Sameiningin - 01.05.1913, Page 9
73
„G-etum vér hugsað oss , að þessi guðfyllta sál hefði getað
verið til, ef enginn guð væri ti 1 ?-Jesús Kristr er mér
virkileiki. Sá virkileiki er því aðeins mögnlegr, að guð
sé til. Þess vegna er einnig guð virkileiki, gnð Jesú
Krists og vor.“ Á þennan hátt segir höf. að Jesús Kristr
verði grundvöllr trúar sinnar: það sýnir sig á Jesú
Kristi, að guð hefir haft áhrif á hann, — fyllt sálu hans.
Þess vegna er guð til; og guðlegu áhrifin á Jesri eru svo
góð, að maðr verðr hugfanginn af ásýnd hans, og hjarta
vort hneigist fyrir hann í lotningarfullu trausti og til-
beiðslu að „sjálfum guði.“
Með þessu er þá ljóslega kennt, að Jesús sé ekki
„sjálfr guð“, en liann sé sönnun fyrir því, að til sé guð, af
því guð hafi haft svo mikil áhrif á hann. Jesús er ekki
annað en maðr, en maðr, sem hefir þegið meira en aðrir
af guðs anda, er „guði fyllt sák ‘. Þetta er í rauninni al-
veg sama sem Campbell kennir og sama sem tJnítarar
trúa.
Hvergi hefir mér fundizt kenning guðfrœðinganna
nýju um eðli Krists betr útskýrð en í prédikan einni eftir
Campbell, sem prentuð er í því prédikana-safni hans, er
nefnist Temple Sermons. Rceðan liefir fyrirsögnina:
„Setjum svo, að Kristr væri maðr aðeins.“ Hann segir
þar aftr og aftr, að Jesús sé aðeins maðr, en manneðlið í
œðsta veldi sé guðdómlegt. Menn nái misjafnlega hátt
upp til móts við guðdóminn. Þegar sem hæst sé komið,
verði ervitt að aðgreina, hvað guðlegt sé og hvað mann-
legt, eða hvenær manneðlið verði gnðlegt. Jesús hafi náð
allra lengst, svo manneðli hans sé gnðlegt nmfram alla.
Campbell gjörir lítinn eðlis-mnn á guði og manni. Ann-
arsstaðar hefir Campbell aftr haft sama orðtœkið um
Krist einsog það, er séra Jón Helgason nú við hefir og
margir aðrir á undan honum af nýguðfrœðingum: “guði
fyllt sál.“
Það er fróðlegt að bera þessar nýju tilraunir saman
við kenningar Cnítaranna, sem verið hafa brautryðjendr
hinnar „frjálslyndu stefnu“ og búnir eru að sigla um þau
sundin, sem nýguðfrœðingar eru nú að velkjast í. Hér er
talað um Únítara-stefnuna einsog vér þekkjnm hana af