Sameiningin - 01.05.1913, Blaðsíða 22
86
legt virðist benda á þaö, aö mótspyrna gegn þeim kenningum
sé að vaxa þar með árum, og eru þau tákn tímans gleðileg.
Eru þá ekki líkur til, að vér getum fengið presta frá ættlandi
voru til starfa meðal vor? Það, sem mótstööumönnum vorum
tekst hér, ætti oss einnig að takast. Væri nú ekki reynandi að
senda forseta kirkjufélagsins eða einhvern annan hœfan mann
til íslands og fela honum að útvega verkamenn?
En þótt þetta verði gjört, er gátan þó ekki ráðin með þvi.
Of mjög hefir oss hætt við því í liðinni tíð að byggja frekar
til daga en árs, enda annaö óhœgt um sum mál. Hitt dylst víst
engum, að þvi meiri framsýni sem vér sýnum í starfsmálum,
því betr ganga þau. Og því færri breytingar sem vér erum
knúðir til að gjöra eftir atvikum, því sterkari verða áhrif félags
vors.
Ár eftir ár höfum vér beöið þess, að nýir námsmenn bœttist
við hóp vorn. ÞÓ mun það sannast mála, að félag vort hefir
lítið gjört til að tryggja sér nemendr, og því minna til að hjálpa
þeim, — sem þó er aðalatriðiö, því ekki er staðan, þegar henni
er náð, þess líkleg að auðsæld fylgi, enda er það vel. En há-
skólanemanda vor á meöal geta ekki dulizt tœkifœrin til auðs
og mannvirðinga, sem hér bjóðast og fjölga með árum. Getr
þá kirkjufélagið gjört minna en að sjá um, aðj nemendr þeir,
sem á prestaskóla fara með þeim ásetningi að starfa meðal vor
að náminu loknu, líði ekki skort, meðan námið stendr yfir?
Jafnvel meðan College-nám þeirra stendr yfir, ætti þeim að
vera, veitt lið. Vel gæti svo farið, að maðr, er þannig væri
hjálpað, brygðist, og starfaði ekki vor á meðal. En á það
verðr að hætta, því tímabær hjálp væri þó heldr trygging fyrir
áframhaldi en hið gagnstœða.
Meðan eg fyrir skemmstu dvaldi vestr á Strönd, kom eg til
Portland og tafði þar tvo eða þrjá daga. Þár í bœnum er
lúterskr prestaskóli í byrjun. Einn kennari veitir þar frœðslu
með hjálp lúterskra presta í grenndinni. En ekki getr mér
dulizt, að sá skóli hefir naumast slitið barnaskónum, enda er
hann ekki eldri en tvævetr. Pacific-sýnódan, sem er hluti af
General Council, kostar þessa byrjun. Líkindi eru til, að
skólinn verði fluttr til Seattle, og þá bœtt við öðrum föstum
kennara. Vel myndi þá þegið, að vér einnig ættum þar hlut að
máli og kostuðum þar íslenzkan kennara, er veitti tilsögn í ein-
liverri aðal-deild guöfrœöinnar.
Það væri bæðf þeim og oss stór gróði. Ætti sá kennari
að veita íslenzkum nemendum tilsögn í íslenzku, einkum í því