19. júní - 19.06.1987, Side 75
skapar kynskiptinguna, konunum í
óhag.
Skiptingin í kvenna- og karlastörf
tekur sífellt á sig nýjar myndir. Þegar
konur brjótast inn í karlastarf, breyt-
ist starfsgreinin oft í kvennagrein eða
skiptist smám saman í nýjar kvenna-
og karlagreinar.
Er nokkur von um að hægt sé að
breyta þessu? Jú, en við þurfum að
afla okkur þekkingar til að finna rétt-
ar barátuaðferðir. Ein leiðin til þess
er virk samvinna milli þjóða.
KONA í KARLASTARFI - TILVERA í EIN-
SEMD
/
ISkandínavíu hefur verið unnið
markvisst að því að hvetja stúlk-
ur til að velja hefðbundið karla-
nám. Margar hafa hlýtt kallinu í
góðri trú. En margar verða fyrir von-
brigðum. Þær þurfa að kljást við tor-
tryggni og fordóma og enn er fjöldi
vinnustaða sem tekur strák fram fyrir
stelpu bæði í verklegt nám og vinnu
að námi loknu. Þótt þær fái vinnu er
baráttunni ekki lokið. Margar þeirra
kvenna sem rutt hafa brautina, lýsa
tilveru sinni sem einntanalegri. Þótt
þeim gangi oft vel að aðlaga sig að
karlahópnum í vinnunni og skólan-
um, með því m.a. að taka upp þeirra
hegðun og siði, tilheyra þær ekki
hópnum að Ioknum vinnudegi. Þær
tilheyra heldur ekki kvennahópnum,
því að reynsluheimur þeirra er annar
en flestra kvenna.
Þessi lýsing getur einnig átt við þær
konur sem taka að sér hin svokölluðu
ábyrgðarstörf, störf sem fela í sér
völd og krefjast oft af þeim að þær
beiti því valdi gegn öðrum konum.
Það er því eðlilegt að konur velji
hin hefðbundnu kvennastörf, með
þeim verðmætum sem þær þekkja, en
karlarnir hafa flestir farið á mis við.
Verðmæti sem felast í náinni vináttu,
umgengni við börn, frelsi frá því að
beita valdi gegn öðrum, frelsi frá því
að vera í stöðugri samkeppni um
stöður og áhrif. Karlastörf þurfa þó
ekki að útiloka þessa þætti. Ef konur
eru fleiri saman, geta þær ræktað
þessi verðmæti, og það sem meira er,
kennt körlunum að meta þau líka.
LEIÐIR TIL AÐ BRJÓTA MÚRANA
ær leiðir sem Brjótum múrana
á Akureyri hefur valið eru
margvíslegar:
S.l. haust var tckin upp ný
skyldunámsgrein í öllum 9. bekk í
grunnskólum bæjarins. Það er náms-
og starfsfræðsla, með nokkuð nýju
sniði, en fyrirmyndin er þó að mestu
fengin af Austurlandi, þar sem Gerð-
ur G. Óskarsdóttir hefur haft forystu
um að innleiða þessa námsgrein, en
hún hefur einnig veitt leiðsögn við
framkvæmdina hér á Akureyri.
Mikilvægur þáttur í náminu er að
vekja umhugsun og umræðu um
skiptingu starfa í karla- og kvenna-
störf.
Mikill hluti skipulagningar og
vinnu við framkvæmdina er í höndum
starfskvenna Brjótum múrana. Að-
ferðir og áhrif eru metin jafnóðum og
gerð er grein fyrir því sem tekst vel
og því sem mistekst við framkvæmd-
ina og í hvcrju árangurinn felst.
Þessu verkefni tengjast auk 130
vinnustaða og 230 nemenda 9.
bekkjar, nemendur í 4.bekk Mennta-
skólans á Akureyri og háskóla-
stúdentar sem hafa náms- og starfs-
ráðgjöf sem hluta af sínu námi.
Annað stórt verkefni er námskeið
fyrir konur um stofnun og rekstur
fyrirtækja, konur stofna fyrirtœki.
Námskeiðið hófst í apríl og nær yfir
hálft ár. Það skiptist í 3 vinnuhelgar
með mánaðar millibili, hópvinnu og
einstaklingsvinnu með ráðgjöf og
ýmiss konar stuðningi milli vinnu-
helganna og í 3 rnánuði á eftir.
Svona námskeið hafa verið haldin
með góðum árangri víða á Norður-
löndum og mörg spennandi fyrirtæki
hafa orðið til í kjölfarið. Annar þátt-
ur sem tengist þessu verkefni er
stofnun samskiptanets kvenna í at-
vinnurekstri, en slík net hafa verið
mynduð víða um heim á síðustu
árum, m.a. í Reykjavík, og alls stað-
ar er sama saga, þau veita þátttak-
endum ómælda ánægju og stuðning.
Stuðningur við konur í karlagrein-
um í Verkmenntaskólanum er eitt af
verksviðum Brjótum múrana. S.l.
haust voru kallaðar saman til fundar
þær 8 konur/stelpur, sem þá voru í
þeim hópi, og þær ákváðu að stofna
stuðnings- eða samstarfshóp. Fund-
irnir hafa reyndar ekki orðið margir
en fjörugir og fróðlegir. Viðtöl við
konurnar og nokkra kennara þeirra
cru hluti af viðamikilli rannsókn á
stöðu, möguleikum og viðhorfum
kvenna með menntun í hefðbundn-
um karlaiðngreinum. Sams konar
rannsókn verður gerð á hinum
Norðurlöndunum. í undirbúningi er
einnig rannsókn á stöðu og frama-
möguleikum kvenna í nokkrum stór-
um og meðalstórum fyrirtækjum á
Akureyri.
Brjótum múrana leggur áherslu á
að miðla þeirri reynslu og þekkingu
sem fæst með verkefninu til sem
flestra, leikra og lærðra. í þeim til-
gangi er gefið út fréttabréf þrisvar á
ári. Einnig eru haldnar ráðstefnur þar
sem safnað er saman reynslu og
þekkingu frá öllum löndunum og
niðurstöður einstakra verkefna birt-
ast jafnóðum í skýrslum, sem fáan-
legar eru hjá verkefnisfreyjunum.
GREIN: VALGERÐUR BJARNADÓTTIR
75