19. júní - 19.06.1987, Page 64
DELTA KAPPA GAMMA
Félag kvenna í
fræðslustörfum á
íslandi
Fundurinn, þar sem Sólrún Jensdóttir fjallaði um OECD skýrsluna var haldinn á Bessa-
stöðum hjá Vigdísi Finnbogadóttur en hún er heiðursfélagi samtakanna.
Nafn samtakanna, Delta Kappa
Gamma, er komið úr grísku
og eru upphafsstafir orðanna
sem þýða kennarar, lykill og
konur. Á íslensku kjósa þær að kalla
sig Fétag kvenna í frœðslustörfum á
íslandi. Þetta eru alþjóðleg samtök
sem rekja upphaf sitt til Bandaríkj-
anna, en þau voru stofnuð í Texas
1929. Þessi samtök eru hin stærstu
sinnar tegundar í heiminum. Meðlim-
ir eru 152.000 í 13 löndum.
Fyrsta deildin var stofnuð á íslandi
árið 1975, en landssamtök voru stofn-
uð 1977. Deildirnar eru nú 3. Sam-
tökin veita konum tækifæri til þess að
ræða uppeldis- og fræðslumál út frá
sjónarmiðum mismunandi námsstiga
og skólastiga. Samþykki meirihluta
félagsmanna þarf til að nýjum félags-
mönnum sé boðin þátttaka. Sérhver
kona, sem tekin er inn í samtökin
gefur hátíðlegt loforð um að halda
markmið félagsins í heiðri.
Markmið félagsins eru:
1. Að stuðla að alþjóðasamstarfi
kvenna sem vinna að menningar- og
menntamálum.
2. Að heiðra konur sem standa eða
hafa staðið framarlega á einhverju
sviði menntamála eða eru að vinna
markverð störf í þágu þeirra.
3. Að efla starfsáhuga og stöðu kvenna
á sviði menntamála.
4. Að stuðla að æskilegri lagasetningu
um menntamál.
5. Að veita konum sem skara fram úr í
menntamálum styrki til framhalds-
náms í háskóla og styrkja erlendar
konur, sem vinna að menntamálum.
6. Að efla persónulegan og faglegan
þroska félagskvcnna og hvetja þær
til virkni.
7. Að fræða félaga um það sem er efst
á baugi í efnahags-, félags-, stjórn-
og menntamálum og stuðla mcð því
að vaxandi skilningi og virkri þátt-
töku þeirra í alþjóðamálum.
Alfa-deildin er fyrsta deildin sem
stofnuð var hér á landi og starfar í
Reykjavík. Á Akureyri starfar Beta-
deildin og Gamma-deildin er í Kópa-
vogi og Garðabæ. Formaður Alfa-
deildarinnar er Áslaug Brynjólfsdótt-
ir fræðslustjóri. Hún sagði að þær
hittust einu sinni í mánuði yfir vetrar-
mánuðina. Hver fundur hefst með
„Orði til umhugsunar", en síðan er
fundargerð lesin og fréttum eða til-
kynningum komið á framfæri. Þá er
fjallað um eitthvert sérstakt efni og
síðan lýkur fundum jafnan með há-
degisverði. Oft eru fengnir utanað-
komandi aðilar til að fjalla um sér-
stök mál. Þannig var á síðasti fundi
fjallað um fjarkennslu og kom Dr.
Gunnar G. Schram á fundinn og fjall-
aði um það mál.
Einnig kynna félagsmenn ýmis efni
sem þeir hafa unnið að. Þannig
kynnti Sólrún Jensdóttir OECD
skýrsluna á fundi. Þegar lögð eru
fram frumvörp á þingi sem varða
skólamál er skipað í nefndir til að
fjalla um þessi frumvörp og gera at-
hugasemdir við þau. Iðulega eru slík-
ar álitsgerðir sendar til ráðamanna.
Áslaug lét vel af félaginu, í gegnum
það hafa félagsmenn komið í heim-
sóknir í flesta skóla og kynnt sér flest
fög skólanna.
Á landssambandsfundinum sem
fram undan er verður fjallað um áhrif
myndar á börn. Reynt er að fylgjast
alltaf með því sem efst er á baugi
hverju sinni.
„Það er alveg sérstakt að vera í
þessu félagi,“ sagði Áslaug, „þetta
eru yndislegar konur, vel menntaðar
og meina vel. Pólitík skiptir engu
máli, þær eru svo langt yfir það hafn-
ar að blanda henni inni í málin sem
eru til umræðu“.
I.E.G.
0.
HfiNS PETERSEN HF
TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTA KODAK
SAMBAND ÍSLENSKRA
S? SAMVINNUFÉLAGA
Stiórnunarfélaa islands
Ánanaustum 15 Sími: 6210 66
64