19. júní


19. júní - 19.06.1987, Blaðsíða 91

19. júní - 19.06.1987, Blaðsíða 91
Róbert Arnfinnsson leikari að gleður mig ætíð þegar gott, nýtt íslenskt leikrit nær að komast á fjalirnar. Því miður er það allt of sjaldgæft. En aukin gróska í starfsemi leikhúsanna á seinni árum, hefur meðal annars leitt það af sér æ fleiri nýir íslenskir höfundar hafa fundið hjá sér hvatn- ingu til að skrifa fyrir leikhús og talið það vera ómaksins vert. Ég fagna því. 30. desember s.l. hóf göngu sína á hinu ágæta nýja Litla sviði Þjóðlcik- hússins að Lindargötu 7 leikrit Þór- unnar Sigurðardóttur, í smásjá. Þór- unn er gróin leikhúsmanneskja og skilur kröfur, en um leið takmörk leiksviðsins. En það þarf meira til; það verður að minnsta kosti að vera eitthvað bitastætt ef ekki boðskapur, sem höfundur hefur fram að færa í verki sínu. Það tekst Þórunni á undraverðan hátt, jafnvel þótt hún verði að teljast til ungra höfunda á þessum vettvangi, hún hefur efnið og mótun þess fullkomlega á valdi sínu að því er virðist. í smásjá er auk þess frábærlcga vel unnin sýning í alla staði, þar helst allt í hendur: sviðsetn- ing. leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar og afburðanæmur skilningur og góð úrvinnsla leikenda á hlutverkum sínum. Sem sagt, sýning Þjóðleikhús- inu til sóma og öðrum til fyrirmyndar. Ég óska Þórunni og öðrum að- standendum sýningarinnar til ham- ingju með vel unnið verk og verð- skuldaðan árangur! Jónína Ólafsdóttir leikari Leikritið sjciptist á augljósan hátt í tvo hluta; skel og kjarna. Fyrri hlutinn fjallar um persónur sem lifa yfirborðs- kenndu, vélrænu lífi, það er metnað- argjarnt út á við og heimilislífið er ömurlega tómlegt og ófullnægjandi. í seinni hlutanum, þar sem fjallað er um veikindi Dúnu neyðast þessir fjórir einstaklingar til að horfast í augu við raunveruleikann eða mikil- vægi lífsins og tilgang. Bæði skrif verksins og leikur fór hér á flug, þannig að eftir að hafa haft blandna ánægju af upphafinu, fór það beint inn í kviku á mér. Senan á milli Dúnu og Alla aðstoðarlæknis, þar sem þau ákveða að elskast var svo vel gerð og falleg að ég hélt niðri í mér andanum á meðan. Bæði sjónvarpsskermar og hljóð- effektar í fyrri hluta hefðu niátt missa sig, nema þegar um hreina sjónvarps- útsendingu var að ræða. Eins fannst mér uppgjör Bjarna alveg í lok leik- ritsins vera óþarfi. Þetta hvoru- tveggja hefði hjálpað heildarsvip verksins. Sigurður Björnsson læknir Þótt nokkuð sé um liðið frá því ég sá sýninguna / smásjá stend- ur hún mér lifandi fyrir hug- skotssjónum. Mér fundust tök höfundar á vandmeðförnu efni vera mjög góð og úrvinnsla hennar, leik- stjórans og leikendanna með ágæt- um. Það þarf talsvert áræði til að skrifa leikrit um jafn viðkvæmt efni og þarna er tekist á við og má lítið út af bera til að ekki fari illa. Sú staðreynd að nær allir kunningj- ar mínir úr heilbrigðisstéttum sem ég hefi rætt við eftir að hafa séð sýning- una hafa borið lof á hana, ber vott um að höfundi hafi tekist vel og náð að bregða upp trúverðugri mynd af sársaukafullri viðburðarás. Hins veg- ar eru þeir sem valið hafa sér störf utan sjúkrahúsa, þar á meðal ýmsir gagnrýnendur dagblaðanna, sem finna leikritinu flest til foráttu, enda eru vandamálin sem fjallað er um þess eðlis að enginn tekst á við þau ótilneyddur og margir forðast að hugsa unt þau. Þcir hinir sömu eiga líka sannarlega rétt á því að vclja sér annað skemmtiefni eina kvöldstund í leikhúsi. 91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.