Sameiningin - 01.05.1913, Blaðsíða 28
92
umrœöur veröa um „Verkefni bandalag-anna“ — máls-hefjandi séra
Björn B. Jónsson.
Erindsrekar Bandalaganna gjöri svo vel aö afhenda undirrituð-
iim kjörbréf sín fyrir hádegi þingdaginn, svo ekki þurfi að eyða neinu
af fundartimanum til að semja erindsrekaskrá.
Allir gjöri svo vel að hafa meö sér Bandalaga-sálmabókina.
Baldri, Man., 29. April 1913.
F. Hallgrímsson,
fors. Bandalaganna.
FYRIR UNGA FÓLKIÐ. Deild þessa annast séra Friðrik Hallgrímsson.
BANDALAGS-ÞING
verðr haldið í sumar í sambandi við kirkjuþingið. Það getr ekki náð
tilgangi sínurn nema því aðeins, að unga fólkið taki hcndum saman
um að gjöra það uppbyggilegt. Sérstaklega ætti unga fólkið í söfnuð-
unum ísl. í Norðr-Dakota, að fjölmenna á það þing. Og öll banda-
lögin ætti að senda þangað erindsreka, einn eða fleiri, eftir ástœðum;
því þýðingarmikil mál verða á dagskrá. Það getr verið mikil upp-
bygging í því fólgin fyrir ungt fólk að koma saman og rœða kristileg
félagsmál sin. Og kristilegu félagsmálin okkar yfir höfuð grœða á
þvx, að unga fólkið sinni þeim og leggi rœkt við þau. Tökum því
höndum saman um það, að láta þetta þing verða með suðs hjálp upp-
byggilegt, ávaxtarsamt og ánœgjulegt.
David Livingstone
1813 — 19. MARZ — 1913.
(Framhald.)
8. Júní 1832 lagði Livingstone á stað frá Cape Town, og komst
tæpu ári síðar til Linyanti, höfuðborgar Makololo-manna. — Á leið-
inni kom hann til Kolobeng, og voru þá Búar nýbúnir að koma þangað
til að hefna sín á Sechele fyrir vináttu hans og fylgi við Livingstone.
Sextíu af mönnum hans drápu þeir, og hús Livingstone’s brenndu þeir
til kaldra kola, og í því allar bœkr hans.
Þegar Livingstone kom til Linyanti, var þar tekinn við stjórn
Sekeletu, sonr Sebituane þess, er fyrr er nefndr, og reyndist hann Liv-
ingstone vel, einsog faðir hans. En viku eftir að L. kom þangað
veiktist hann af „malaria“, illkynjaðri sóttveiki, er tók sig upp ná-
lega þrjátíu sinnum á ferðinni, sem þá var fyrir höndum, og var
honum bæði leiðr og tafsamr förunautr.