19. júní - 19.06.1968, Blaðsíða 35
í VATNAHLÍÐ
w
Hefur þú verið í Vatnahlíð?
1 Vatnahlið, þar sem björkin grcer,
sígrœna. björkin, og sunnanblœr
syngur í laufi. í VatnahlíS.
Iiefur þú reikaÖ um rjóðrin grœn,
rjöðrin sígrœn í Vatnahlíð?
Heyrt hvernig syngja á sumartíð
svalandi lindir við rjóðrin græn?
Og fannstu iiminn úr mold og mörk,
frá meiði og lindum í Vatnahlíð?
í Vatnahlíð, sem í vetrarhríð
á viði blómstrandi og gróna mörk.
Við skulum finnast í Vatnahlíð.
Vinarina bíða rjóðrin græn,
vina, sem reika um rjóðrin græn
með raulandi lindum í Vatnahlíð.
Jakobína
Sigurðardóttir
HEIMTUR
ÞJÓÐVÍSA
fíiddarann dreymir í rökkri hvíta hind.
Hún dansar af heiði að djúpri skógarlind,
þá róða slær af austri á fíismálatind.
Vitt flýgur valur yfir skóga.
Hratt flýgur örin, en hraðar rennur þó
hvít hind af heiði yfir hœðir og mó.
Eftir hleypir riddarinn rennsveittum jó.
Vítt flýgur valur yfir skóga.
Eftir hleypir riddarinn, en aldregi nœr
hvítri hind af heiði. í húminu fjær
leiftursnöggu bliki á launstigu slœr.
Vítt flýgur valur yjir skóga.
Gustur fer um viði. Og gráa lokka ber
riddarinn, er hindina í rökkurdraumi sér,
sem mjallhvít af heiði í morgunsár fer.
Vitt flýgur valur yfir skóga.
Hægt strýkur vogana
haustsins kaldi blær.
Heimtust af öræfum
hjarðir i gœr.
„Gimbillinn minn göði,
gullhornum búni.“
Gimbillinn minn góði,
með gullhornin bleik,
œrslast um túnið
í óvita leik.
Dansar hann um túnið —
en dagur bregður lit.
Grunur fer um grasið
við golunnar þyt.
Hverfa mun úr hjörðum,
sem heimtust í gaer,
öræfabarnið
með augun snör og skœr
og fannhvítan lagðinn,
sem fjallgolan þvœr,
„gimbillinn minn góði,
gullhornum búni.“
fíiddarann dreymir í rökkri hvíta hind,
sem dansar af heiði að djúpri skógarlind.
Fallin eru laufin og fokin út í vind.
Vítt flýgur valur yfir skóga.
Hœgt strýkur vogana
haustsins feigðarblær.
„Ekki get ég unað mér
einsömul í túni.“
19. JtJNl
33