19. júní


19. júní - 19.06.1987, Blaðsíða 98

19. júní - 19.06.1987, Blaðsíða 98
Hluti stjórnarkvenna í KRFÍ á sl. vetri. Aftari röð frá vinstri: Edda.Hermannsdóttir, Helga Sigur- jónsdóttir, Valborg Bentsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Kristín Jónsdóttir, Áslaug Brynjólfsdóttir og Dóra Guðmundsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Erna Bryndís Halldórsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Lára v. Júlíusdóttir, Jónína M. Guðnadóttir og Ásthildur Ketilsdóttir. Jafnframt voru uppstillingarnefndum stjórnmálaflokkanna svo og formönnum flokka sendar áskoranir um að gera hlut kvenna sem mestan á framboðslistum flokka. Félagskonur buðust til að mæta á fundi til að taka þátt í umræðum um þátt- töku kvenna í stjórnmálum. Mætti for- maðurinn á slíkan fund sl. haust að Hótel Örk hjá félagi Framsóknarkvenna í Árnessýslu, og hélt erindi um konur og kosningar. Fulltrúar félagsins kynntu veggspjaldið og komu frani í nokkrum út- varpsþáttum sl. haust, en nú er áberandi hvaða áhrif aukin samkeppni hefur á fjöl- miðlana. Einn þáttur verkefnisins Konur í kosn- ingaham hefur verið að ræða við formenn stjórnmálaflokkanna og leggja fyrir þá nokkrar spurningar um það hvað þeir hygðust gera til að greiða fyrir framgangi kvenna í sínum flokkum. í fjáröflunarskyni gaf félagið út fyrir sl. jól merkimiða á jólapakka, til sölu og dreifingar. Ekki gekk sala miðanna nægi- lega vel og eru til birgðir fyrir félagskonur og aðra að skreyta með jólapakka kom- andi ára. KRFÍ var boðið að senda fulltrúa á haustvöku Kvenfélagasambands íslands sl. haust. Flutti formaður félagsins þar pistil um konur og vinnumarkaðinn, en haustvakan var að mestu leyti haldin á Hótel Loftleiðum. Anna K. Sigurðardóttir, einn heiðurs- félaga KRFÍ var útnefnd heiðursdoktor við Háskóla íslands í tilefni 75 ára afmælis hans á sl. hausti. Af því tilefni var henni haldið kaffisamsæti að Hallveigarstöðum 7. október á vegum Kvenfélagasambands- ins og Kvenréttindafélagsins. Fjölmargar gamlar vinkonur mættu til að samgleðjast Önnu og voru mörg ávörp flutt. STARFIÐ ÚT Á VIÐ KRFÍ á fulltrúa í fjölda nefnda, ráða og félaga. í jafnréttisráði á sæti fyrir hönd félagsins, Esther Guð- mundsdóttir og til vara Arndís Steinþórsdóttir. Hússtjórn Hallveigarstaða. KRFÍ á þrjá fulltrúa í hússtjórn Hallveigarstaða. Þar sátu auk formanns, varaformaður og Oddrún Krisíjánsdóttir, sem tilnefnd er af stjórn. Hún gaf ekki kost á sér í hússtjórn áfram og á aðalfundi var Björg Jakobsdóttir kosin í hennar stað. Fjárhag- ur hússins hefur farið batnandi í seinni tíð. Á sl. ári var ráðist í verulegar endurbætur á sal í kjallara. Salur Öldugötumegin hef- ur einnig verið lagfærður, en enn hefur ekki verið afráðið með framtíðarstarfsemi þar. Húsaleigusamningur við Borgardónr- ara hefur verið framlengdur til 31. desem- ber 1991, og hefur leiga verið hækkuð töluvert frá því sem var. Samkvæmt lögum á formaður KRFÍ sæti í íslensku UNESCO nefndinni. Eng- inn fundur var haldinn að því er okkur er kunnugt um á árinu. í Framkvæmdanefnd um launamál kvenna hefur Arndís Steinþórsdóttir átt sæti þetta ár, og til vara hefur verið Ást- hildur Ketilsdóttir. Á vegum nefndar- innar var m.a haldin ráðstefna á sl. hausti fyrir konur í stjórnum og samninganefnd- um verkalýðsfélaga um kröfugerð samn- inga. Fundir nefndarinnar eru haldnir hálfsmánaðarlega. Aðalfundur Landverndar var haldinn 22.-23. nóvember 1986 og sótti Valborg Bentsdóttir fundinn f.h. félagsins. Félagið á einnig fulltrúa hjá Landssambandinu gegn áfengisbölinu og sat Þorbjörg Daníelsdóttir 17. þing þess f.h. KRFÍ. Ingibjörg Snæbjörnsdóttir átti sæti í Mæðrastyrksnefnd fyrir KRFÍ. Fjáröflun nefndarinnar var með hefðbundnum hætti, mæðrablóm selt á mæðradaginn og efnt til jólasöfnunar. í Áfengisvarnarnefnd kvenna í Reykja- vík og Hafnarfirði eiga sæti þær Júlíana Signý Gunnarsdóttir og Þóra Brynjólfs- dóttir. Störf nefndarinnar á árinu voru með líku sniði og undanfarin ár. Börn nutu sumardvalar á vegum nefndarinnar og jólagjafir voru gefnar. Jónína Margrét Guðnadóttir er fulltrúi KRFÍ í Friðarhreyfingu ísl. kvenna. Helsta verkefni hreyfingarinnar á sl. ári var að taka þátt í alþjóðlegri undirskriftar- söfnun, „Women for a meaningful summit“, sem beint var til Reagans og Gorbachefs. 98 UMSAGNIR UM FRUMVÖRP Félagið hefur fengið til umsagnar frá Alþingi frumvörp og þings- ályktunartillögur: 1. Frumvarp til laga um rétt foreldra til leyfis frá störfum vegna umönnunar barna, en flutningsmað- ur var Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir. 2. Þingsályktunartillaga frá Hjörleifi Guttormssyni um úttekt á mismun- un gagnvart konum hérlendis. 3. Tillaga til þingsályktunar um endur- mat á störfum kvenna, flutt af Sig- ríði Dúnu Kristmundsdóttur, Krist- (nu Halldórsdóttur og Guðrúnu Agnarsdóttur. KRFl tók jákvætt undir þau sjón- armið sem fram komu í ofangreindum málum. Auk þess sendi KRFI frá sér umsögn um það skattafrumvarp, sem nú Iiggur fyrir þinginu, þar sem sú millifærsluleið á milli skattaafsláttar hjóna, sem ráðgerð er, er harðlega gagnrýnd og bent á aðrar leiðir til að koma til móts við barnafjölskyldur. ERLEND SAMSKIPTI Arndís Steinþórsdóttir, á f.h. KRFÍ, sæti í undirbúningsnefnd fyrir Nordisk Forum, kvennaráðstefnu, sem haldin verður í Osló sumarið 1988. Hefur hún sótt nokkra undirbún- ingsfundi vegna málsins (sjá bls. 67). Á síðastliðnu hausti var haldinn fundur í stjórn Sambands norrænna kvenréttinda- félaga í Kaupmannahöfn, sem formaður KRFÍ sótti. Á fundinum voru kynni efld og rætt um nauðsyn þess að taka þátt í og nióta Nordisk Forum. Það hefur síðan gerst að formaður danska kvenréttindafé- lagsins sem þá var, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Nordisk Forum, þannig að tryggt á að vera að sjónarmið kvenrétt- indafélaganna eiga að heyrast í Osló á næsta ári. Annar fundur var síðan haldinn í Osló í lok janúar en vegna afmælis KRFÍ var ekki unnt að taka þátt í honum af ís- lands hálfu. Jónína Margrét Guðnadóttir, sótti ráð- stefnu IAW í Dublin sl. haust, þar sem fjallað var um friðarmál, eins og segir í frásögn á bls. 89. Fulllrúar frá samtökunum „Coalition of Women for a Meaningful Summit“ fengu afnot af húsnæði KRFÍ meðan á leiðtoga- fundi Rcagans og Gorbachefs stóð í Reykjavík. Færðu þeir félaginu gjafir, tvö veggteppi, dagatal og veggspjöld. í byrjun september komu hingað í heimsókn bandarískar konur frá NOW í Bandaríkjunum (National Organization for Women). KRFÍ átti þátt í að taka á móti þeim og skipuleggja fund með þeim og íslcnskum konum í stjórnmálum (sjá bls. 71). Framhald á bls. 82.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.