19. júní


19. júní - 19.06.1987, Blaðsíða 8

19. júní - 19.06.1987, Blaðsíða 8
eru aldrei fjarri þar sem þú ert og þú hefur tekið upp þann skemmtilega sið að gróðursetja tré með börnunum. „Mér þykir svo vænt um börn. Ég hænist að börnum og börn hænast að mér. Með því skemmtilegra sem ég geri er að fara út á landsbyggðina og heimsækja fólkið og ég tel það hafa visst uppeldisgildi fyrir börnin að fá forsetann í heimsókn. Ég kem í embættisnafni, með embættistáknið - táknið fyrir börnin - sem er bíllinn með fánanum og skjaldarmerkinu. Nú er þetta ekkert sérlega merkilegur bíll. Það eru margir góðir bílar til í landinu, en þessi bíll er með fána ís- lands og skjaldarmerki og bíllinn verður allt í einu ytra tákn um innri raunveruleika og ég sem forseti ís- lands verð líka ytra tákn um innri raunveruleika sem börnunum þykir vænt um. Ef þau ættu að útskýra hver sá raunveruleiki er, mundi það vafa- laust vefjast fyrir þeim, en þessi raun- veruleiki er þjóðernið. Skjaldar- merkið, þjóðfáninn og forsetinn eru þjóðartákn, tákn íslands. Ég held það sé alveg sama í þessu sambandi hvort forsetinn er karl eða kona. Það hefur oft verið talað um hve einhuga allir standa saman um að gera allt sem best úr garði þegar forsetinn kemur í heimsókn og sá samhugur er ómetanlegur hverju sinni." FYRIRMYND BARNANNA Þegar þú varst fyrst kosin forseti fyrir sjö árum og fólk safnaðist saman til þess að hylla þig á Aragötunni daginn eftir kosn- ingarnar, þá man ég að börnin voru ákaflega spennt og hrópuðu: Þarna er hún, þarna er hún! „Já, þetta var óvenjulegt og börnin fundu það. Börn víkja sér ef til vill eðlilegar að konu. Ég veit það ekki og get ekki dæmt um það. Alls staðar þar sem ég hitti fyrir börn þykir mér skemmtilegast hvað þau eru frjálsleg í fasi og háttvís. Þau eru líka hjálp- söm og upplitsdjörf. Ég hitti sjaldan feimið barn.“ - Mynd barnanna af heiminum breytist og börnin sem eru lítil í dag, þekkja ekki annan forseta en þig svo þeim finnst að forseti eigi að vera kona. Þú ert auðvitað fyrirmynd barnanna í dag. „Já, það gefur augaleið." - Og nú geta litlar stúlkur sagt: Ég ætla að verða forseti þegar ég verð stór. . . „. . . sem er nú skemmtilegt. Veistu að stclpur eru farnar að koma Vigdís á heilsubótargöngu vilð Ægissíðuna. (Ljósmynd Kut Hallgrímsdóttir). TÁKNIN OG ÞJÓÐERNIÐ / nýjársræðum þínum hafa komið fram móðurleg sjónarmið og um- hyggja fyrir æskunni. Þú hefur flutt varnaðarorð til æskufólks að forðast hættuleg efni og hvatningu um að lifa heilbrigðu lífi. „Ég ber mikinn hlýhug til þeirrar gjörvulegu æsku sem hér er að vaxa upp og horfi til hennar með aðdáun. Því liggur mér á hjarta að koma til 8 skila ákveðnum varnaðarorðum, vegna þeirrar lífsreynslu sem ég hef sem mannvera á miðjum aldri. Ekki má gleyma því að hluti af allri mennt- un er auðvitað þroski hvers og eins. Því eldri sem maður verður þeim mun meira hefur maður séð bæði af því sem vel fer og því sem miður fer.“ - Á ferðum þínum um landið hef- ur það einnig verið áberandi að börn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.