu. Haustið 1805 hófst. svo skóli á Bessastöðum, þeg- ar í upphafi illa hæft húsnæði og aðeins ætlað til bráðabirgða. Bráðabirgðatími skólans þar varð 40 ár, og vegna ónógs húsnæðis gat skólinn aldrei gegnt hlutverki sínu að fræða þann fjölda sem sótti um skólavist. 1 húsinu voru aðeins tvær skóla- stofur og því aðeins hægt að tvískipta skólanum. Gert var ráð fyrir þrem árum í hvorum bekk, neðri bekk og efri bekk. Skólanum luku menn á 3—7 árum. Annað kom og til. ölmusur eða styrk- 7) Æfisaga, bls. 115. 8) Saga íslendinga VII, bls. 150. B) Sama rit, bls. 150. ir höfðu verið veittar 40 nemendum þegar skól- arnir voru tveir, nú fengu aðeins 24 ölmusur. Þetta var höfuðatriði í landi hinnar miklu fátæktar. Við það að skóli var afnuminn í Norðurlandi og ölmusum fækkaði, reyndist mörgum embættis- og búandmanni erfitt að kosta soninn til mennta á Suðurlandi. Þá fengu menn sér einkakennslu hjá embættismönnum sem tóku að sér að kenna þeim og útskrifa þá að því loknu. Þetta varð svo algengt að 1820—1828 útskrifuðust úr heimaskóla 32 á móti d0 úr Bessastaðaskóla. Ekkert eftirlit var með hæfni þessara kennara framan af og stúdentar úr heimaskóla þóttu ekki eins vel að sér og stúdentar úr Bessastaðaskóla. En 1830 var ákveðið að stú- dentar úr heimaskóla yrðu að ljúka prófi úr lat- ínuskóla ef þeir vildu öðlast rétt til prestsembættis. Bessastaðaskóli hafði það verkefni fram yfir sams konar lajrða skóla í Danaveldi, að hann útskrifaði prestaefni. Þeir sem fóru utan að stunda lög, lækn- isfræði eða annað urðu því líka að taka próf í guð- fræðinni. Á Bessastöðum voru kennd fornmálin, gríska og latína, ekki þó eins mikið í þeim og reglu- gerð ætlaðist til. Hebreskunám var í sambandi við guðfræðinámið. Trúfræði. Nýjatestamentisfræði. Veraldarsaga og landafræði, lítið og ónógt í báð- um fögum. Stærðfræði. Danska. Mjög takmarkað í íslenzku. örfáir lærðu eitthvað i þýzku, einn og einn svolítið í frönsku. Kennarar voru aðeins þrír framanaf, en frá 1822 voru þeir fjórir. Tvískipting bekkjanna olli því að taka varð upp í efri bekk nokkra lærisveina sem ekki voru til þess hæfir, höfðu ekki nógu góða undirstöðu. Bekkirnir hefðu þurft að vera 3—4. Fyrst framan af voru 27 til 32 lærisveinar i Bessastaðaskóla, en eftir 1827 voru þeir 40, auk þeirra 3—5 utanskóla sem fengu að hlýða á kennslu. I skólunum í Skálholti og Reykja- vik voru oftast nál. 30 og á Hólum allt að 28 læri- sveinar. Af þessu sést að með Bessastaðaskóla fœkk- ar nemendum um þriðjung. Páll Melsteð sagnfræðingur var í Bessastaða- skóla 1828—34 og segir í endurminningum sínum, að í sögutimunum hafi allir nemendur skólans safnazt saman í efri bekk. Þá var svo þröngt þar að hver sat undir öðrum. Kennararnir sátu ekki, þeim var enginn stóll ætlaður.10) Kennararnir voru miklir lærdómsmenn svo sem Sveinbjörn Egilsson, Björn Gunnlaugsson og Hallgrímur Scheving og hefur oft verið vitnað til þess. En húsnæðisleysið ----------- Framh. á bls. 39. 10) Endurminningar Páls Melsteðs, bls. 26. 19. J ÚNl 7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.