19. júní


19. júní - 19.06.1987, Blaðsíða 97

19. júní - 19.06.1987, Blaðsíða 97
GREIN: LÁRA V. JÚLÍUSDÓniR STARFSEMI KRFÍ Það sem einkum einkenndi starf KRFÍ sl. ár er þrennt: í fyrsta lagi urðu formannsskipti á aðalfundi félagsins 1986. Hefur nýr formaður, Lára V. Júlíusdóttir, þurft að setja sig inn í öll mál, enda hefur hún ekki átt sæti í stjórn félagsins áður. í öðru lagi hefur áhersla verið lögð á stjórnmálaþátttöku kvenna í tengslum við prófkjör og lista- uppstillingar vegna komandi Alþingis- kosninga. 1 þriðja lagi átti félagið áttatíu ára afmæli 27. janúar sl. og var haldið upp á afmælið með veglegum hætti. STJÓRN FÉLAGSINS / stjórn félagsins áttu sæti auk for- manns þetta ár, Arndís Steinþórs- dóttir, varaformaður, Jónína Margrét Guðnadóttir, ritari, Erna Bryndís Halldórsdóttir, gjaldkeri, meðstjórnendur voru Ásthildur Ketils- dóttir, Helga Sigurjónsdóttir, Áslaug Brynjólfsdóttir, Valgerður Sigurðar- dóttir, Ragnheiður Björk Guðmunds- dóttir, Kristín Jónsdóttir og Dóra Guðmundsdóttir. í varastjórn voru Edda Hermannsdóttir, Dóra Eyvindar- dóttir og Sólveig Ólafsdóttir. Vara- menn kjörnir á landsfundi voru Val- borg Bentsdóttir, Gerður Steinþórs- dóttir, Sigurveig Guðmundsdóttir, Guðrún Sæmundsdóttir, Sigurlaug Gunnlaugsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Sjöfn Halldórsdóttir, Eygló Pétursdótt- ir, María Ásgcirsdóttir, Ásthildur Ólafsdóttir, Ásdís J. Rafnar og Björg Einarsdóttir. Á aðalfundi 16. mars sl. létu Erna Bryndís Halldórsdóttir og Edda Hermannsdóttir af stjórnarstörf- um. Erna Bryndís tók sæti Eddu í vara- stjórn, en gjaldkeri var kosin Ragn- heiður Harðardóttir. Stjórn og varastjórn KRFÍ kom saman til funda að jafnaði einu sinni í mánuði sl. starfsár og hélt samtals 11 stjórnarfundi, en auk þess hittist framkvæmdastjórn, sem í eiga sæti formaður, varaformaður, ritari og gjaldkeri. reglulega einu sinni í viku nema yfir hásumarið. Þegar mikið hefur verið að gera, t.d. vcgna afmælisins voru fundir framkvæmdahóps tíðari, allt upp í daglega. Skrifstofa félagsins hefur verið opin daglega mánudaga til fimmtudaga frá kl. 13.00-16.00, ncma yfir hásumarið. Val- gerður Sigurðardóttir, sem verið hefur framkvæmdastjóri félagsins í tæp tvö ár, lét af störfum um áramót, og tók þá Björg Jakobsdóttir við því starfi. Félagsmönnum hefur fjölgað á árinu og eru nú rúmlega 500. Aðildarfélög eru 41. Enn ber nokkuð á því að félagsgjöld inn- heimtast illa, og háir það starfsemi félags- ins þar sent fjárhagur þess byggist nær ein- vörðungu á félagsgjöldum, en það er nú kr. 800,00 fyrir einstaklinga og 1200,00 fyrir aðildarfélögin. FÉLAGSFUNDIR Alntennir félagsfundir voru haldnir mánaðarlega, oftast hádegisfund- ir, um þau mál sem efst voru á baugi hverju sinni. Hinn 17. apríl var haldinn fundur í Gauk á Stöng og var umræðuefnið getnaðarvarnir og þings- ályktunartillaga Kvennalistans um þátt- töku sjúkrasamlaga í kostnaði við getnað- arvarnir. Á fundinn komu Kristín Hall- dórsdóttir, fyrsti flutningsmaður til- lögunnar og Ingimar Sigurðsson, deildar- stjóri úr Heilbrigðis- og tryggingarráðu- neytinu. Það var almenn skoðun fundar- manna að auðvelda þyrfti aðgengi allra að getnaðarvörnum, t.d. var lögð áhersla á að selja verjur í verslunum og bensín- stöðvum. í kjölfar fundarins ritaði stjórn félagsins hcilbrigðisráðherra bréf og fór á hans fund til að ræða vandamálið. Laugardaginn 10. maí var haldinn fund- ur á Hótel Borg með konum í framboði til sveitarstjórna. Þar skýrðu frambjóðendur mál sín á fjörugum fundi fegursta dag vorsins. Sólveig Ólafsdóttir var fundar- stjóri, en Ásthildur Ketilsdóttir og Val- gerður Sigurðardóttir önnuðust undirbún- ing fundarins auk Sólveigar. Þann 2. október sl. var haldinn hádegis- fundur að Litlu Brekku undir slagorðinu Konur í kosnmgaham. Var Guðríði Öddu Ragnarsdóttur sálfræðingi boðið að koma og ræða um það hvaða leiðir konum séu færar til að láta að sér kveða í stjórnmál- um og þá út frá sjónarhóli sálfræðinnar. Hvort einhverjir sálrænir þættir kæmu í veg fyrir þátttöku kvenna og hvernig mætti sporna við ef svo væri. 15. nóvember var haldinn hádegisfund- ur - eða sambland hádegis og morgun- fundar - í kjallaranum að Hallveigarstöð- um, enn undir slagorðinu Konur í kosn- ingaham. Nú var tekið til umræðu efnið Eru prófkjör leið kvennanna á þing? Frummælendur voru Sólveig Pétursdóttir, Áflheiður Ingadóttir og Unnur Stefáns- dóttir. Var fundurinn vel sóttur, Iramsöguerindi hin áhugaverðustu og um- ræður fjörlegar. f nóvember fóru fram prófkjör flokkanna í Reykjavík, svo þcssi mál voru í brennidcpli. Niðurstaða fund- arins var sú að konur ættu enn erfiðara uppdráttar í prófkjörum en fyrir tíma prófkjöranna. Jólafundur félagsins var haldinn 15. des- cmber. Var vandað til dagskrár og boðið upp á jólaglögg. Sigrún Hjálmtýsdóttir söng við undirleik Önnu Guönýjar Guð- mundsdóttur. Jónína Mikaelsdóttir las úr bók sinni um Þuríði Pálsdóttur, Líf mitt og gleði, og Jónína Margrét Guðnadóttir sagði okkur frá för sinni til Dublin á friðarráðstefnu kvenna. AFMÆLI FÉLAGSINS / janúar voru félagskonur önnum kafnar við afmælishald. Efnt var til málverkasýningar í kjallara Hallveig- arstaða og sá Hrafnhildur Schram um val verka og uppsetningu. Á sjálfu af- mælinu, 27. janúar, var haldin veisla, þar sem mættu á annað hundrað manns. í veislunni voru 4 félagar tilnefndir heiðurs- félagar, þær Sigurveig Guðmundsdóttir, Valborg Bentsdóttir, Guðrún Gísladóttir og Lóa Kristjánsdóttir. Auk þess var fjöl- breytt dagskrá í sal Hallveigarstaða þann hálfa mánuð sem sýningin stóð. Þar var meðal annars efnt til fundar um viðhorf fólks til þátttöku kvenna í stjórnmálum, undir yfirskriftinni Af hverju spurði Karitas? og var þar vísað til sjónvarpsþátt- ar sem sýndur var í upphafi janúar þar sem konur í framboði voru meðal annars spurðar að því hvernig þær ætluðu sér að leysa þann vanda að vera virkar í stjórn- málum og halda heimili. Afmælinu lauk með hófi fyrir þá sem unnið höfðu að af- mælishaldinu, listamenn, sem lánuðu verk á sýningu og aðra sem lögðu hönd á plóginn. Félaginu bárust fjölmargar kveðjur og gjafir á afmælinu. 172 gestir komu á sjálfan afmælisdaginn og 560 gest- ir komu á myndlistarsýninguna. Afmælis- nefnd félagsins skipuðu þær Esther Guðmundsdóttir, Björg Einarsdóttir, Jónína Margrét Guðnadóttir, auk formanns, einnig tók framkvæmdahópur þátt í undirbúningi. Það sem einkum var ánægjulegt við af- mæli félagsins var hin mikla umfjöllun sem það fékk í fjölmiðlum. Sigríður Erlends- dóttir flutti sérstakt erindi um starfsemi félagsins í ríkisútvarpið á sjálfu afmælinu. Þann dag var einnig umræðuþáttur í beinni útsendingu í sjónvarpi, svo og um- ræða um jafnréttismál í tvo klukkutíma á Bylgjunni. Dagana kringum afmælið var stöðugt fjallað um félagið, viðtöl höfð við stjórnarkonur f blöðum og útvarpi. Er Ijóst að tekist hefur að nýta tilefnið til að vekja upp jafnréttisumræðu og er það vel. Rcykjavíkurborg veitti okkur 100.000,- styrk til afmælishalds svo og fjármálaráð- hcrra f.h. ríkisins. Jafnframt fékk félagið styrk til afmælishaldsins frá hússtjórn Hallveigarstaða. ÖNNUR STARFSEMI FÉLAGSINS / tilefni 19. júní var útvarpsþáttur helgaður félaginu og var hann unninn af konum í stjórn í samvinnu við Ragnheiði Davíðsdóttur dagskrár- gerðarmann. Var þátturinn samsettur af tónlist og viðtalsþáttum. Félagið gaf út síðastl. haust í tengslum við annað aðalverkefni ársins veggspjald með yfirskriftinni Býrð þú í karlaríki?, þar sent dregin er upp mynd af þátttöku kvenna á Alþingi og úr hvaða kjördæmum konur koma. Veggspjaldinu var dreift víða og hefur vakið töluverðar umræður og verið tilefni umfjöllunar. 97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.