19. júní


19. júní - 19.06.1987, Blaðsíða 96

19. júní - 19.06.1987, Blaðsíða 96
DAGLEGT BRAUÐ REYKVÍKINGA Þórunn Valdimarsdóttir: Sveitin við Sundin. Búskapur Reykjavíkur 1870- 1950, (Safn til sögu Reykjavíkur), Rvík 1986. Oftast tengir maður vöxt og við- gang Reykjavíkur síðustu hundrað árin við eflingu út- gerðar, smáiðnaðar og þjón- ustu hvers konar en ekki landbúnað. Þegar nánar er að gáð hlaut búskapur að koma mjög við vaxtarsögu bæjar- ins, sem gerðist æ þurftafrekari vegna örrar fólksfjölgunar. Þessi bók Þór- unnar Valdimarsdóttur fjallar um búskap í Reykjavík á tímabilinu 1870-1950, þegar íbúum hennar fjölgar úr rúmum 2 þúsund í liðlega 56 þúsund manns, og hvernig þessi atvinnugrein dafnaði og lagaði sig að hraðvaxandi þéttbýli. Bókin er líflega skrifuð, laus við þurran og hátíðlegan stíl sem loðir oft við sagnfræðirit, og dregur stundum upp skemmtilegar hliðstæður eða samanburð á búskap Reykvíkinga fyrrum og borgarlífinu nú á dögum. Um gróðurfar í Reykja- vík fyrr og nú farast Þórunni svo orð: Um 1880 skiptist þar á snöggur holta- gróður og rótnagaðar mýrar þar sem mikil mótekja var stunduð, en rófur og kartöflur voru ræktaðar víða í görðum. . . . í Reykjavík samtímans er kafa- gróður, iðjagrænir vellir, blóm og mat- jurtir ýmiskonar. Ef kindur væru notað- ar sem garðsláttuvélar í höfuðstaðnum væri hægt að kýla þar margar vambir. (bls. 212) Athugun Þórunnar byggir á mikl- um heimildaforða og munu lítt könn- uð bréf og skjöl úr Borgarskjalasafni Reykjavíkur vera drjúgur hluti hans. Úr öllu þessu spinnur Þórunn sinn efnisþráð ágæta vel og hefur gott auga fyrir lýsandi og hnyttnum texta í heimildunum. Um smjörlíkiskaup frá útlöndum vitnar hún til skrifa Þór- halls Bjarnarsonar um aldamótin: Það er leitt til þess að vita, ef slíkt feitiland sem Island þarf enn urn mórg ár að kaupa smjörlíki, svo að skiptir fleirum hundruðum þúsunda punda á ári, því að þess verður eigi langt að bíða, lánist smjörsalan til Englands. Illa situr á oss mörlanda-nafnið, er frændur vorir í Noregi gáfu oss forðum daga, ef vjer látum til landframa aðrar þjóðir bræða í oss viðmetið. (bls. 150) Frásögn Þórunnar minnir okkur rækilega á hversu sveitalegt líf íbú- anna og yfirbragð bæjarins var allt fram á síðustu áratugi. í bókinni kemur fram að nautpeningi og sauðfé fjölgaði ört í bænum fram um miðja^, öldina. Um tíma var Reykjavík stærsta nýræktarsvæði landsins og fram á fjórða áratuginn var Jarðrækt- arfélag Reykjavíkur afkastamesta búnaðarfélagið. Efni bókarinnar skiptist annars í fjóra hluta. Fyrst er almenn lýsing á atvinnuháttum og bæjarbrag í Reykjavík á áratugunum fyrir og eftir aldamótin. í næsta hluta greinir Þór- unn frá ráðstöfun bæjarlandsins, hagagöngu og gæslu búfjár, heyöflun og annarri hagnýtingu lands, svo og lóðamálum. Því næst er ýtarlega lýst ræktun í bæjarlandinu og hlut Jarð- ræktarfélags Reykjavíkur að þeim málum. Þá kemur einkar fróðleg um- fjöllun um húsdýr og afurðir þeirra, mjólk, smjör, kjöt og egg. Bókinni lýkur svo með frásögn af jarðar- gróðri, mótekju og garðyrkju. Þannig dregur Þórunn skýrt fram hversdagslega sýslan Reykvíkinga, sem áður var snar þáttur í bæjarlíf- inu, en er nú horfin eða búin að taka gjörbreytingum. Tökum framleiðslu og sölu mjólkur sem dæmi. Þórunn bendir á að fram yfir síðustu aldamót var neysla mjólkur lítil í bænum og mun minni en tíðkaðist í stærri borg- um eins og Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Mjólk var munaðarvara efnaðri manna og þá helst þeirra sem áttu eina eða tvær kýr í fjósi. Mjólk- ursala var lítil, en fór vaxandi upp úr aldamótum; var ýmist selt beint úr fjósi eða af götunni, en á öðrum og þriðja áratug aldarinnar tóku mjók- urbúðir við þessu hlutverki. Sagan af dýrri og ónógri mjólk fram eftir öldinni leiðir hugann að þeirri staðreynd, sem Þórunn hefði mátt fjalla meira um, að seint gekk að beina framleiðslu nálægra sveita á hagkvæman hátt að hinum ört stækk- andi markaði í Reykjavík og Hafnar- firði. Þetta er ein ástæða þess að bú- skapur í Reykjavík færðist svo mjög í aukana á umræddu tímabili og dugði samt ekki til að mæta vaxandi eftir- spurn. Auk þess átti innlend fram- leiðsla í samkeppni við ódýra útlenda matvöru á borð við smjörlíki, sykur og kornmat, sem reykvísk alþýða tók fram yfir smjör, mjólk og kjöt. Þór- unn víkur að þessu máli á víð og dreif um einstakar afurðir, en ekki ræðir hún það sérstaklega. Þó að Þórunn sé alls ekki frábitin sagnfræðilegum alhæfingum og eigi góða spretti í því efni, er hér um að ræða „lýsandi sagnfræði fremur en sagnfræðilega greiningu", eins og hún tekur sjálf fram í formála (bls. IV). Ef til vill er þetta ástæða þess að hún hefur ekki neina niðurstöðu eða samantekt í lokin, en það hefði hik- laust aukið gildi verksins að draga þar upp stórar línur viðfangsefnisins. Frágangur allur er ágætur af hendi höfundar og útgáfu. Mér fannst mik- ið koma til korta og mynda, sem greinilega eru valdar af kostagæfni og gæða efnið lífi. Umbrot og önnur prentsmiðjuvinna er síðri. Bókinni fylgja heimilda- og myndaskrár, svo og skrár um mannanöfn, staðanöfn og atriðisorð. Sveitin við Sundin er saga um hversdagsstörf fólksins í Reykjavík fyrrum og kemur mjög við kviku þess lífs sem lifað var þar. Nú, þegar ásýnd Reykjavíkur er orðin öll önnur og þessi menning óðum að hverfa úr vitund borgarbúa, er merki- legt til þess að hugsa hve stutt er síð- an hún var sprelllifandi veruleiki fyrir öllum íbúunum. Með ferskum og fag- mannlegum hætti hefur Þórunn veitt okkur innsýn í þessa horfnu lífshætti. GREIN: GUÐMUNDUR JÓNSSON 96
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.