Fréttablaðið - 31.03.2011, Side 30

Fréttablaðið - 31.03.2011, Side 30
2 • LIFÐU AF Í APRÍL SKELLTU ÞÉR... ...til Akureyrar helgina 7. til 10. apríl. Snjóbrettaviðburð- urinn AK Extreme fer þar fram og brettaundrin Gulli Guðmundsson, Eiki Helgason og Halldór Helgason mæta á svæðið. Þá fer fram Söngkeppni framhalds- skólanna, sem er alltaf jafn spennandi. Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður verður haldin á Ísafirði 21. til 23. apríl og sem fyrr er Mugison einn af skipuleggjendunum. Hann lofar skemmtilegri hátíð en rúmlega þrjátíu flytjendur hafa skráð sig til leiks, þar á meðal Páll Óskar, Ný dönsk og FM Belfast. „Þetta eru tveir og hálfur dagur. Við tökum fimmtudaginn inn núna. Við prófuðum það í fyrra. Þá vorum við með grínkvöld með Mið-Íslandi og þeir mættu eldhressir. Við gerum eitthvað svipað í ár og blöndum saman gríni og nokkrum böndum sem upphitun fyrir helgina,“ segir Mugison. „Það er búið að gera stuð- samning við bæinn og bæjarbúa og ég held að það verði mikið stuð. Bærinn er búinn að búa til hópa. Til dæmis sér einn hópur um morgunmat eða bröns fyrir popparana og síðan erum við með góða klíku sem er að hjálpa okkur við að smíða sviðið.“ ÞÆGILEG OG SKEMMTILEG HÁTÍÐ FERÐAST UM LANDIÐ Mugison er á leiðinni í stutta tónleikaferð um landið sem hefst á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. Á morgun spilar hann á Egils stöðum og síðan taka við tónleikar á Höfn í Hornafirði 2. apríl og í Reykjavík kvöldið eftir. „Ég er að fara þennan hring með pabba mínum til að prófa íslensku lögin mín áður en ég geng almennilega frá plötunni minni sem kemur vonandi út í sumar,“ segir Mugison. Hið stórfurðulega hljóðfæri tónlistarmannsins Mugisons og vöruhönnuðarins Páls Einarssonar, Mirstrument, er loksins tilbúið ef undan er skilin reykvél sem stendur til tengja við það síðar. Græjan, sem hefur verið mörg ár í undirbúningi, er allt í senn, hljóðfæri, hljóðnemi, gítarmagnari, hljóðblandari, ljósabúnaður og ýmislegt fleira. Popp kynnti sér Mirstrumentið frá toppi til táar. MUGISON ER LOKSINS TILBÚINN MEÐ MIRSTRUMENT-HLJÓÐFÆRIÐ SITT HLJÓÐVERKSMIÐJA ÁN HLIÐSTÆÐU NEÐST: Þetta er móðurstöðin, hin eigin- lega hljóðverksmiðja. Inni í þessu er tölva og allar græjur sem túlka skilaboðin úr Mirstrumentinu sjálfu og búa til hljóð. Þarna get ég plöggað inn gítar og hljóðnema og þetta er um leið mixer og hljóðgjafi. PEDALL: Ef ég er að spila á gítar getur þetta verið wow wow-pedall. Ef ég er í hljómborðsfíling getur þetta verið volume-pedall. Ég ræð því með tökkunum sem eru fyrir neðan. TAKKAR: Í staðinn fyrir að fara í tölvu og hlaða upp lög get ég náð í lögin með því að ýta á takkana með löppinni. Þarna hleð ég upp banka af hljóðum, sem er mjög þægilegt. GÍTARSTILLIR (á milli tölvuhauss og pedals) TÖLVUHAUS: Það var gaur í Belgíu, Xander, sem smíðaði þetta í bíl- skúrnum sínum. Við notuðum hausinn til að geta forritað alla þessa takka. Þarna er lítill skjár þar sem ég get séð í hvaða lögum ég er að vinna. BLÁTT STÓRT SVÆÐI: Inni í þessu er hinn eiginlegi mixer. Þarna er líka græja sem sendir skipanir í ljósakerfið. STANGIR: Við komum þeim ekki inn í græjuna. Þetta eru pitchbend (eins og að teygja streng) og modwheel, bæði fyrir hljóðfærið. FYRIR MIÐJU: Þetta eru 160 takkar og virka eins og þrjú lyklaborð. Þetta er kerfi sem maður að nafni Peter Davies þróaði fyrir nokkrum áratugum. Maður spilar á þetta nokkuð svipað og á harmóníku en þarna er búið að einfalda það kerfi. Þetta virkar ekki ósvipað og að spila á gítar og þarna geturðu náð hljómi með einum putta. VIÐ HLIÐINA: Þetta er hugsað sem skyndimixer eins og Dj-mixer. Þarna hefur maður snöggt að- gengi að því helsta. RAUÐUR TAKKI: Hann vistar allt draslið og ég er með hlíf yfir honum sem verndar hann. H I N N R AU Ð I TAKKINN: Þetta er panic- takkinn. Ef allt fer í rugl get ég ýtt á hann, þá reynir tölvan að vinna úr ruglinu. UPPI LENGST TIL VINSTRI: Þetta er mixer sem maður hefur aðgang að með hönd- unum. Þarna eru öll sándin á 12X6 rásum. A N N A Ð F R Á VINSTRI: Þetta er effekta bankinn minn. Hver takki er í rauninni effekt, hvort sem það er fyrir rödd, gítar eða græjuna sjálfa. LENGST TIL HÆGRI: Þetta er líka til að stjórna effektunum. Ég nota þetta líka sem ljósamixer. Til dæmis ef ég er að spila á kassagítar get ég fiktað í þessu og búið til kósý stemningu. HLJÓÐNEMASTANDUR. LJÓS: Þetta eru sex ljós í öllum litum. gerðu tónlist á makkann þinn Opið fyrir ProTools 9, Logic, Sonar, ofl. Symphony I/O

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.