Fréttablaðið - 03.03.2011, Blaðsíða 64
3. mars 2011 FIMMTUDAGUR44
sport@frettabladid.is
ATLI HILMARSSON var valinn besti þjálfarinn í N1-deild karla í umferðum 8-14 og Vilhelm Gauti Bergsveinsson besti
varnarmaðurinn. Annars var lið umferðanna þannig skipað: Sveinbjörn Pétursson, Oddur Gretarsson, Heimir Örn Árnason (allir
Akureyri), Atli Ævar Ingólfsson (HK), Einar Rafn Eiðsson (Fram), Ragnar Jóhannsson (Selfossi) og Ásbjörn Friðriksson (FH).
HANDBOLTI Hinn 22 ára gamli markvörður Akureyr-
ar, Sveinbjörn Pétursson, var í gær valinn besti leik-
maður annars hluta N1-deildar karla. Þessi síðhærði
markvörður á stuttbuxunum hefur vakið mikla athygli
í vetur fyrir vasklega frammistöðu sem nú hefur skil-
að honum landsliðssæti.
„Svona verðlaun gefa manni aukinn kraft og ýta
undir metnaðinn. Ég get ekki neitað því að ég er
stoltur af því að fá svona viðurkenningar,“ segir
Sveinbjörn, en hann er að vonum ánægður með eigin
frammistöðu í vetur.
„Heilt yfir get ég verið nokkuð sáttur þó svo að það
sé alltaf eitthvað sem maður vill bæta. Maður vinnur í
því á hverri æfingu. Svo má ekki gleyma því að góður
markvörður er alltaf með góða vörn fyrir framan sig
og hana hef ég svo sannarlega. Strákarnir fyrir fram-
an mig eiga mikið hrós skilið.“
Sveinbjörn sneri aftur á fornar slóðir fyrir norðan
síðasta sumar og þó svo að hann hafi verið góður í
fyrra hefur hann algjörlega blómstrað í ár. Hann seg-
ist ekki sjá eftir því að hafa ákveðið að fara norður.
„Mér líður vel á Akureyri og hefur alltaf liðið vel
þar. Ég hef fengið mikið traust frá þjálfaranum, lið-
inu, stjórninni og öllu fólkinu fyrir norðan.
Ég hef líka alltaf haft mikla trú á mér og finnst ég
vera góður. Maður þarf að hafa trú á sjálfum sér. Það
er hausinn sem hefur komið mér nokkuð langt. Í það
minnsta á vellinum, ég veit ekki utan hans,“ segir
Sveinbjörn léttur og hlær við.
Þó svo að Sveinbjörn sé farinn að vekja athygli víða
er hann ekkert að drífa sig of mikið í því að komast út
til þess að spila handbolta.
„Ég er rólegur. Tækla einn leik í einu og einn dag í
einu. Ég vil gera allt á mínum hraða. Ég vil byrja á því
að stimpla mig inn hér og vinna titla með Akureyri
áður en ég fer að hugsa eitthvað lengra.
Mér liggur ekki lífið á enda ungur og markmenn
eru að endast til fertugs í dag. Ef ég held rétt á spil-
unum get ég verið í boltanum lengi,“ segir Sveinbjörn,
sem er afar ánægður með landsliðssætið.
„Það gefur mér mikið og er mikil viðurkenning að
vera í þessum frábæra hópi. Þeir eru margir á meðal
þeirra bestu og maður lærir eitthvað nýtt á hverri
æfingu með þeim. Við það eykst sjálfstraustið. Svo
getur maður vonandi líka sýnt eitthvað svo Guðmund-
ur þurfi aðeins að klóra sér í hausnum yfir því hverja
hann eigi að velja,“ segir Sveinbjörn kíminn.
Sveinbjörn hefur verið þekktur fyrir sitt síða hár en
hann var búinn að skerða það nokkuð um áramótin. Er
einhver sérstök ástæða fyrir því?
„Ég hef alltaf safnað ágætis makka og svo farið í
klippingu fyrir jólin svo ég líti vel út á jólamyndunum
hjá mömmu og pabba. Það hefur verið hefðin,“ segir
Sveinbjörn léttur en hann vakti mikla athygli þegar
hann tók upp á því að spila á stuttbuxum í markinu.
„Ég hef undanfarin ár æft í stuttbuxum og fannst í
lagi að prófa einn leik þannig því mér líður vel í stutt-
buxunum á æfingum. Það er einn af hverjum 100 bolt-
um sem fer í versta stað á lærið þannig að ég hef ekki
áhyggjur af því. Aðalmálið er að mér finnst ég vera
léttari á mér og líður betur í stuttbuxunum. Ég er lið-
ugri svona en í þungum bómullarbuxum.“
henry@frettabladid.is
FINNST ÉG VERA GÓÐUR
Sveinbjörn Pétursson er með sjálfstraustið í lagi þessa dagana enda að verja frá-
bærlega með Akureyri og er kominn í landsliðið. Hann sker sig úr í stuttbuxum
með sítt hár en honum líður betur í stuttbuxum en síðbuxum í markinu.
MAGNAÐUR Í MARKINU Sveinbjörn Pétursson hefur farið
hamförum í marki Akureyrar í vetur og var verðlaunaður fyrir
góða frammistöðu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÉLAGAR MEÐ PREMIUM ICELANDAIR
AMERICAN EXPRESS® FRÁ
KREDITKORTI GREIÐA EKKERT
ÁRGJALD Í ICELANDAIR GOLFERS
+ Skráðu þig í
Icelandair Golfers á
www.icelandairgolfers.is
Icelandair Golfers er klúbbur
sem auðveldar þér að spila
golf út um allan heim.
Golfsettið
ferðast frítt!
Þú nýtur þessara hlunninda:
þegar þú ferðast með Icelandair.
aðilum Icelandair Golfers.
KÖRFUBOLTI „Þetta er mjög skrítið
og ég bjóst ekki við þessu á síð-
ustu sekúndunni þegar ég sá að við
vorum ekki með þetta,“ sagði Íris
Ásgeirsdóttir, fyrirliði Hamars,
eftir að liðið tryggði sér deildar-
meistaratitilinn í gær þrátt fyrir
að tapa 57-63 fyrir KR á heima-
velli. Keflavík tapaði nefnilega á
sama tíma fyrir Haukum og missti
af tækifærinu á því að fá úrslita-
leik um deildarmeistaratitilinn á
móti Hamri í lokaumferðinni.
KR komst mest 17 stigum yfir í
fyrri hálfleik (38-21) en Hamars-
liðið tók við sér í lok hálfleiksins
og minnkaði muninn í tíu stig fyrir
hálfleik (32-42). Það náði síðan að
komast yfir fyrir lokaleikhlut-
ann en KR var sterkara i lokin og
tryggði sér sigur.
Hamarskonur grétu þó aðeins
tapið í nokkrar sekúndur því fljót-
lega fengu þær fréttirnar frá
Keflavík að Haukar hefðu unnið
og þær væru orðnar meistarar.
„Gústi (Ágúst Björgvinsson
þjálfari) sagði okkur að kíkja á
bikarana í hálfleik og sjá hvort
við vildum þetta ekki ekki örugg-
leg nógu mikið. Við vildum þetta
alveg nógu mikið og ég held að við
höfum sýnt það í þriðja leikhlutan-
um. Það vantaði bara aðeins upp
á,“ sagði Íris, sem hefur spilað með
Hamri frá því að meistaraflokkur-
inn var að spila í 2. deildinni.
„Ég er búin að bíða eftir þessu
allt of lengi og það er bara það
besta í heimi að vinna loksins titil.
Ég gæti alveg vanist þessu,“ sagði
Íris að lokum en hún var besti
maður Hamarsliðsins í gær ásamt
Jaleesu Butler. - óój
Haukar færðu Hamri deildarmeistaratitlinn í gær:
Hamar varð meistari
þrátt fyrir tap í gær
MEISTARAR Fanney Guðmundsdóttir og Íris Ásgeirsdóttir hafa fylgt Hamarsliðinu upp
úr 2. deildinni og eru í dag deildarmeistarar. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓÓJ