Fréttablaðið - 22.12.2010, Side 6
6 22. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Jólaúthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands
Er sem hér segir:
Reykjanesbær
Hafnargötu 29
S. 697 3521
22. des
Akureyri
Freyjusnesi 4
S. 869 0820
22. des
Reykjavík
Eskihlíð 2-4
S. 892 9603
14-15-21-22 des.
Frá kl 14:00
Þegar jólagjafirnar blikka þig í hillunum
veistu að þú ert á réttum stað ...
OPIÐ
til kl. 22:00
í kvöld og
til kl. 23:00
á morgun,
Þorláksmes
su!
Lúðraþytur og söngur hljómar frá Kvos að
Hallgrímskirkju og Hlemmi frá kl. 15:00
Jólasveinar, trúbadúrar , harmónikkuleikarar og
töframenn halda uppi stemningunni í dag í
Jólabænum og víðar frá kl. 15:30. Svavar Knútur,
Ástvaldur Traustason , Aðventukórinn o.fl.
Allt sem þú þarfnast finnurðu
í miðborginni. Þar hefjast jólin.
Munið Miðborgar-gjafakortið!
– Jólagjöfin í ár!
SJÁVARÚTVEGUR Evrópusamband-
ið ætlar að gera alvöru úr hót-
unum sínum um löndunarbann á
íslenskum makríl í evrópskum
höfnum. Slíkt bann hefur engin
áhrif á íslenskar útgerðir eða sölu
íslenskra makrílafurða yfirleitt.
F ramkvæmdastjórn E SB
hefur ákveðið að löndun makr-
íls af Íslandsmiðum í evrópsk-
um höfnum sé óheimil frá og með
14. janúar. Eru
það viðbrögð
sambandsins
við ákvörðun
íslenskra stjórn-
valda að skrifa
ekki undir sam-
komulag um
veiðarnar og
gefa út einhliða
makrílkvóta.
Þetta kom fram
í tilkynningu frá
skrifstofu sjáv-
arútvegsstjóra
E SB, M a r íu
Damanaki , í
gær. Fréttaveit-
an Bloom berg
h ef u r ef t i r
Damanaki að
þetta skref þoli
enga bið. Mark-
m ið b a n n s -
ins er að „senda skýr skilaboð til
Íslands“.
Framkvæmdastjórnin mun til-
kynna ákvörðun sína til nefndar
sem sér um framkvæmd samn-
ingsins um Evrópska efnahags-
svæðið. Þá fundar Damanaki með
Stefáni Hauki Jóhannessyni, sendi-
herra Íslands í Brussel, í dag.
Tómas H. Heiðar, formaður
samninganefndar Íslands, segir
íslensk stjórnvöld leggja áherslu á
það gagnvart framkvæmdastjórn
ESB að makrílmálið sé sjálfstætt
fiskveiðimál og beri að leysa sem
slíkt án nokkurrar tengingar við
óskyld mál. Á þessu byggir fund-
ur Stefáns og Damanaki. „Sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
og utanríkisráðherra rituðu fram-
kvæmdastjórninni bréf þessa efnis
síðastliðið haust að gefnu tilefni,“
segir Tómas.
Tómas segir að samkvæmt
lögum um veiðar og vinnslu
erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi
Íslands sé erlendum skipum óheim-
ilt að landa afla í íslenskum höfn-
um sem er veiddur úr sameiginleg-
um stofnum en ekkert samkomulag
er um veiðar. „Íslensk stjórnvöld
telja ekki tilefni til viðbragða við
því að sams konar reglur gildi um
löndun íslenskra skipa í erlendum
höfnum,“ segir Tómas.
Tómas minnir á að makrílveiðar
íslenskra skipa hafa á undanförn-
um árum nær eingöngu farið fram
innan íslensku efnahagslögsögunn-
ar og öllum afla hefur verið landað
í íslenskum höfnum og hann unn-
inn hér á landi.
Íslensk stjórnvöld hafa lagt
áherslu á að strandríkin fjögur,
Ísland, ESB, Færeyjar og Noreg-
ur, beri sameiginlega ábyrgð á
makrílstofninum. Því hafa íslensk
stjórnvöld gagnrýnt ESB og Noreg
harðlega fyrir að úthluta sér rúm-
lega 90 prósent af ráðlögðum heild-
arafla án tillits til veiða annarra.
svavar@frettabladid.is
Löndunarbann ESB
er innantóm hótun
Aukin harka virðist hafa færst í makríldeilu Íslands við Evrópusambandið og
Noreg. Löndunarbann verður sett á makríl í evrópskum höfnum 14. janúar.
Slíkt löndunarbann er þegar í gildi á Íslandi hvað varðar skip ESB og Noregs.
TÓMAS H. HEIÐAR
MARÍA DAMANAKI
KOMIÐ INN TIL LÖNDUNAR Þorsteinn ÞH 360 var eitt þeirra skipa sem lönduðu
makríl í Vestmannaeyjum í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
Sendir þú jólakort til vina og
vandamanna þetta árið?
JÁ 68,4%
NEI 31,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fylgdist þú með tunglmyrkvan-
um?
Segðu skoðun þína á visir.is
DÓMSMÁL Þinghald í máli Gunn-
ars Rúnars Sigurþórssonar sem
játað hefur að hafa orðið Hann-
esi Þór Helgasyni að bana, verður
opið. Yfirmat tveggja geðlækna er
hins vegar það að Gunnar Rúnar
sé ósakhæfur.
Málið var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjaness í gær. Dómsal-
ur var þéttsetinn og mátti heyra
saumnál detta meðan beðið var
eftir dómara, saksóknara og
verjanda Gunnars Rúnars. Faðir
Hannesar Þórs, systur og fleiri
aðstandendur voru meðal þeirra
sem hlýddu á þinghaldið.
Verjandi Gunnars Þórs hafði
lagt fram kröfu um að þinghald-
ið yrði lokað, en dómari hafnaði
henni. Sakborningurinn mætti
ekki í dómsal við þingfestinguna.
Niðurstaða yfirmats tveggja
geðlækna var kynnt við þingfest-
inguna og að þeirra áliti er Gunn-
ar Rúnar ekki sakhæfur. Þetta er
sama niðurstaða og geðlæknar
komust að við undirmat. Það er
síðan í valdi dómara að ákvarða
endanlega um sakhæfi hans.
Um er að ræða játningarmál, þar
sem Gunnar Rúnar hefur játað að
hafa orðið Hannesi Þór að bana.
Milliþinghald í málinu var ákveð-
ið 14. janúar. Aðalmeðferð verður 7.
febrúar, þar sem Gunnar Þór, þrír
geðlæknar og réttarmeinafræðing-
ur munu gefa skýrslu. - jss
Morðmálið í Hafnarfirði tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í gær:
Ósakhæfur og opið þinghald
GUNNAR RÚNAR SIGURÞÓRSSON
Mætti ekki í dómsal í gær.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem
setja „like“ við Vísi á Facebook geta
unnið óvænta vinninga í hverri viku.
FÉLAGSMÁL Innheimtustofnun sveitarélaga, sem sér
um að innheimta meðlagsskuldir, hefur einungis
í þrígang frá upphafi keyrt skuldara í þrot. Þetta
segir Jón Ingvar Pálsson, forstjóri stofnunarinnar.
Ef menn greiða ekki meðlag getur Innheimtu-
stofnunin haldið eftir ákveðnu hlutfalli launa
þeirra, en ef launum er ekki til að dreifa þarf oft að
óska eftir fjárnámi. Reynist það árangurslaust og
engar eignir fást upp í skuldirnar knýr Innheimtu-
stofnunin menn samt sem áður ekki í þrot.
„Ef við færum með allt þetta fólk í þrot, og
þyrftum að greiða 250 þúsund krónur í tryggingu
í hvert skipti, þá held ég að það myndi ekki svara
kostnaði,“ segir Jón Ingvar. Stofnunin hafi aðeins
þrívegis keyrt menn í þrot. Í þeim tilfellum hafi
verið grunur um óeðlilega gjafagerninga, kaupmála
eða annað til að skjóta eignum undan fjárnáminu.
Fram hefur komið að einstaklingar skuldi mest
15 milljónir króna í meðlag. „Það er engin afsök-
un fyrir að vera í svona stórri skuld á meðlögum,“
segir Jón Ingvar, enda hafi Innheimtustofnunin
upp á ýmis samningsúrræði að bjóða fyrir fólk í
greiðsluvanda. - sh
Dýrt að keyra menn í þrot, segir forstjóri Innheimtustofnunar sveitarfélaga:
Einungis þrír í þrot vegna meðlaga
LEIKSKÓLABÖRN Dæmi eru um að menn skuldi fimmtán millj-
ónir í meðlög. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
LÖGREGLUMÁL Helga Ingvarsdótt-
ir hefur verið látin laus úr haldi
gegn tryggingu. Hún var hand-
tekin í nóvember ásamt Vickram
Bedi, sambýlismanni sínum,
vegna gruns um fjárkúgun.
Að því er fram kemur á vefmiðl-
inum Pressunni nemur trygging-
arupphæðin 23 milljónum króna.
Helga er í farbanni en verður ekki
undir sérstöku eftirliti þangað til
réttarhöldin hefjast. Bedi er hins
vegar enn í haldi. Beiðni hans um
lækkun á tryggingarfé var hafnað
um síðustu mánaðamót.
Da Vinci-fléttan vestanhafs:
Helga látin laus
gegn tryggingu
KJÖRKASSINN