Fréttablaðið - 31.03.2011, Side 21

Fréttablaðið - 31.03.2011, Side 21
FIMMTUDAGUR 31. mars 2011 21 Á árinu sem nú er gengið í garð munu 266 milljónir renna úr vösum íslenskra skattgreiðenda til hernaðarsambandsins NATO. Um leið verður heilbrigðis- og mennta- kerfið fyrir harkalegri niður- skurði en nokkru sinni fyrr. Þegar hernaðarsinnar verja aðild Íslands að NATO vísa þeir jafnan til þess hve landið er afskekkt og óvarið og benda á mikilvægi vestrænn- ar samvinnu. Slík rök hrökkva þó skammt. Í fyrsta lagi er erfitt að sjá hvaða hernaðarógnir steðja að Íslandi. Í öðru lagi raskar NATO-aðildin hlutleysi landsins og gerir Ísland að skotmarki fyrir óvini hernaðar- sambandsins. Í þriðja lagi er vart hægt að hugsa sér verri félagsskap en stríðsherra Atlantshafsbanda- lagsins. Raunar er NATO ein ljót- asta birtingarmynd vestrænnar samvinnu. Bandaríkin, herská- asta stríðsveldi nútímans, fara með herstjórn í bandalaginu og sjá því að mestu leyti fyrir hernaðar- mætti og fjármagni. Á seinni tímum virðist NATO hafa breyst í verkfæri banda- rískra stríðsmangara, eins konar vopnabúr til að leita í þegar heims- valdahagsmunir krefjast. Aðeins er liðinn rúmur áratugur frá hinum ólöglegu loftárásum í Júgó- slavíu þar sem hersveitir NATO sprengdu á fjórða hundrað opin- berra bygginga í loft upp, þar á meðal leikskóla og sjúkrahús. Nærtækara dæmi er aðstoð bandalagsins við olíuþyrst her- námsöflin í Afganistan og Írak auk dyggilegs stuðnings þess við Ísra- elsher. Síðast en ekki síst hefur hernaðarsambandið ítrekað beitt sér gegn kjarnorkuafvopnun og staðið fyrir gegndarlausu hern- aðarbrölti og vígvæðingu á láði og legi. Það að íslensk stjórnvöld skuli ausa milljónum í útlenska fjölda- morðingja á meðan spítalar lands- ins verða fyrir blóðugum niður- skurði er til háborinnar skammar. Ég hvet ráðamenn til að hafna hernaðarhyggjunni, slíta aðildinni að NATO og stuðla að friðsælli heimi. Kveðjum NATO NATO Jóhann Páll Jóhannsson nemandi við MR Ef þjóðin segir nei í kosningun-um 9. apríl er verið að vísa Ice- save til dómstóla. Fyrir dómstól- um verður líklega erfiðast fyrir íslenska ríkið að komast framhjá svokallaðri mismunun á grundvelli þjóðernis en við fall bankanna 2008 voru innstæður í innlendum útibú- um tryggðar að fullu á meðan inn- stæður í erlendum útibúum nutu engrar tryggingar. Þetta er að mati eftirlitsstofnunar með EES- samningnum óbein mismunun á grundvelli þjóðernis og því brot á samningnum. Skiptar skoðanir eru um þetta atriði meðal íslenskra lögmanna en þeir hæstaréttarlögmenn sem hvað harðast börðust gegn fyrri samn- ingi telja að áhætta og kostnaður sé nú í slíku lágmarki að það sé mun meiri áhætta fólgin í dómsmáli en því að semja. Seðlabanki Íslands telur að nei í þjóðaratkvæði um Icesave þýði veikara gengi, lægri kaupmátt og meiri verðbólgu. Fyrir liggur að afleiðingar á lánshæfi, aðgengi að fjármálamörkuðum og vaxtakjör gætu orðið alvarlegar fyrir Íslendinga. Þá gæti Ísland staðið uppi með dóm um greiðslu- skyldu án fyrirliggjandi samn- ings um vexti, endurgreiðslur eða önnur kjör en ljóst er að sambæri- legir eða lægri vextir verða vart í boði. Með þverpólitískri samninga- nefnd tókst að lágmarka og festa niður eins og kostur er alla helstu kostnaðar- og áhættuþætti. Vext- ir eru í lágmarki, höfuðstóll mið- ast aðeins við lágmarkstryggingu, engin ríkisábyrgð kemur til fyrr en þrotabú Landsbankans hefur geng- ið upp í skuldbindingar Trygginga- sjóðsins, efnahagslegir og lagaleg- ir fyrirvara vegna stóráfalla eru til staðar og greiðslutími bæði vaxta og uppgjörs er miðað við þarfir og getu Íslands. Fari málið fyrir dómstóla eru allir þessir þættir úr höndum okkar Íslendinga svo óvissan um endanlegan kostnað og kjör er margfalt meiri. Íslend- ingar eiga að meta eigin hagsmuni og taka þá ákvörðun sem er skyn- samlegust fyrir hagsmuni efna- hags- og atvinnulífs til skemmri og lengri tíma. Við þær aðstæður þarf að vega og meta kostnað og áhættu af fyrirliggjandi samningi á móti áhættu og mögulegum kostnaði við áframhaldandi átök og dóms- mál. Það er ekki tilviljun að auk- inn meirihluti þingmanna og þeir sérfræðingar sem unnu sleitulaust að lausn á þverpólitískum grunni mæla eindregið með samningum frekar en dómstólaleið. Skynsemin ræður Icesave Magnús Orri Schram þingmaður Samfylkingarinnar Seðlabanki Íslands telur að nei í þjóðar- atkvæði um Icesave þýði veikara gengi, lægri kaupmátt og meiri verðbólgu. * Endurgreiðslan er 4,29% m.v. 232,9 kr. lítraverð á 95 oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu hjá Shell og 3,46% m.v. 231,4 kr. lítraverð á 95 oktana bensíni hjá Orkunni. Sú endurgreiðsla jafngildir 10 kr. á lítra hjá Shell og 8 kr. á lítra hjá Orkunni. Ódýrara eldsneyti fyrir e-korthafa í dag Í dag er 10 króna endurgreiðsla á stöðvum Shell og 8 króna endurgreiðsla hjá Orkunni fyrir e-korthafa.* Einnig er sama endurgreiðsla af öllum vörum í verslun Endurgreiðsludagur e-kortsins Þú færð e-kortið í Arion banka. Farðu á arionbanki.is og kynntu þér kosti e-kortsins. Endurgreiðslan er greidd út með ávísun í byrjun desember ár hvert. Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.